Vikan


Vikan - 20.03.1980, Page 33

Vikan - 20.03.1980, Page 33
Þennan brosmilda pilt kannast margir við. Hann heitir Michael Jackson og er i miklum metum hjá unglingum um þessar mundir. Þótt hann sé ekki nema 21 árs gamall á hann að baki meira en áratug sem söngvari — steig fyrst á svið með bræðrum sínum fjórum, þeim Marlon, Jermaine, Tito og Jackie, árið 1969 og vakti strax athygli fyrir söng og sviðsframkomu. Snáðinn, þá aðeins 10 ára, þótti furðu klár og öruggur meðsig. Foreldrar þeirra þræðra, hjónin Joseph og Katherine, stigu fyrstu sporin með þeim og tóku þátt i söngstarfi þeirra til að byrja með. Systurnar þrjár lögðu þeim sömuleiðis lið. Sannkölluð fjöl- skyldusöngsveit, sem lagði upp í langa frægðarför á þessum árum. Samheldni af þessu tagi er reyndar mjög algeng meðal svertingja i bandarískum skemmtanaiðnaði enda hefur tónlistin reynst þeim happadrjúgur farvegur til vegs og virðingar. Brátt skildu þó leiðir og bræðurnir fimm með Michael í fararbroddi unnu marga sigra, jafnt á sviði sem og með hljómplötum sinum, á árunum 1970 til 1979. Þeir hlutu grammy-verðlaun fyrir lag sitt ABC árið 1971, gullplötur fyrir lögin I want you back og I'll be there, voru heiðraðir af bandaríska þinginu sem „fyrirmynd æskunnar” árið 1973 og svo mætti lengi telja. Breiðskífur þeirra, alls átta að tölu. hafa allar unnið til ýmiss konar verðlauna. Þrátt fyrir traust fjölskyldubönd hefur Michael farið sinar eigin leiðir síðustu 2 ár — lagt fyrir sig kvikmyndaleik og sungið inn á hljómplötur án teljandi aðstoðar bræðra sinna — nú siðast plötuna Off the Wall, sem farið hefur sigurför um gjörvallan dægurheiminn siðustu mánuði. Hefur samvinna Michaels og Quincy Jones, en hann útsetur og stjórnar upptöku á plötunni, tekist með ágætum. Þessi Jones er heldur enginn aukvisi, þegar tónlistin er annars vegar — starfaði hér á árum áður með Duke Ellington og náði langt á sviði jassins. Stjarna Michaels Jackson rís hátt um þessar mundir. Engu að siður hyggst hann halda tryggð við bræður sína og starfa með þeim á tónlistar- sviðinu i framtíðinni. Samheldni er jú aðalsmerki Jacksonfjölskyldunnar. vegna, fyrst og fremst, stóra hópa aðdá- enda meðal ungs fólks í Bandarikjunum. Nýleg Gallup-skoðanakönnun ber vott um það, en samkvæmt henni er Styx vinsælasta unglingahljómsveitin um þessar mundir i heimalandi sínu. Vegna tryggðar við aðdáendur sína sem m.a. birtist í tiðu hljómleikahaldi hefur hljómsveitin komist á tindinn og fyrir bragðið hlotið viðurnefnið The peoples' band eða hljómsveit fólksins. Liðsmenn Styx eru: John Panozzo slagverk/söngur. Chuck Panozzo bassi/söngur, James Young gítar/synthe- sizer/söngur, Dennis de Young hljóm- borð/söngur, Tommy Shaw gítar/- mandólín/söngur. Hljómplötur Styx eru: 1. Styxl 2. Styx II 3. The serpent is rising 4. Man of miracles 5. Eqinox 6. Crystal ball 7. TheGrand Illusion 8. Pieces ofeight 9. Cornerstone. Popp 12. tbl. Vlkan 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.