Vikan - 20.03.1980, Síða 62
Pósturinn
Nú eru góð
ráð dýrl
Elsku Póstur!
Nú eru góð ráð dýr. Þannig
er mál með vexti að ég er
hrifin af strák í mínum bekk.
Ég hef verið tvisvar til þrisvar
með honum að kela en svo
ekkert meira. Mig langar svo
að byrja með honum en er
ekki asnalegt að stelpa spyrji
strák? Gerðu það, ekki gefa
Helgu skvísu bréfið mitt, gefðu
mér heldur mjög gott ráð við
þessu.
Með fyrirfram þökk.
A,B,C,D,E,F,G,H,Í...
Hvernig er það eiginlega, hefur
þú ekkert heyrt um kvenrétt-
indi? Samkvæmt þeim kokka-
bókum á ekki að vera neinn
munur á því hvort stelpa spyr
strák eða strákur stelpu. Ef svo
drengurinn kann ekki að meta
þann gang mála er hann fram úr
hófi gamaldags í þessum efnum
og því ef til vill lítill gróði af
nánari kynnum. En allt um það,
það sakar ekki að spyrja og þótt
svarið yrði neikvætt eru það nú
varla nein endalok veraldar.
Vinkona mín var
með honum en
hætti. ..
Kæri Póstur!
Ég vona að Helga sé södd.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég
skrifa þér. Snúum okkur að
efninu.
Ég er búin að vera hrifin af
strák í hálft ár. Við skulum
kalla hann X. Vinkona mín var
með honum og hún hœtti með
honum. En þá byrjaði hann að
vera með annarri stelpu sem ég
og vinkonur mínar þolum ekki.
Þessi stelpa og tvcer aðrar
stelpur eru alltaf á móti okkur,
mér og vinkonum minum. Þær
eru búnar að spilla flestöUum
krökkunum í bekknum. Mig
langar ekki neitt að vera á móti
þeim.
Elsku Póstur, hjálpaðu mér í
því efni og líka að byrja með
stráknum.
Þökk fyrir birtinguna og
afsakaðu stafsetningarvillurnar.
— +
Þú segir að þið vinkonurnar
þolið ekki stelpuna sem hann
er með núna. Ertu alveg viss
um að þið hafið ekkert gert
henni og að hún geti ekki
einfaldlega verið að borga fyrir
sig. Það er ágætur eiginleiki að
geta sett sig í spor annarra og
ef þú reynir það gæti verið að
þú sæir atburðina í öðru og
skýrara ljósi. 1 svona málum
þjóna illindi engum tilgangi og
eru þér og vinkonum þínum
einungis til tjóns. Það eina
sem þú getur gert er að bíða og
sjá hvort málin breytast ekki
eitthvað. Ef þú gætir þess að
gera ekkert fjandsamlegt á móti
verða þær fljótt leiðar á þessu
og kunningjarnir leiðir á þeim.
Btrit Hansscn, Graagaasv. 39, 4620
Vaagsbygd, Norge, er 17 ára gömul og
hefur áhuga á að eignast islenska penna-
vini á svipuðum aldri. Áhugamál hennar
eru dýr. bréfaskriftir og margt fleira.
Ásta Auðbjörg Ægisdóttir, Hlíðargötu
24, 750 Fáskrúðsfirði, óskar eftir að
skrifast á við stelpur og stráka á
aldrinum 13-14 ára. Hún er sjálf 14 ára.
Hún svarar öllum bréfum.
Paul Racaud, Centre Paul Lambert, 2
Rue Raymond Lizop, 31300
TOULOUSE er 15 ára franskur piltur
og langar að komast i bréfasamband við
14 eða 15 ára íslenska stúlku. Hefur lært
um Ísland i skólanum og vill fræðast
meira.
Eg er búin að fara þangað sem þú sagðir mér að fara . .
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir svarið síðasta, það var svona la la. Þú
ert kannski sá eini sem ég get talað við. Ég er orðin leið á
þessu öllu. Ég á enga vini. Ég er búin að fæla þá alla frá
mér. En ég vona að ég þurfi ekki að fæla þig frá mér,
Póstur (blaðamaður).
Ég er búin að fara þangað sem þú sagðir mér að fara en
ekkert dugar. Ég var hreinskilin við manninn minn, ég
sagði honum allt sem ég hafði gerl. En hann tók ekki mark
á mér.
Ég og maðurinn minn fórum á ball hér í bæ. Þar hitti
hann konu sem sagði honum allt það vonda um mig, að ég
haft haldið framhjá honum. En það var allt meinlaust. Ég
held að ég sé ófrísk en hann heldur að það sé ekki eflir
hann. En hann þarf ekki að láta svona því að það er aðeins
hann og enginn annar.
Égá . . . krakka með honum. Ég er alveg búin aðfá nóg
af þessu rugli, Póstur, ég er ekki geðbiluð. Ég vona að þú
skiljir þetta. Ég kann ekki að koma orðum að því eins og ég
vil hafa það. Ég er engin skriftamanneskja svo þú verður að
svara þessu þó að það sé allt snarvitlaust skrifað. Hvað eru
margir sem skoða bréfið áður en það kemur í Vikuna?
Ekki fer það af sjálfu sér í póstinn eins og þú gafst mér í
skyn í fyrsta bréft og ég vil ekki svar með útúrsnúningum.
Eg talaði við einn hjá ykkur, hann sagði að þetta bréf
kæmi eftir 3 vikur. Ég vona að ég þurft ekki að bíða eftir
svari lengi. Annars væri gaman að fá bréf frá Póstinum, ég
meina svo ég geti sagtfrá mér. En ég held að það megi
kannski ekki, blaðamaður? Er það ekki rétt? Ég er búin að
fá alveg nóg, það verður ekki langt að bíða eftir
sjálfsmorði!
Ó, Póstur. Ég vona að þú svarir mér eins fljótt og þú
getur. Ég er hœtl að lenda í löggunni. Kannski fattar þú
hvað ég meina með þessu, Póstur. Ég ætla ekki að hrein-
skrifa þetta bréf. Ég vil aðeins fá ráð hjá ykkur.
Nú ætla ég að hætta þessu hrafnasparki og bið að heilsa.
Með fyrirfram þökkum. 0080
Það er engin lækning að fara í'eitt skipti og tala við einhvern
aðila um vandamál sitt. í bréfi þinu tekur þú reyndar ekki
fram hvert þú fórst, en þar sem Pósturinn benti þér á AA
samtökin og SÁÁ telur hann víst að þú hafir einmitt farið
þangað. Líklega væri best fyrir þig að gera þér ferð til Reykja-
víkur og tala við einhvern á skrifstofu SÁÁ, Lágmúla 9, og
biðja þá um að senda þig á stað þar sem þú færð möguleika á
varanlegri lækningu. Þegar því er lokið — meðferðinni en
ekki samtalinu — getur þú farið að gera ráð fyrir að aðstaða
þín breytist.
En þú hefur stigið fyrsta skrefið og með því sýnt að
hugrekki vantar þig ekki og þá er bara að halda áfram á sömu
braut. Því það er bæði þér og börnum þínum nauðsynlegt.
Það er ekki nokkur ástæða til að ætla að þú sért geðbiluð,
en óhófleg víndrykkja og erfiðleikar henni samfara geta
valdið þér miklum vandræðum í samskiptum við annað fólk,
ekki síst nánustu ættingja, og því finnst þér ef til vill sjálfri
mörkin nokkuð óglögg. Sjálfsmorð skaltu ekki einu sinni
hugleiða því það er engin lausn, hvorki fyrir þig né aðra í
fjölskyldunni. Gefstu alls ekki upp og með tímanum breytist
þá einnig samband þitt við eiginmanninn.
Bréf sem Póstinum berast fara að sjálfsögðu ekki til annarra
í fyrirtækinu. Ef bréfið er stílað á Póstinn í Vikunni persónu-
lega kemur það einungis i hans hendur og allt sem bréfritarar
skrifa er trúnaðarmál og Pósturinn bundinn þagnarheiti.
bzVikan IZ. tbl.