Vikan


Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 62

Vikan - 28.02.1980, Blaðsíða 62
Pósturinn Mamma og pabbi eyðileggja allt Elsku Póstur. Ég vona að Helga sé södd núna. Er ekki hœgt að fá plakat með Michael Jackson í Vikuna? Ekki einhvern tíma þegar hann er úreltur heldur eftir eins og viku. Jœja, þá kem ég að vandamálinu. Það er þannig að ég er hrifin af strák sem er jafngamall og ég. Ég myndi biðja hann að byrja með mér en það eru mamma og pabbi sem eyðileggja allt. Ég má bara fara út annað hvert kvöld og þegar ég má Jara út þá má ég bara vera til hálftíu eða tíu og það þola strákarnir ekki, að maður megi vera svona stutt. Jæja, vertu sæll. M Það er því miður ekki hægt að birta mynd af þessu átrúnaðar- goði þínu viku eftir að bréf þitt berst, til þess hafa vikublöð of lángan vinnslutíma. Og ef stjarnan er orðin úrelt eftir tvær vikur er heldur lítið að gera þér til hjálpar. En hér með er hugmyndinni þrátt fyrir al!t komið á framfæri við rétta aðila. Það er ósennilegt að foreldrum þínum gangi blákaldur kvikindisskapur til að reyna að koma í veg fyrir að þú flækist mikið úti á kvöldin. Ef hinir útvöldu á þínum aldri geta ekki sætt sig við útivistartíma þinn getur þeim varla legið mikið á hjarta og þú ert þá mun betur sett án þeirra. Hvernig væri að þú létir hverjum degi nægja sína þjáningu, því ef til vill sættir hinn útvaldi sig við útvistarreglurnar án þess að mögla. Hvar eru gömlu pennavin- konurnar? Vikan, Síðumúla 23, Reykjavík, ísland. Ég sá í norsku vikublaði að það er hægt að senda til ykkar óskir um að eignast bréfavini. En ég hef áhuga á að spyrja hvort hœgt sé að L ÝSA EFTIR bréfavinum. Þannig er mál með vexti að ég skrifaðist á við fjórar íslenskar stúlkur fyrir nokkrum árum. Við skrif uðumst á í mörg ár. En smám saman tapaði ég af þeim og nú hef ég einnig tapað heimilis- föngum þeirra. Ég yrði mjög ánægð ef ég gæti náð sambandi við þær aftur. Þær eru u.þ.b. 24 ára núna og heita: Guðbjörg Ófeigsdóttir (bjó I Reykjavík), Inga Steindórsdóttir (bjó á Akranesi), Erla Norðdal og Sólborg Bjarnadóttir. Ég vona að hægt sé að birta bréf mitt og að einhver bendi þeim á það ef þær sjá þetta ekki sjálfar. Með fyrirfram þökk. Linda Rendal Ugseth, 7813 Elvelandet, Norge. Bréfkorn þetta barst hingað á dögunum og birtist hér með í þeirri von að pennavinkonurnar gömlu og góðu taki snarlega upp pennann og láti hina norsku vinkonu í sér heyra. Olga M. Ingólfsdóttir, Bogaslóð 15,780 Höfn, Hornafirði, hefur áhuga á að skrifast á við krakka á aldrinum 13-15 ára. Hún er sjálf 14 ára. Áhugamál hennar eru margvisleg og hún biður um að mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Hún svarar öllum bréfum. Ragna Sæmundsdóttir, Hrauntungu 13, 200 Kópavogi, óskar eftir að skrifast á við stelpur á 12. árinu. Áhugamál hennareru margvisleg. Þórgunnur Torfadóttir, Hala, Suður- sveit, A-Skaft., 781 Höfn, óskar eftir pennavinum á aldrinum 14-17 ára. bæði strákum og stelpum. Jack Ochieng, P.O. Box 87215, Mombasa, Kenya, óskar eftir að eignast pennavini á íslandi. Áhugamál hans eru sund, söngur og gitarleikur og margt fleira. Hann er 21 árs, skrifar á ensku og óskar eftir að mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Þóra Bjarndís Þorbergsdóttir, Gerði, Suðursveit, A-Skaft., 781 Höfn, óskar eftir að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 14-17 ára. Ronald E. Evans, 4221 San Joagvin, Las Vegas, Nevada, 89102 USA hefur verið á lslandi og langar mikið til að komast í bréfasamband við Islendinga á öllum aldri. Hann skrifar á íslensku og ensku. Áhugamál hans eru skák. tónlist, fótbolti og margt fleira. Er þetta nokkuð óvenjulegt? Halló Póstur! Viltu svara fyrir okkur nokkrum spurningum. Hvað myndir þú ráðleggja okkur að gera þegar við erum búnar með grunnskólann og erum alveg óákveðnar með framtíðaráætlanir? Ættum við að vinna einn vetur eða fara í fjölbraut sem gefur okkur möguleika á fleiri en einni námsbraut? Finnst þér ekki allt of snemmt að ætla 15-16 ára krökkum að taka svona stóra ákvörðun? Jæja, hér kemur önnur spurning: Við erum alltaf þrjár stelpur saman (við sem skrifum bréfið og ein til). En okkur finnst að það sé alltaf ein okkar útundan. Er þetta nokkuð óvenjulegt? En heldur þú að það sé hægt að laga þetta og hvernig? Gefðu okkur einhver góð ráð ef þú getur. Hvað eru stelpur gamlar að meðaltali þegar þær fara að hleypa strákum upp á sig? Við vonum að Helga sé södd. Tvær að austan. Það er ævinlega fremur varasamt að gera hlé á námi og fara að vinna í þeirri von að línurnar taki að skýrast. Það getur verið til góðs — en hitt er þó algengt að um frekara skóla- nám verði ekki að ræða. Þið tapið engu á því að halda áfram í fjölbraut og velja síðan. Eftir þann tima getið þið svo reynt að gera upp við ykkur hvað þið viljið takast á hendur og ef ykkur kynni að snúast hugur er ekkert auðveldara en skipta um námsbraut. Með tilkomu fjölbrautaskólanna er einmitt 62 Vikan 9. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.