Vikan


Vikan - 28.02.1980, Síða 27

Vikan - 28.02.1980, Síða 27
,,Hér kennir margra grasa,” sagði hann. „Hver viil kex?” ,,Þú ert fullur, sagði Hrólfur, sem var að þvo sér um hendurnar í skírnar- fontinum. „Þú ert blindfuilur.” Viddi kveikti á nokkrum kertum uppi á altarinu til hátíðabrigða. Þeim fannst það mesti munur. „Hvað þýðir aftur IHS?" spurði Hrólfur. Viddi mundi bara að það var einhver latína. „Jesus Hominum Salvador,” sagði Brandur spekingslega og tróð orgelið í grið og erg. Hann byrjaði á því að pila Er ég kem heim i Búðardal og Hrólfur og Viddi flýttu sér að stofna kirkjukór. Viddi lét messuvínsflöskuna ganga í kórnum. „Þetta er ágætt,” umlaði Hrólfur. „Ég ætla að halda ræðu,” sagði Viddi og klifraði upp I ræðustólinn. „Kæru bræður og systur, sem hingað komið til að syngja og vera glöð...” Hrólfur og Brandur skutu einu ameni inn I. „1 dag mun ég leggja út frá eigin brjósti,” hélt hann áfram og fékk sér bragð úr flöskunni. „Ég ræði um áfengisböl litlu, sanntrúuðu þjóðarinnar okkar, sem hangir úti á hjara veraldar. Það er von min og...” Brandur og Hrólfur bundu enda á þetta hjartnæma eintal með því að syngja halelúja, halelúja.-hale-lú-ú-ú-ja. Þeir heyrðu í bí! fyrir utan og til mannaferða. „Presturinn er með einhver læti,” sagði Brandur og stökk á fætur. „Við verðum að gera eitthvað.” Þeir Hrólfur hentust upp á kirkju- loftið, en Viddi var þegar horfinn. Það var bjástrað við dyrnar. svo þeir máttu ekki seinni vera. „Upp i turninn, hvislaði Brandur og benti Hrólfi á mjóan tréstiga. Það stóð heima, að þeir lokuðu lúgunni á eftir sér, þegar presturinn ruddist inn í kirkjuna með flokk manna. „Hér er enginn,” sagði einhver með djúpa rödd. „Þeir hafa þá falið sig, ef þeir eru ekki sloppnir," sagði presturinn. „Þarna er brotin rúða!" „Uss! Hvaða hljóð var þetta?” spurði þriðji maður. „Mér heyrðist það koma úr predikunarstólnum,” sagði sá með djúpu röddina. „Þeir hafa saurgað skírnarfontinn,” sagði presturinn með grátstafinn i kverkunum. „Er nokkur jDarna?” Það heyrðist einhver skarkali og svo röddin í Vidda: „Veriði ekki með neina stæla. Ég sofnaði óvart í miðri ræðu. Ég held áfram núna.” Skarkalinn jókst og færðist fram að dyrunum. Það heyrðist ekkert meira frá Vidda. „Hinir hljóta að vera hér líka,” sagði rödd, sem ekki hafði heyrst áður. „Við skulum rannsaka loftið.” Það brakaði í stiganum upp á kirkju- loftið undan þunga mannanna. Þeir hlutu að vera tveir eða fleiri. „Þeir koma örugglega líka hingað,” hvíslaði Brandur. „Liggðu á hleranum, á meðan ég hringi klukkunum þeim til skemmtunar." Hrólfur lagðist á hlerann og fann um leið, að það var ýtt undir hann. Brandur hamaðist eins og óður maður við að sveifla klukkukólfunum. „Þeir gera sér leik að því að hringja klukkunum,” hrópaði presturinn i örvæntingu. „Rólegan æsing,” sagði sá með djúpu röddina. „Þú verður að nota kraftana, Þorgrimur.” Það var ýtt svo hraustlega undir hlerann, að Hrólfur lyftist með, en Brandur hafði auga með því og kom honum til hjálpar, svo hlerinn skall niður af afli. Þeir vissu, að þeim yrði ekki haggað tveimur. „Það er réttast fyrir ykkar að koma niður af frjálsum vilja, strákar," kallaði sá með djúpu röddina. „Það er sýslumaðurinn, sem talar.” „Fjandinn hafi þetta, Brandur. Hvað gerum við?” Brandur var ekki viss. Hann hélt að þetta væri eiginlega búið spil og þeir gætu alveg hætt þess vegna. „Við gefumst þá upp,” sagði Hrólfur. Þeir lyftu hleranum og horfðu á liðið fyrir neðan. Þar voru fjórir filefldir menn, auk sýslumannsins og prestsins. „Snöggir niður,” kallaði sýslumaður inn. Hann var I einkennisbúningi og með húfu. Það voru sett á þá handjárn, um leið og þeir komu niður úr stiganum, og svo voru þeir leiddir úr I bílinn, þar sem Viddi var fyrir. Hann lá sem dauður væri. Það var ekki sagt orð á leiðinni i bílnum. Yfirheyrslur áttu sjálfsagt að fara fram á skrifstofu sýslumannsins. Það reyndist rétt. Skrifstofan var litil, ellileg og full af ryki og blaðarusli. Sýslumaðurinn setti upp sparisvipinn og spurði hvers vegna þeir hefðu framið glæpinn. „Glæpinn,” missti Viddi út úr séf. Hann var ekki alveg með á nótunum. „Já, hvers vegna brutust þið inn I kirkjuna?” spurði sýslumaðurinn og hleypti í brýnnar. Brandur reyndi að útskýra málið, sagði bara eins og satt var, að þá hefði langað til að prófa orgelið og fundist sjálfsagt að þeim væri leyft það. Það hnusaði eitthvað í prestinum. „Hver ykkar saurgaði skírnar- fontinn?” spurði hann skjálfraddaður. „Saurgaði?” Hrólfur var hissa. „Ég þvoði mér bara.” Hann sýndi þeim skurðinn á hendinni. „Ég vissi ekki að það væri synd að þvo sér, þótt vatnið væri kannski vígt.” Yfirheyrslurnar voru yfir höfuð ómerkilegar og Iítið á þeim að græða. Brandur var alveg að sofna. Sýslumaðurinn dró upp köflóttan vasaklút og snýtti sér I mestu makindum. „Þetta eru heigispjöll af versta tagi,” sagði hann og lagði þunga áherslu á helgispjöll. Mig minnir að það geti kostað nokkurra ára fangelsi. Annars er best að sóknarnefndin haldi fund urn málið.” Presturinn stóð á fætur. Hann var kófsveittur. „Það má reyna að gera gott úr þessu," sagði hann óttasleginn. „Ölviman hlýtur að hafa svipt þá allri dómgreind. Við reynum að vera miskunnsamir.” „Sóknarnefndin verður að komast að samkomulagi I þeim efnum,” sagði sýslumaðurinn og var auðsjáanlega orðinn þreyttur á þessu. „Þaðer kannski hægt að komast af með fjársektir.” Fundi var slitið, en þeir urðu að gista varðstofuna um nóttina. Daginn eftir mætti Runólfur á staðinn, ævareiður. „Þessir þokkapiltar eru ekki lengur í vinnu hjá mér,” sagði hann og var sótrauður í framan. „Hvað gerðuð þið af jeppanum?” „Jeppinn stendur I hlaðinu á Hóli,” svaraði sýslumaðurinn. „Það væri réttast að hýða ykkur á almannafæri," sagði Runólfur og sneri sér að sýslumanni. „Hvað verður gert við þá?” „Það hefur ekki verið ákveðið enn. Við bíðum eftir niðurstöðu frá sóknar- nefndinni.” Sýslumaðurinn vár sallarólegur. „Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. Þú getur þess vegna farið og leitað þér að nýjum mönnum.” Runólfur lét ekki segja sér það tvisvar, heldur snaraðist út, án þess að kasta á þá kveðju. Eftir hádegi var þeim sleppt lausum, að ráði sóknarnefndar og sýslumanns. Þeir áttu að fá einhverjar sektir. voru atvinnulausir og höfðu enga hugmynd um, hvað þeir gætu tekið sér fyrir hendur. Samt voru þeir fegnir. Presturinn hafði beðið guð að fyrirgefa þeim, þótt þeir vissu ekki hvort það hefði nokkuðaðsegja. „Mér finnst gott að komast i burtu,” sagði Viddi. „Nei, ætli maður pæli nokkuð meira i pleisinu,” varð Hrólfi að orði. Brandur sagði ekki neitt. Hann raulaði við sjálfan sig og brosti út I annað. Þeir fóru burtu með rútunni um kvöldið. Það var hlýtt i veðri. Eiginlega þótti þeim lakast að hafa ekki afrekað meira, fyrst þeir voru að þessu á annað borð. ★ 9. tbl. ViKan 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.