Vikan


Vikan - 20.03.1980, Síða 38

Vikan - 20.03.1980, Síða 38
Stjörnuspáin þin fyrir árið 1980 Hrúturinn 21i3>a20«4« 1979 var ágætis ár í lífi þínu og 1980 verður ekkert síðra. Þú leggur hart að þér en hefur líka erindi sem erfiði. Þér bjóðast mörg tækifæri til nýrra ástarævintýra en fæst þeirra eiga sér langan aldur. Áhrif Venusar, drottningar ástarinnar, eru sér- lega hagstæð í september — og það gefur margri hrútskonunni kjark til að tjá þeim karlmanni er hún girnist ást sina að fyrra bragði. Yfirleitt einkennist árið 1980 af velgengni. Sú velgengni kostar þó nokkra streitu, sem margir hrútar kunna þó ekkert illa við. Örlagastjarna þín, Mars, sér til þess að halda þér við efnið. Apríl og ágúst eru happamánuðir, þá þróast allir hlutir þér í hag. Fjármálin virðast líka í ágætu lagi. Þér bjóðast mörg tækifæri til að ferðast og þessi ferðalög verða mjög til- breytingarrík. En sem ökumaður ættir þú að gæta þín. Þetta á sérstaklega við um hrúta sem fæddir eru frá 8. til 14. apríl. Það virðist enginn endir á óhöppum þínum i umferðinni. Yfirleitt ættirðu að gæta þín vel bæði í lífi og leikjum allan aprílmánuð. Einnig þarf að gæta óvenju vel að heilsunni dagana 13., 14. og 15. október. Þeir sem fæddir eru á tímabilinu 16.-20 apríl fá byr undir báða vængi á timabilinu mars - 3. maí. Og bað á fleiri sviðum en einu. Eins og allir vita eru hrútar þó nokkuð þrasgjarnir. Þessi eiginleiki nær suðumarki á tímabilinu 11. júli - 28. ágúst. Reyndu að fá þér sumarfrí á þessum tíma og skipta um umhverfi. Annars er hætta á því að flestum þyki þú óþolandi. Þú átt von á nokkrum mótbyr í september. Velgengnisstjarna þín, Júpíter, á ekkert meira til að gefa, það er fremur hætta á því að þú verðir fyrir skakkaföllum í fjármálum. Þetta mótlæti reynir á heilsuna. Einkunnarorð þín tvo síðustu mánuði þessa annars svo ágæta árs ættu því að vera: Þolinmæði, aðgætni og köld skynsemi. Enda munu margir dást að þér, einmitt sakir þessara eiginleika. Nautid 21*4*a20*$t Þetta er sú stjörnuspá sem flestir mundu kjósa sér. Eiginlega alveg órúleg: Allar þær stjörnustöður sem við stjörnufræðingar þekkjum í sambandi við hamingju og vel- gengni safnast saman í merki nautsins. Hánunkturinn er þó mánuðirnir mars-júli. Þú ættir að notfæra þér þetta sérstaka velgengnistímabil út í ystu æsar. Margir í nautsmerkinu hitta nú loksins þann rétta eða þá réttu. Og við óskum þér sérstaklega til hamingju sé þá að finna í merki jómfrúarinnar eða steingeitarinnar. En annars er sama hvað þú tekur þér fyrir hendur — allt heppnast alveg ótrúlega vel, næstum eins og yfirskilvitlegir kraftar séu með í spilinu. Hvort sem um er að ræða heilsu, lagadeilur, flutninga, fjármál, kaup eða sölu — allt gengur þér að óskum. Sumir i nautsmerkinu eiga jafnvel von á vinn- ingi í happdrætti. Þeir sem fæddir eru eftir /5. apríl ættu endilega að freista gæfunnar þann 26. júní. Sértu fædd 9.-12. maí gætu 13. og 14. september orðið þér happadagar. Þær konur sem fæddar eru 21. eða 30. april verða að minnsta kosti alveg sérstaklega heppnar í ástamálum. Yfirleitt ná ástamálin nýjum hápunkti hjá nautinu og það strax fyrri hluta ársins. Hvað atvinnu snertir er líka allt á uppleið. Hugmyndir þínar falla í góðan jarðveg, þú styrkir stöðu þína og fjárráð þín batna. Þú ættir ekki að leita hamingjunnar í langri utanlandsferð í sumarleyfinu, heldur í eigin garði eða upp til fjalla. Og einmitt þetta ár ættirðu að hleypa í þig kjarki og reyna eitthvað nýtt. En fyrir þá í nautsmerkinu sem fæddir eru frá 11.-18. maí gildir: Betur getur það ekki gengið. Tviburarnir 21.5.-21.6. Gamall málsháttur segir að sjaldan grói mosi í rennandi vatni. Og hann á svo sannarlega við um hina órólegu og nýjungagjörnu tvíbura. Árið 1980 passar þetta sérlega vel um fjárhag þeirra. Enn rennur upp tímabil þar sem peningarnir standa ekki lengi við á ávísanaheftinu eða í bankabókinni. Þeir tvíburar sem fæddir eru 21. - 31. maí fá áþreifanlega að finna fyrir þessu á tímabilinu mars-júlí 1980. Að hinum kemur röðin í ágúst, september og október. Þú ættir ekki að hætta á neitt í fjármálum. Geymdu heldur allar slíkar áætlanir í neðstu kommóðuskúffunni þinni og hugsaðu þig þrisvar um áður en þú eyðir fé þínu. Þú ættir frekar að treysta á drottningu ástarinnar, Venus, á þessu ári. Ástin er mesta aflið í lífi þínu í april, júlí og september. Sem ekta tvíburi leitar þú uppbótar í tilfinningalífinu fyrir það sem þú tapar á sviði efnishyggjunnar. Og þú kemst fyrirhafnarlítið yfir eitt eða tvö ástar- ævintýri á mánuði. Það er jú um að gera að fá einhvern samanburð og kaupa ekki köttinn í sekknum! Ég vil þó gjarnan gefa þér gott ráð: Þó að þú leitir ákaft að sálu- félaga — láttu það samt ekki verða til þess að þú missir þinn dyggasta félaga. Það gæti orðið þér hættulegt. Margir tvíburar verða að taka á allri þeirri sáttfýsi sem þeir eiga til þetta árið. Aðeins fáeinar vikur eru svona nokkurn veginn þokkalega hagstæðar til alvarlegra áætlana: Miður júlí fram í miðjan ágúst. Þú munt mæta sérstökum mótbyr í mars, júní og september. En þó að tvíburar séu fljótfærir eiga þeir þó til þolin- mæði og aðgætni þegar þeir finna að á móti blæs. Það er þeirra sterka hlið. Og það hjálpar þér til að komast óbuguð i gegnum ár sem er þér óvenjulega óhagstætt. En í síðasta lagi í endaðan október fer aftur að birta til. 38 Vikan 12. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.