Vikan


Vikan - 20.03.1980, Qupperneq 41

Vikan - 20.03.1980, Qupperneq 41
Steingeitln 22.12.-20.1. Þér gengur allt í haginn — á hvaða sviði sem er, sérstaklega við eftirlætis iðju þína, vinnuna. Atvinnulaus steingeit er óhug^ andi fyrirbrigði. Þetta ár er sérlega hagstæft fyrir alls kyns fjárfestingar, húsa- eða íbúðarkaup. Þú ert einn af þeim sem lífið leikur við 1980. Það skortir ekkert á góða heilsu — en sé svo mun öll lækning heppnast vel. Og mörg steingeitin kemst nú í örugga höfn. (Heppilegasti makinn er naut eða jómfrú en sporðdreki og fiskur koma líka til greina. Öll þessi merki sætta sig við að þú þolir engin hliðarspor.) Og þú kannt ennþá betur að meta þetta þar sem þú hefur ekki alltaf farið vel út úr ásta- málum þínum. En skyndilega og því nær fyrirhafnarlaust öðlast steingeitin nú meiri vinsældir en áður. Sértu fædd á tímabilinu 22. desember - 10. janúar má segja að síðastliðið ár hafi verið þér nokkuð hagstætt hvað fjármálin snertir. Þessi þróun heldur áfram og nú njóta líka þær steingeitur sem fæddar eru frá og með 11. janúar góðs af henni. Frá maíbyrjun og fram í i-mjðjan júlí tekst þér að framkvæma margar áætlanir, þrátt fyrir nokkra mótstöðu. Hvað ""þig snertir hefur velgengnin látið standa á sér. í mars, maí, september og otkóber hefurðu mun meiri áhuga á tilfinningalífi þínu en frama í starfi — og það er ekki svo lítið þegar steingeit á í hlut. En þú mátt ekki bara sitja með hendur í skauti og bíða þess að hamingjan finni þig, þú verður líka að hjálpa dálítið til sjálf. Og í þessum málum er maí besti mánuðurinn. Sumarleyfið þitt verður afar skemmtilegt og þú ættir að eyða því einhvers staðar uppi í fjöllum. Vatnsberinn 21.1. - 20. 2. Þú ættir að fá þér eina bók í viðbót til að færa inn símanúmer vina þinna því að þeim mun fjölga mjög á þessu ári. Ástæðan fyrir þvi eru persónutöfrar þínir sem afla þér fljótt vina og óvenjulegt næmi þitt á þarfir annarra. Þú ættir að veita fólkinu umhverfis þig nána athygli: Margur mun eiga erfitt með að fylgja þér eftir, bæði á andlega sviðinu og þvi líkamlega. Þetta verður til þess að dæmigerðum vatnsbera helst ekki eins vel á vináttunni og efni standa til. Jafnvel skilnaður kemur til greina. Þú getur þó huggað þig við eitt: Hafi sá vinur sem þú missir ekki verið tvíburi, vog, hrútur eða bogmaður var hann hvort sem er ekki sá rétti fyrir þig. En þessi óróleiki í einkalífinu hverfur þó eins og dögg fyrir sólu. Þú lendir í eldheitu ástarævintýri sem endar jafnvel með hjónabandi. Og það er ekki svo lítið því sá sem ætlar sér að temja þig verður að hafa þolinmæði á við flóatemjara. Þeir vatns- berar sem þegar búa í föstu og hamingju- sömu sambandi ná hins vegar nýjum hápunkti með maka sínum og þrátt fyrir nýjungagirnina sannar þetta þér að þú þarft ekki að leita langt yfir skammt að hamingjunni. Þú ættir að halda þér nokkurn veginn í sama farinu hvað atvinnu snertir jafnvel þó þú sért farin að hugsa til breytinga. Þeir vatnsberar sem fæddir eru 21. janúar - 10. febrúar byrja þó að finna fyrir þeirri velgengni sem á eftir að einkenna 1981, en það ár verður afar blessunarríkt fyrir þá. En þú þarft samt ekki að halda að þetta ár verði neitt leiðinlegt: Þefvísi þín á ýmislegt sem kryddar tilveruna á eftir að leiða til margra atburða sem koma öllum á óvart - nema þér —- sérstaklega frá júlíbyrjun og til septemb- erloka. En þessi tími reynir þó mjög á þolin- mæði þína. Taktu tillit til þess þegar þú skipuleggur sumarleyfið þitt og taktu ekki með þér of mikinn farangur. Þú verður aldrei lengi á sama stað. Fiskurinn 21. 2. - 20. 3. Þetta árið fellur hreint ekki að óskum þínum: Mikil vinna en fjárhagslegt tap. Það fé sem þú vinnur þér inn með miklu erfiði rennur eins og sandur úr greipum þér. Ég vil sérstaklega vara þá fiska við sem fæddir eru í febrúar því allt gæti farið í óreiðu. Þeim væri best að geyma ávísanaheftið sitt í læstu bankahólfi til júlíloka. Þeir fiskar sem fæddir eru 21., 22. eða 23. febrúar þurfa á allri sinni þolinmæði, iðni og var- færni að halda til að komast klakklaust frá hlutunum. Vertu ljúfur sem lamb og hafðu ætíð stjórn á skapi þínu, þú hefur ekki efni á neinni úlfúð. Forðastu umfram allt að lenda í deilum. Þetta verður þér yfirleitt erfiður tími, jafnvel líka hvað einkalífið snertir. Þú getur huggað þig við að þetta gengur jafnt yfir alla sem fæddir eru á þessum tíma, hvort sem þeir eru ríkir eða fátækir, þekktir eða óþekktir. Aðeins júlí verður fiskunum nokkurn veginn hagstæður. Kannski ættu langþreyttir fiskar að nota hann til að taka sér frí frá öllu, t.d. með því að kaupa sér ódýra sólar- landaferð. Þeir fiskar sem fæddir eru eftir 10. mars mega þó búast við nokkrum breytingum til hins betra. í einkalífinu verða margir fiskar fyrir nýrri reynslu: Þeir finna skyndilega ekkert gat sem þeir geta sloppið út um á því neti sem þeir hafa annars af fúsum vilja riðið í kringum sjálfa sig. Þar sem fiskar velja sér gjarnan maka sem hafa meiri skapgerðarstyrk en þeir hættir þeim til að flýja með sorgir sínar á náðir flöskunnar. Sem sagt, þegar á allt er litið verður þetta ár sem krefst mikiis af fiskum og gefur lítið í staðinn. En öfugt við grenitréð hans Stephans G. þá bogna þeir kannski en þeir brotna ekki. Dæmigerður fiskur er vel hæfur til að bjarga sér hvort sem er i blíðu eða stríðu. ★ 12. tbl. Vikan 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.