Vikan - 21.02.1980, Síða 48
Fjaflra I hnjém, mjöðmum og ökklum. Staflr aftur, handur fram.
—
Stafirnlr saman, haldið efst og neðst. Hnjém lyft, tekið ó stöfum.
BEINT RENNSLI
•*=" ... >: y' .
(brun)
I lok fyrstu kennslustundar vorum við
komin í viðbragðsstöðu með skíðin i
stefnu beint niður og flöt á snjónum. Til
þess að halda góðu jafnvægi, þegar við
rennum okkur af stað, verðum við að
beygja hnén og gefa örlítið eftir í
mjöðmum eins og sýnt er á 1. mynd. Þar
sést einnig hvernig haldið er á stöfunum.
Broddarnir visa aftur og niður án þess
þó að snerta snjóinn. Armar eiga að vera
létt bognir um alnboga, í óþvingaðri
stöðu og höndum haldið fyrir framan
mjaðmir. Varist að reka stafina i snjóinn
fyrir framan ykkur, t.d. i þvi augnamiði
að stöðva ykkur, þeir gætu rekist
óþyrmilega í mann.
Byrjendum hættir til að horfa beint
niður á skíðin í staðinn fyrir að horfa á
snjóinn fyrir framan sig.
Reynið að halda skíðunum flötum á
snjónunt á skriðinu. Ef ykkur gengur vel
að halda jtínvægi er tilvalið að gera
ýmsar léttar æfingar eins og t.d. 1) að
fjaðra upp og niður í hnjám og
mjöðmum og jafnvel reyna að 'snertjj
skíðin fyrir framan-skíðaskóna, 2) að
lyfta vinstri og hægri hæl til skiptis, 3)
hoppa nokkrum sinnutn þannig að
hælar lyftist a.m.k. örlitið frá snjónum,
4| beygja sig undir ímyndaðar hindranir,
5) stíga til hliðar út úr stöðinni án þess
að bréyta stefnu og 6) skauta til hægri og
vinstri ji,.frárennslinu, þegar komið er
niður á sléttutjgferðin farin að minnka.
Að sjálfsögðu er skynsamlegt að gera
þessar æfingar fyrst niðri á flötinni. /*j
Að detta og standa upp
Byrjendur eru yfirleitt hræddir við að
detta sem skiljanlegt er. Þessi hræðsla
veldur eins ko'nar brekkuskjálfta og stif-
leika í vöðvum þegar menn eru komnirá
ferð. Gefist hefur mjög vel að kenna
fólki að detta því að það áttar sig á þvi
að engin hætta er á ferðum ef rétt er að
farið. Þetta dregur úr slysahættunni,
einkum á snúningum í hnjám og
ökklum.
Eins og áður er best að æfa sig á jafn-
sléttu áður en farið er i brekku. Á mynd
2 og 3 sjáum við hvernig beygja á hné og
mjaðmir og siga til hliðar (upp i
Mjöðmum iyft, ýtt kröftuglega
á stafina.
Vinstri hönd fssrð ofar til stuflnings.
Stafanotkun: Vinstri stafur fram, hœgri
Björninn unninn. „Chaplinstafla'
48 Vikan 8. tbl.