Vikan - 21.02.1980, Qupperneq 45
.
þreytt og mér fannst best að hún legði
sig.”
Janet hugsaði með sjáifri sér að hún
hefði margt að vera þakklát fyrir.
Skynsemi móður hennar var eitt af því
mikilvægasta. Hún dáði Karen, sem var
eina barnabarnið hennar, en lét þó
sjaldan undan freistingunni að verða of
eftirlát við hana.
„Aðeins þreytt?” spurði Janet. „Ekki.
.. ekkert óvenjulegt?”
„Nei, ails ekki. Hún hefur það fínt.
Hún lék alla vega leiki við gluggann i
dag. Og svo var hún aftur að sníkja
kettling.”
Janet kinkaði kolli. Hún sneri
krananum og þvoði hendur sínar vand-
lega.
„Einhvern tima skal hún fá kettling,”
sagði hún hljóðog ákveðin.
Hún þerraði hendurnar á
pappírsþurrku sem hún tók af rúllu á
veggnum.
„Já,” sagði frú Halstead aðeins. Hún
sneri einum hnappnum á eldavélinni.
„Maturinn verður tilbúinn eftir svona
hálftima. Hvernig hefurChris það?"
„Hann hefur það fint. Hann ók mér
aftur heim núna. Annars hefði ég orðið
seinni fyrir.”
„Þú ættir að bjóða honum inn
eitthvert kvöldið, Janet. Viðgætum haft
eitthvaðsérstaklega gott að borða.”
Janet brosti og hristi höfuðið. „Nei,
mamma. Ég vil helst ekki vera að koma
honum í gegnum alla þá sótthreinsun
sem hann þyrfti að ganga í gegnum ef
hann ætti að koma hér inn án þess að
bera meðséreinhverja sýkla."
„Hvers vegna spyrð þú hann ekki og
lætur hann um að ákveða það? Hann
veit um hvaðer að tefla, er það ekki?”
„Jú, en. . . ef ég gerði það væri ég að
gera hann að ákaflega sérstakri
manneskju og það er hann ekki,
mamma. Hann er aðeins góður vinur
minn.” Hún opnaði einn skápinn og tók
fram sótthreinsaðan slopp. Skilurðu að
ég vil ekki að hann haldi að það sé
eitthvað meira á milli okkar.”
„Þetta virðist vera viðkunnanlegasti
maður og hann hefur reynst þér vel..."
„Hann hefur verið mér góður vinur."
Hún fór í sloppinn. „Þangaðnær þaðen
ekki lengra. Það væri ekki réttlátt að
láta hann álíta eitthvað annað."
Frú Halstead leit á dóttur sina og það
var áhyggjusvipur á góðlátlegu
andlitinu. Siðan brosti hún. „Jæja, en ef
einhver maður fær einhvern tima að
koma hér inn á sokkaleistunum og
með nýþvegnar hendur, þá veit ég hvað
eráseyði!”
Janet brosti á móti, en hún hristi
höfuðið. „Til þess mun ekki koma,"
sagði hún hljóðlega um leið og hún gekk
að stiganum, sem lá upp á aðra hæð.
Karen hafði stærsta svefnherbergið í
húsinu. Þar hafði verið meira að gera,
meiri hætta á ferðum og fleiri læknis-
heimsóknir en nokkur kærði sig um að
muna eftir.
Eins og allt annað í húsinu var þetta
herbergi hvítt og hreint og jafnkuldalegt
og önnur. Þarna var ekkert kögur eða
púðar, engin motta sem gæti gert gólfið
hlýlegra. Húsgögnin voru öll hvit og i
staðinn fyrir gluggatjöld voru tandur-
hreinar rúllugardínur.
„Er einhver vakandi hér?” hvíslaði
Janet. Hún gekk hljóðlega að rúminu og
sá strax að Karen var sofandi. Hún
settist á rúmið við hliðina. Andardráttur
barnsins var jafn og stöðugur.
Janet brosti meðsjálfri sér, að vissu
leyti af því að henni var létt og einnig
vegna þess að það var eitthvað við litla
andlitið i rökkrinu, mjúkan vangann og
lokuð augun sem voru umkringd þétt-
um, löngum augnhárum, sem sagði svo
margt um þessa litlu, sjálfstæðu
persónu.
Þetta var lítil stúlka með stórkostleg
áform á prjónunum, stúlka sem ætlaði
sér að eignast kettling, ganga um og
leika sér í garðinum og eignast vinkonu
sem hún gæti talað við.
Karen vissi heilmikið um umheiminn.
Hún hafði séð sjónvarp og sögur höfðu
verið lesnar fyrir hana. Nú voru amma
hennar og mamma lika langt komnar
með að kenna henni að lesa.
En hún vissi ekki hvernig tilfinning
það var að strjúka hendinni um mjúkan
feld lítils kettlings, það var nokkuð sem
ekki var hægt að kenna henni. Það var
nokkuð sem maður varð sjálfur að
upplifa og Karen hafði aldrei á ævi sinni
fengið leyfi til að snerta á dýri.
Þessi langa barátta hafði byrjað þeg-
ar Karen var aðeins sex daga gömul.
„Ég er hræddur um að við getum ekki
leyft þér að taka barnið þitt með heim á
morgun þrátt fyrir allt,” hafði læknirinn
sagt við Janet og eiginmann hennar,
Bryan Collins. „Við þurfum að taka
nokkrar prufur áður en við erum
ánægðir.”
Þau vissu bæði tvö að Karen hafði átt
við einhverjar smámeltingartruflanir að
stríða en allir höfðu virst svo jákvæðir.
Karen var yndislegt barn og hún hafði
haft góða matarlyst.
Þegar búið var að taka prufurnar
vildu þeir aðrar og siðan enn aðrar.
Og þegar Karen var svo flutt í
einangrun þar sem enginn fékk að koma
nálægt henni án þess að fara i
sótthreinsaðan slopp, jafnvel ekki Janet
sjálf, þá hafði hún fengið að heyra þau
skelfilegustu orðsem hún hafði nokkurn
tima heyrt.
Karen hafði fæðst með sjaldgæfan
blóðsjúkdóm.
Og þegar Karen hafði að lokum
fengið að fara heim var það aðeins með
vissum skilyrðum. Heimili hennar varð
að breytast í eintóm sótthreinsuð her-
bergi þar sem séð var til þess að sýklar
ættu erfitt uppdráttar.
Hver einasta lítil skráma gat þýtt að
þetta litla barn týndi lífi. Hún hafði
enga mótstöðu gegn blóðeitrun.
Móðir Janetar flutti heim til þeirra svo
að hún gæti nýtt allan sinn tima I
baráttunni gegn sýklunum og hjálpað til
með þá stöðugu umönnun sem ung-
barnið þurfti á að halda.
Baráttan um líf hennar var byrjuð.
Bryan hafði dáið stuttu eftir fyrsta af-
mælið hennar. Og nú þegar allt virtist
hafa snúist á móti þeim fann Janet
nýjan kjark og einbeitni.
Barn Bryans mátti ekki deyja lika.
Hvað svo sem læknarnir sögðu þá
myndu hún og móðir hennar sjá til þess.
Það mátti heita kraftaverk hve langt
þær höfðu náð með Karen. Þrátt fyrir
einangrun hennar, þrátt fyrir að hún
hefði aldrei getað leikið sér úti með
öðrum börnum, var hún glaðvær og
hraustleg litil stúlka.
Stundum hafði þó legið við að hún léti
lífið og henni hafði verið komið inn á
sjúkrahús i flýti. Þær þurftu líka alltaf
'við og við að fara til rannsóknar á
sjúkrahúsið og svo þurfti alltaf nýjar og
nýjar blóðprufur. En alltaf beið vonin
um uppskurð.
Janet vissi að ef hægt væri að láta
Karen fá merg úr beini einhvers sem var
i réttum blóðflokki gæti hún orðið
alheilbrigð. Þá gæti líkami hennar
sjálfrar byggt upp sína eigin vörn gegn
10% bensínsparnaður
Allir sem fást vifl stillingar bílvéla vita, að
bensíneyðslan eykst um 10-25% milli
kveikjustillinga.
Eftir ísetningu LUMENITION kveikjunnar
losna bíleigendur algjörlega við þá eyflslu-
aukningu, sem slitnar platinur valda, því í
þeim búnaði er ekkert, sem slitnar eða
breytist.
Með LUMENITION vinnur vélin alltaf eins
og kveikjan vœri nýstillt.
LUMENITION fylgir 3ja ára ábyrgð.
Verð miðað við gengi 2.2/80, kr. 57.000.
) , “ABERGht
Skeifunni 3e~Stmi 3'33'4S
Kópavogur —
Breiðholt
Látiö kunnáttumennina
smyrja bílinn á
smurstöðinni ykkar
SMURSTÖÐ ESSO
STÓRAHJALLA 2, KÓPAVOGI
(Snjóllur Fanndal)
SÍMI 43430
8. tbl. Vikan 45