Vikan


Vikan - 20.03.1980, Side 30

Vikan - 20.03.1980, Side 30
Draumar Hestar og tvö hálsmen Kæri draumráðandi! Mig langar að biðja þig að ráða tvo drauma fyrir mig ef þú getur. Mig dreymdi að ég var stödd hjá sjoppu sem er 3 km frá bænum þar sem ég bý. Ég var ein, eftir því sem ég man besl. Ég gekk um það bil hálfan kílómetra eftir veginum en þá þutu fram hjá mér 5-10 hestar og niður á tún sem er þarna. í hópnum var rauð hryssa með rautt folald og þegar folaldið var að fara inn á túnið féll það. Ég hélt að það væri dautt og hljóp að því en sá þá að það var lifandi. Hryssan stóð fyrir aftan mig og ég reisti folaldið við. Hljóp það þá ásamt hryss- unni lil vinstri og ætluðu þau inn á hól í túninu, sem var mjög blautt. En ég rétt náði að hlaupa fyrir þau svo að þau breyltu um stefnu og hlupu niður til hinna hestanna. Og svo eiti atvik úr öðrum draumi þessa sömu nótt. Mér fannst ég sitja uppi í rúminu mínu og var ég með tvö hálsmen. Á báðum stóð nafn stráks sem ég þekki. Annað hálsmenið á hann reyndar en hitt var hálsmen sem ég átti og er týnt. Með fyrirfram þökk. 1978 Draumurinn um hestana er fyrir fjölguri í fjölskyldu þinni og er þeirrar fjölgunar varla langt að þíða. Einnig eru ákveðin atvik í draumnum sem þenda til að fárviðri með mikilli rigningu verði á heima- slóðum þínum, gæti jafnvel verið komið fram þegar svarið birtist í blaðinu. Síðari draumurinn er þér fyrir góðu en þó virðist nafn stráksins undirstrika fyrirboða veðurofsans í fyrri draumnum. Það þarf þó ekki að snerta þig beinlínis persónulega og fremur ósennilegt að þú berir sjálf beinan skaða af veðri þessu. Látinn þorna í leið 12 Kæri draumráðandi! Mig dreymdi skrýtinn draum um daginn sem ég vildi gjarna fá einhverja skýringu á — ég get ekki gleymt honum! Það var þannig að mér fannst ég vakna og heyra vatn renna. Ég gerði mér strax grein fyrir því að baðkerið, sem er I næsta herbergi, var að fyllast. Að sjálfsögðu reyndi ég að stökkva á fætur en fann þá að ég gat ekki hreyfl mig — var Hkt og lamaður. Þannig lá ég og gat enga björg mér veitt. Ég sá vatnið seytla yftr þröskuld- inn inn í svefnherbergið og yfirborðið hækkaði sífellt. Undir það síðasta var ég sjálfur kominn I kaf og flaul um herbergið. Einhvern veginn tókst mér, þráttfyrir lömunina, að svamla út að glugga, opna hann og skipli þá engum togum að ég og allt vatnið fossuðum niður húshliðina, runnum niður götuna og staðnœmdumst ekki fyrr en við strœtisvagnabiðskýlið í næstu götu. Elgurinn var ofboðslegur en það sem bjargaði mér var að leið 12 átti leið þarna fram hjá I þessu. Strætisvagnstjórinn tók mig upp í, þurrkaði mig frá toppi til táar og stakk mér síðan inn í gufubað sem hann hafði innréttað aftan við fjórðu sœlaröð. Þar sat ég í heljarhita þangað til ég vaknaði með mikið óráð. Baði Ýmislegt í draumi jjessum bendir til óvæntra breytinga í lífi þínu og jafnframt þinna nánustu. Líf þitt tengist lífi annarra á einhvern máta, sem þú áttir alls ekki von á, og ýmis- legt verður til þess að gerbreyta lífsforminu. Þú mátt eiga von á veikindum innan heimilisins og þar skaltu einnig varast allar deilur og ýmislegt bendir til að þér væri happadrýgra að ná betra taumhaldi á skaps- mununum. Erfiðleikar, sem líklega tengjast búsetuskiptum, setja svip sinn á ákveðið tímabil en leysast á nokkuð sérstæðan máta. Þér bjóðast tækifæri sem gætu opnað þér ýmsar leiðir og það er mikilvægt að vera vakandi fyrir að nýta þau sem allra best. Ef það tekst ætti umstangið að verða fyrir- hafnarinnar virði. Lagið Linditréð eftir Schubert Kæri draumráðandi! Mig dreymdi að ég var á ferðalagi með einhverri vinkonu minni og við komum við í húsi sem amma mín bjó I (hún dó fyrir 2 árum). Eannst mér mamma og pabbi búa þar (þau eru bœði dáin) og dvöldum við þarna einhvern tíma. Síðan er kominn tími til að halda áfram á ferðalaginu og við leggjum af stað. Þá man ég eftir að ég á eftir að kveðja mömmu og pabba og sný við. Þau standa bæði I dyrunum þegar ég kem aftur og við kveðjumst og finnst mér þetta vera frekar sorglegt. Síðan finnst mér mamma fara með mig inn í svefnherbergi og þá stendur þar svartur flygill (sem þau áttu en bróðir minn á núna) og mamma sest við flygilinn og spilar lag og syngur fyrir mig. Það var lagið Lindi- tréð eftir Schubert, en í draumnum fannst mér það vera eftir Sigfús Halldórsson. Síðan segist mamma œtla að spila annað lag fyrir mig og ég spyr hvort það sé líka eftir Fúsa. Síðan var draumurinn ekki lengri og þegar ég vaknaði mundi ég lagið sem mamma söng fyrir mig. Allt í draumnum bendir til breytinga á högum þínum, til hins betra. Langlífi tengist mörgum táknum draumsins og einnig bætt þjóðfélagsleg aðstaða. Heimilislíf mun blómstra og sértu ekki þegar gift mun varla verða langt að bíða þess að þú festir ráð þitt. Erfiðleikar, sem þú átt við að etja um þessar mundir, falla innan tíðar í gleymsku og verða þér lítið annað en minningarbrot úr fortíðinni. Langlífi þínu tengjast svo tákn sem benda til að lífsganga þín verði óvenju gleði- rík og farsæl. 30 Vikan 12. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.