Vikan - 20.03.1980, Page 16
Ekki var hann stór, hlutur kvenna, í
síðustu kosningum til Alþingis. Og þær
konur sem yfirleitt hættu sér út í próf-
kjör báru þaðan heldur magran bita frá
borði. Ein af þeim ungu konum sem nú
tóku í fyrsta sinn þátt í prófkjöri er
Arndís Björnsdóttir. Var það í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins i Reykjaneskjör-
daími. Hún náði að vísu ekki kjöri en
upþskar hins vegar ómælt umtal og
bollaleggingar um persónulegar
aðStæður sinar. Öðlaðist hún hinar
fríðustu nafngiftir eins og forréttindafrú.
postulinsbrúða og yfirstéttarkelling, sem
gæti ekki haft mikinn skilning á högum
hins almenna borgara.
En hver er hún i raun og veru, þessi
Arndís? Til að fá svar við þeirri
spurningu heimsóttum við hana að
heimili hennar í Garðabæ, þar sem hún
býr ásamt eiginmanni sínum. Ottó
Schopka framkvgemdastjóra, og börnum
þeirra tveimur, Júliusi. 7 ára, og Herdisi,
6 ára.
Blaðburður og
byggingavinna
— Arndis, hvað með allar þessar fínu
nafngiftir? Er einhver fótur fyrir þeim?
— Ég held að fátt geti verið fjær lagi,
segir Arndís og hlær innilega. — Eg er
síst af öllu fædd með silfurskeið i
ER EKKI
FÆDD MED
NEINA SILF-
URSKEIÐ í
MUNNINUM
— segir Arndís Björnsdóttir, sem tók þátt í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar.
munninum. Á bernskuheimili minu
voru erfiðar aðstæður. Við vorum 6
systkinin, 5 systur og einn bróðir, og hiti
og þungi heimilisins hvíldi á mömmu
sem vann myrkranna á milli við sauma-
skap og skúringar. Og þar sem þessi
„kvenlega" atvinnugrein var sist af öllu
betur launuð þá en hún er nú urðum við
systkinin snemma að leggja okkar af
mörkum. Við gengum jöfnum höndum
að heimilisstörfum og 9 ára gömul var
ég farin að bera út fimm blöð, þar á
meðal Vikuna. Þessari atvinnu hélt ég
áfram í ein fimm ár en þá tóku við
afgreiðslustörf I sjoppum og mjólkur-
búðum, fiskvinna og eitt sumar vann ég
í byggingavinnu. Þannig vann ég fyrir
mér öll min skólaár, bæði sumar og
vetur.
— Ég held að hin kröppu kjör okkar
og mikil erfiðisvinna móður okkar hafi
átt sinn snara þátt í þvi að ég var
snemma staðráðin í að leita mér
hagnýtrar menntunar þannig að ég ætti
auðveldara með að standa á eigin fótum.
Ég fór því í Verslunarskólann, lauk
þaðan stúdentsprófi og stundaði siðan
háskólanám bæði hér heima og í
Þýskalandi. Og nú kenni ég þýsku við
Verslunarskólann.
—Samkvæmt uppruna þínum hefðir
þú sem sagt frekar átt að hallast til
vinstri?
16 Vikan iz. tbl.