Vikan - 20.03.1980, Page 43
5. hluti
Chris brosti kaldhæðnislega með
sjálfum sér. Sjálfum hafði honum ekki
tekist að fá Blake til að skipta um
skoðun hvað viðtalinu viðvék. Hann
vissi einnig að það þurfti töluverðan
kjark til að neita að ræða við frétta-
mennina, sérstaklega þar sem dr. Muir
vildi einnig að hann talaði við þá.
Þetta vakti áhuga hans. Nú vaknaði
enn ein spurning um manninn. Hvers
vegna hafði hann neitað honum svo
ákveðið um viðtal?
Chris hafði umgengist marga. Sumir
voru mjög á móti þvi að vera fyrir
framan myndavél. Sumir voru feimnir.
Sumir hötuðu að koma opinberlega
fram. Svo voru einnig nokkrir geðvondir
þarna inni á milli. Peter Blake átti ekki
heima í neinum þessara hópa.
Hann beygði sig áfram og slökkti á
tækinu en augu hans héldu áfram að
stara á skerminn sem nú var auður.
Aðalatriðið var að nú hafði Karen
fengið tækifæri. Chris hafði aldrei hitt
Karen en hún var litla dóttir Janetar og
það tengdi þau vissum böndum. Hann
var að vona að þegar þetta væri allt
gengið yfir og Janet færi að geta lifað
eðlilegra lífi yrðu þessi bönd enn
sterkari. Hann vonaðist til að geta gifst
Janet.
Ef hann hefði einhvern tima aflögu
næstu tvær vikurnar — og þar sem fullt
útlit var fyrir að Janet myndi vera allan
þann tima á sjúkrahúsinu — þá gæti
verið að hann yrði einhvers vísari um
Blake.
Áhugi hans var bæði persónulegur og
atvinnulegur. En hann var ekki
vingjarnlegur.
Dr. Muir gekk á undan Peter inn í
stórt gamaldags sjúkrahúsið. Fyrst
gengu þeir eftir breiðum gangi, síðan inn
á mjórri gang og að stiga upp á næstu
hæð.
Að lokum nam dr. Muir staðar og
bankaði á dyr.
„Ég er að efna loforð núna. Það er
manneskja hér sem ég lofaði að fengi að
verða sú fyrsta til að bjóða þig velkom-
inn.”
Dyrnar opnuðust og Janet Collins
birtist.
I fyrstu brosti hún ekki. Hún starði
aðeins á Peter Blake. Augu hennar
voru djúpblá og alvarleg, varir hennar
voru aðeins aðskildar og hún hreyfði sig
ekki eins og hún héldi niðri í sér
andanum.
Honum fannst hann verða klaufa-
legur. Hún virtist svo breytt, hún líktist
12. tbl. Vikan 43