Vikan - 28.02.1980, Síða 22
Framhaldssaga
tröppurnar, sem lágu upp að
aðaldyrunum, og teygði fram höndina til
að taka lykilinn úr kveikjulásnum. Ég
fór út úr bilnum og gekk í kringum hann
og [rangað sem hún sat ennþá með
höndina utan um lykilinn.
„Vivien," byrjaði ég, „er það ekki
skrítið að við skyldum hittast undir
þessum kringumstæðum? Ég ætlaði að
koma —”
Rödd rnin dó út. Hún hafði enn
ekkert hreyft sig og það var eitthvað
svo óeðlilegt við það hvernig hún sat að
mér brá illilega. Hnúarnir á hendinni.
sem hélt um lykilinn, voru hvitir og
likami hennar var allur stífur. Smástund
fannst mér eins og hún væri hætt að
anda.
„Vivien,” sagði ég aftur, en hún var
eins og steinrunnin. Fyrir augum mér
birtist myndin af föður minum dettandi
til hliðar á bekknum á flugvellinum í
París. Hafði hið sama skeð hér?
Hjartaáfall. Nei, ekki á hennar aldri, það
gat ekki verið, eða hvað?
Ég lagði höndina á hné hennar.
Fóturinn var greinilega alveg stífur líka
og hún færði sig ekki undan
snertingunni. Ég leit í kringum mig og
svoiátt aðhúsinu.
Ég hljóp upp tröppurnar og þrýsti á
bjölluna. Ég heyrði bjölluhljóminn
einhvers staðar inni í húsinu og hélt
áfram að hringja eins og óð væri og
allan timann tautaði ég með sjálfri mér:
„Flýtið ykkur, flýtið ykkur."
Loks tók einhver i hurðina og hún
opnaðist upp á gátt. Það kom mér á
óvart að það skyldi vera karlmaður en
ekki þjónustustúlka sem kom til dyra
og hann varð fyrri til og sagði: „Hvað í
ósköpunum —?” En svo varð honum
litið yfir öxl mína og þangað sem bíllinn
var og hann ýtti mér til hliðar og hljóp
niður tröppurnar.
„Hvað gerðirðu henni?" spurði hann.
„Hvaðsagðirðu viðhana?”
Ég hristi höfuðið og stamaði: „Ég —
ég hef ekki —"
„Hvernig stendur á að þú ert hér?”
„Ég kont í bilnum með henni.” Ég
hikaði en bætti svo við: „Hún var
næstunt búin að aka yfir mig. Óvart
auðvitað.”
Hann sýndi að minnsta kosti þá tillits-
semi aðspyrja: „Ertu slösuð?”
„Nei, auðvitað ekki. Ég sagði
„næstum”. Hún bauðst til að —"
„Gerðir þú mikið úr þessu?” spurði
maðurinn.
„Ég gat nú varla annað en látið hana
vita að hún var næstum búin að drepa
mig," hreytti ég reiðilega út úr mér.
Hann horfði á mig kuldalega og það
gætti nokkurrar óþolinmæði i rödd hans
þegar hann spurði: „Sagðirðu eitthvað
r
I
mánaskini
sem hefur getað komið Vivien úr
jafnvægi? Ég er læknir. skilurðu. Hún
hefur verið að gráta, er það ekki?”
„J-jú, svolitið. En svo virtist hún
jafna sig. Hún var vingjarnleg og — ja.
alvegeðlileg.”
„Eðlileg?” Hann hnyklaði brýmar.
„Hvaðáttu við?”
Ég vissi ekki hverju svara skyldi.
„Þú verður að fyrirgefa. ef þér finnst
ég hranalegur," sagði maðurinn allt i
einu. „En ég verð að ná sambandi við
hana og það get ég ekki ef ég veit ekki
hvað hefur skeð.” Svo var eins og
honum dytti allt í einu eitthvað í hug.
„Sagðirðu að þú hefðir komið í bilnum
með henni? Varstu þá á leið hingað?"
Áður en ég náði að svara spurði hann:
„Hverert þú?”
„Joanna Forrest. Ég ætlaði að
heimsækja frænda minn í dag eða á
morgun. En hann átti ekki von á mér og
þess vegna fannst mér óþarfi þegar
Vivien sagði að hann væri i Warwick, að
„Forrest. Það hefur verið faðir þinn
sem dó i Paris?"
„Já.”
„Ég samhryggist þér. En hvernig
vissirðu að Vivien er frænka þin?”
„Ég þekkti — það er að segja hún er
alveg eins og ég man eftir móður minni.
Ég var að segja henni, eða að minnsta
kosti að gera tilraun til að segja henni
hver ég væri, þegar — þegar þetta
skeði.”
„Ég skil. Biddu. Vivien? Ah. Þetta er
betra. Komdu nú.”
Við fylgdumst með hvernig líkami
hennar varð smátt og smátt minna
stífur og loks losnaði höndin sem hélt
um lykilinn og hún sneri höfðinu og
sagði: „Halló, Paul.”
Hún sveiflaði vel sköpuðum fót-
leggjunum til hliðar og steig út úr bíln-
um um leið og hún brosti eins og hálf-
óörugg til mín. Síðan gekk hún til
mannsins og tók undir handlegg hans.
„Var ég nokkuð lengi í burtu? Matar-
pokarnir eru aftur í."
Hún bar hönd fyrir augu og benti í átt
til þyrpingar trjáa. „Rústirnar eru
hinum megin við þessi tré. Vertu sæl.”
Hún teymdi manninn á eftir sér í átt að
húsinu.
„Bíddu," kallaði ég. Núna varð hún
að fá að vita hver ég væri. Þau sneru sér
bæði við og það var eins og Paul hristi
aöeins höfuðið neitandi um leið og hann
leit í augu min.
Það er auóvelt aðframleiða
frábæran bíl. Hann þarf aðeins
að vera miklu betri en allir hinir!
2Z Vikan 9. tbl.