Vikan - 21.02.1980, Blaðsíða 62
Pósturinn
KP.M
Thc*''í*NDS
Komdu sœll, kæri Póstur.
Mig langar til þess að biðja
þig að leysa úr vandamáli
mínu. Ég er búin að senda þrjú
bréf en ekkert hefur verið birt.
Ég vona að þetta bréf fari ekki
sömu leið og þaufyrri. Jœja,
þannig er að ég er 48 kUó, en
bara 10 ára. Er ég ekki adt of
feit? Getur þú gefið mér ein-
hver ráð, megrunaruppskriftir
eða eitthvað sem ég grennist á?
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Ein að vestan.
Hvernig á Pósturinn að geta
svarað þessu? Ef þú hugsar þig
vel um þá verður þér það
væntanlega ljóst að Pósturinn
þarf að vita hversu há þú ert í
loftinu til þess að geta sagt til um
æskilega þyngd. Og þar er sem
sagt skýringin á því að ekkert
hinna þriggja bréfa þinna hefur
verið birt. Það getur nefnilega
raskað útreikningum verulega ef
þú ert til dæmis yfir 1.70 á hæð,
eða jafnvel undir 1.30. Sendu
upplýsingar um þyngdina í
næsta bréfi. Ráðleggingar í
sambandi við megrun og
megrunarfæði eru einmitt núna
í athugun hér á ritstjórninni og
væntanlegar innan tíðar í
blaðinu.
En bara tíu ára
Langar að
komast
til útlanda
Kœri Póstur.
Við erum tvœr stelpur sem
langar að komast til útlanda til
að vinna sem þernur á hóteli.
En við vitum ekki hvert við
eigum að leita til að fá
upplýsingar. Okkur langar að
kynnast heiminum nánar. Vilt
þú, elsku Póstur, hjátpa okkur?
Við vonum að Helga sé
södd. Tvœr með magapínu.
Hafið samband við sendiráð
þeirra landa, sem þið hafið
mestan áhuga á að heimsækja,
og æskið aðstoðar í atvinnu- og
húsnæðisleit. Einnig ættuð þið
að fylgjast vel með auglýsing-
um í blöðum því þar er oft að
finna auglýsingar um atvinnu í
ýmsum löndum og til dæmis
oftlega auglýstar stöður sem
au-pair á Norðurlöndunum,
einnig i Bretlandi og
Frakklandi.
Annar
er agalega
feiminn
Kæri Póstur!
Við erum tvær ástfangnar og
okkur langar til þess að byrja
með tveimur náungum en
vitum ekki hvernig við eigum
að fara að þvi. Hvað getum við
gert?
Elsku Póstur. Við erum
báðar 13 ára og þeir líka.
Annar er agalegafeiminn, hinn
er svo fjörugur. Mundir þú, ef
þú værir við, fara og tala við
þá þegar við hittum þá?
-Við vonum að þú birtir
þetta.
Tvær ástfangnar.
Ef Pósturinn væri þið myndi
hann líklega' framkvæma alveg
pað sama og þið — eða hvað?
Hins vegar — ef hann væri
hann sjálfur en í ykkar sporum
gerði hann kannski eitthvað
allt annað, en þorir þó ekkert
að fullyrða. Ef þið hafið ennþá
mikinn áhuga á að ná
sambandi við drengina er
auðveldast að byrja á þeim
fjöruga og nota hann svo til
þess að koma ykkur í nánarí
kynni við þann feimna. Góða
skemmtun!
Upphækkunarhringir og klossar
Fram- og afturspoilerar
Bílstolar
maraar
Leður sportstýri Scroi
í flestar
gerðir
bíla
Dráttartóg
12 V. digital klukkur
Brettabreikkanir á bila
Snjómottur
Rúllubelti í bíla
Aurhlífar
Felgulyklar
Amerísk
nælonteppi,
sniðm
í alla bíla
50 mm. Dráttarkúlur
Aukamælar
og
mælitæki
olfuþrýstings- vatnshita- vacuum-
og ampermælar
Sendum
í póstkröfu
Síðumúla 17 «->37140^
62Vikan8. tbl.