Vikan - 28.02.1980, Side 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
Gömul mistök
dregin fram
í dagsljósið
lYlaríanna sat makindalega í
hægindastólnum og þaðan barst
skyndilega til mín eitthvað svo
undarlega háðslegur hlátur. Ég
leit upp úr bókinni sem ég var að
lesa, Morðinginn skýtur alltaf
tvisvar, og horfði spyrjandi á
hana.
— Hlustaðu nú bara, sagði
hún og dró þar með athygli
mína að bréfi sem hún hélt á í
hendinni.
— Ef það er frá mömmu
þinni, þá má það bíða. Ég er
önnum kafinn við að lesa mikil-
vægt vísindarit, sem ég verð að
ljúka viðí kvöld.
— Það er ekki frá mömmu.
Það er frá þér.
— Frá mér? Það getur ekki
verið. Ég hef ekki skrifað þér
bréf árum saman.
— Nei, en þú varst mjög iðinn
við að skrifa mér fyrir tuttugu
árum. Viltu heyra?
Ég svaraði þessu ekki. Fyrir
tuttugu árum? Já, víst var það
svo. Þá var maður ungur og ást-
fanginn. Hvar skyldi hún hafa
fundið þau? Geymdi hún allt
þetta heimskulega drasl ennþá?
Gömul, gulnuð ástarbréf. Já,
konur eru víst alltaf samar við
sig.
Hún lyfti bréfinu og hóf
lesturinn:
— Mín heittelskaða, allra
kærasta og yndislegasta
Maríanna, engillinn minn,
dýrgripurinn minn, dúfan mín,
sól lífs míns og dýrlegi demantur.
— Þakka þér fyrir. Þetta
nægir.
Ég opnaði glæpareyfarann á
ný og byrjaði að lesa.
— Nóg? Þetta er nú bara
formálinn. Það besta er eftir. Þú
hefur svei mér verið laglega vit.
. . þá. Hjálpi mér! Ég horfði
áminnandi á hana.
— Hlífðu mér, sagði ég
biðjandi. — Gerðu það. Það er
alveg óþarfi hjá þér að skemmta
mér með þessu þegar þú veist að
ég... nú, já, ég þarf að ljúka við
þessa bók í kvöld. Allir menn
hafa einhvern tíma átt sín
viðkvæmu augnablik þar sem
þeir hafa svifið um á litlu,
heimskulegu rósrauðu skýi og
ekki verið fullkomlega ábyrgir
gerða sinna. Það er alveg óþarfi
að fara að rifja það upp núna.
Þetta er nú orðið nokkuð gamalt
efni, ekkisatt?
Hún hélt áfram eins og ekkert'
hefði í skorist:
— Ö, ástin mín, þú ættir bara
að vita hvað ég hef saknað þín
óendanlega síðan við skildum í
dag heima hjá pabba þínum og
mömmu. Þú, tryllingslega
draumadísin min, sparigrísinn
minn. Það eina sem hjarta mitt
girnist. Ég held varla þá hræði-
legu hugsun út að ég skuli ekki
fá að sjá þig fyrr en á dans-
leiknum í kvöld. Ó, dagur, líð
fljótt! Hvað ég þrái að hvíla í
örmum þínum, finna fyrir
heitum vörum þinum og njóta
brennandi kossa þinna. Veistu,
Stjörnuspá
llnilurinn 2l.m;irs 20.;i »ril
Gættu tiín varðandi
fjárhagsáætlanir þvi
ekki er allt sent sýnist i
því efni. Ýmsir óvæntir
atburðir setja strik i
reikninginn og nauðsyn-
legt reynist að taka
skjótar ákvarðanir.
N.iuliið 2l. ipril 21.ni;ii
I huga þér brjótast
ýntsar hugmyndir sem
ættu að komast i frani-
kvæntd fljótlega. Það
gæti verið um þróun i
rétta átt að ræða ef þú
aðeins gætir varúðar i
upphafi.
Þin biða miklar annir
og þvi væri hagstæðast
að nota hverja frístund
til hvildar. Margt
mikilvægt krefst allrar
athygli þinnar og betra
að hafa skipulags-
gáfurnar i lagi.
Upplýsingar unt
ákveðna aðila berast þér
á óvæntan máta og
breyta í ýntsu gildismati
þinu. Lifsformið virðist
ólikt viðburðarikara og
hugurinn opnari fyrir
ýmsum framförum.
Hoi>m;iðiirinn 2-1.nú«. 2l.dc\
Kynni þin af ákveðnum
einstaklingi verða til
þess að líf þitt tekur allt
aðra stefnu en hingað
til og þér veilist léttara
að lita björtum augurii á
óhjákvæmileg skyldu-
störf.
Peningamálin eru í
Itinni mestu óreiðu. Ef
þú ekki tekur þér tak og
kemur þeint hlutum
snarlega á réttan kjöl
áttu á hættu að verða
öldungis ófær um að
niæta óvæntum
útgjöldum.
hr. hhimi 22.jifiiá -’.V jnli
Láttu hverjum degi
nægja sina þjáningu og
líklega verða óvæntir
atburðir þess valdandi
að þú sérð framtiðina i
öðru ljósi en áður.
Gættu þess þó að flana
ekki að neinu.
Slcingcitin 22. ucs. 20. j;«n.
Misstu ekki stjórn á
skapsmunum þinum
þótt deilur við ýmsa
aðila setji svip sinn á
vikuna enda lítið gagn
að æsingum og
vanhugsuðum
aðgerðum á þessu stigi -
málsins.
l.joniA 24. ji'ili 21. ii>ii«l
Þessi vika er ekki
hagstæð til að hrinda
stórmálum í
framkvæmd og þú ættir
þvi að hafa venju
fremur hægt um þig.
Mikið annríki
undanfarið hefur sett
svip sinn á mannleg
samskipti.
Vilnshcrinn 2l.j;in. I'l.fchr.
Notaðu tækifæri sem
gefast til að kynnast
nýju fólki og breyttu til
hvað varðar félagslíf
þitt og áhugámál.
Hlutirnir hafa fallið
heldur illa í skorður að
undanförnu.
Þrætugirnin hefur oft
orðið þér til tjóns en nú
verður það þinn gróði.
Þú hefur á stundum
lítið ýmislegt öðrum
augunt en aðrir og það
forðar þér nú frá
vafasömum viðskiptum.
Kiskarnir 20.fchr. 20. mars
Ekki er ósennilegt að
einhver kunningi valdi
þér tjóni ef þú ert ekki
vel á verði. Þú gætir
þess vegna lent í mjög
óþægilegum aðstæðum
og skalt því fara að öllu
Tneð gát um helgina.
34 Vikan 9. tbl.