Vikan - 20.03.1980, Blaðsíða 31
Popp
Getur rokktónlist
skaðað heilsuna?
Stevie Wonder. Nýjustu sannindi úr
poppinu segja að tónlist þeirra geti
verið heilsuspillandi, þó ekki bráð-
drepandi.
Ameríkanar eru alltaf að uppgötva
nýjan sannleika. Ótrúlegustu hlutir eru
rannsakaðir, jafru lifanði sem dauðir. á
öllum hugsanlegum sviðum vístndanna.
Nýverið kunngjörði bandariski
sálfræðingurinn og rithöfundurinn John
Dimond niðurstöður sínar úr viðamikilli
könnun sem hann framkvæmdi í heima-
landi sínu. Tilgangurinn var að kanna
áhrif tónlistar á mannslíkamann og
notaði hann meira en 20.000 tónsmíðar
við tilraunir sinar. Niðurstöður voru i
stuttu máli: Ákv. tegund rokktónlistar
dregur úr orku líkamans eða hefur
augljós áhrif i þá átt. Styrkurinn skiptir
ekki máli heldur er það takturinn —
taktur sem er einhæfur, mjög reglu-
bundinn, vélrænn og með föstum
Þorgeir
Astvaldsson
áherslum. Þar sem hann er ekki í
samræmi við hjartsláttinn myndast
spenna i líkamanum sem truflar sálar-
ástand og veldur þvi að likamsorkan
minnkar. Dimond mældi orkuna í
vöðvum handleggja fjölda fólks meðan
rokktónlist var leikin.
Meðal frægra poppara, sem
samkvæmt niðurstöðunum eru
hættulegir heilsu manna með tónlist
sinni, má nefna Stevie Wonder, Bee
Gees, Queen. Alice Cooper og Led
Zeppelin en einna verstir eru Rolling
Stones. Bítlarnir eru skaðlausir. Það er
nánast heilsusamlegt að hlusta á þá.
..Rokktónlist er ekki bráðdrepandi,”
segir Dimond, „en ég stórefa að Mick
Jagger lifi lengur en Pablo Casals eða
Segovia."
Það er greinilega vandlifað i heimi
hér, hætturnar margar og margt sem ber
að varast. Þvi er eins gott fyrir aðdá-
endur áðurnefndra poppara að losa sig
við plöturnar eða selja hljómtækin, og
þaðstrax, ætli þeir að lifa lengi.
Bee Gees
Queen
Poppunnandi! Þú lifir lengur ef
þú hlustar á Bítlana!
Vandmeðfarnar
stórstjömur
Hér sjáum við þær stöllur Donnu
Summer og Börbru Streisand snúa
bökum saman og er tilefni myndatök-
unnar vel þekkt dans- og diskólag sem
þær sungu saman inn á hljómplötu.
Enough is enough heitir það og var gefið
út á litilli plötu. En báðar vildu þær hafa
það á sólóplötum sínum og var leyfi fyrir
þvi auðfengið hjá hljómplötufyrir-
tækjum þeirra. Donna er á samningi hjá
Casablanca en Barbra hjá CBS.
Casablanca auglýsti plötuna með
myndinni sem hér er að ofan til vinstri
en CBS notaði myndina til hægri. Af
hverju? Fyrirtækin hafa með þessu séð
fyrir því að þegar auglýsingin eða
myndatextinn er lesinn kemur nafn
söngkonunnar til vinstri fyrst fyrir —
það er jú lesið frá vinstri til hægri —
Donna þegar Casablanca auglýsir og
Barbra, þegar CBS auglýsir.
Hlægilegt smáatriði en greinilega
mikilvægt í augum auglýsenda. Þær eru
vandmeðfarnar, stórstjörnurnar, og ber
margs að gæta í vísindum auglýs-
inganna. Þaðeralveggreinilegt.
12. tbl. Vikan 31