Vikan


Vikan - 28.02.1980, Qupperneq 40

Vikan - 28.02.1980, Qupperneq 40
Framhaldssaga Þýð.: Stoinunn Helgadóttír. Hún mun deyja, hugsaði hún og vissi að hún hafði réttfyrír sér. Ef ég get ekki fengið þennan mann til að hjálpa henni núna þá mun það verða um seinan. ..Eg er ekki að kvarta. í sannleika sagt þá elska ég þessa vinnu. Ég elska lika lifið hér. Nú er ég búinn aðsjá hvert einasta horn af landinu. Og svo get ég alltal’ fundið einhverja ástæðu til að fara i eina og eina ferð. svona bara til að fylgjast með. Eldri niaður kom til þeirra og sagði: ..Ertu með pláss á vögnunum til Melbourneá næstunni. I’eter?" ..I>að ætti ég að hafa, Max. Ég hringi til þin á mánudag." ..Stundum hef ég það á til finningunni.” sagði Susan, ,,að þú |>ekkir allan bæinn." „Ég hef verið svo heppinn að hafa fengið vinnu sem gaf mér tækifæri til að kynnast mörgum." Hann bætti við alvarlegri, lágri röddu: „Ég hef verið ákaflega heppinn." Þau dönsuðu enn einn hring um gólfið. „Ég lield að þú hafir haft rétt fyrir |iér." sagði hann. „Það er allt of heitt til aðdansa." Hann tók um liönd hennar og leiddi hana út á svalirnar. Sætur blómailmur lá í joftinu. Susan gekk að veggnum og lagði handleggina utan um svala súluna. „Ég veit ekki hve heppni á stóran þátt i þessu," sagði hún. „Þú hefur lagt hart að þér. Og það eru átta ár siðan þú kontst hingað. er það ekki? Ég var einmitt í læknaskólanum. þegar þú byrjaðir að vinna fyrir pabba svo að það hljóta að vera eitthvað um átta ár." „Já." sagði hann. „Átta ár." Honum varð hugsað til Susan sem hafði verið ntjög ung þegar liann sá hana fyrst. Þá hafði hann verið hílstjóri og varla verið þannig settur i þjóðfélaginu að hann gæti farið með dóttur atvinnurekanda sins út að dansa. Samt hafði hann tekið eftir henni. Það var varla hægt annað en að taka eftir henni nteð gljáandi, rauðbrúnt hárið og finlega andlitið. Hún var stúlka sem vissi hvað hún vildi og var til með að leggja töluvert á sig til að ná því. Og hún hafði lagt hart að sér. Eftir að liafa lært i eitt ár í Sydney Itafði hún farið til London og sérhæft sig þar á barnaspítala. Hún hefði getað sest að hvar sem var í heiminum eftir það en 40 Vikan 9. tbl. Patricia Johnstone: i leitac lífðiafa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.