Vikan - 17.04.1980, Side 3
LJÓSM.: JIM SMART
Litið yfir pökkunarsalinn hjá Norðurtanga.
Jön Péll Halldórsson framkvæmdastjóri athugar örtölvuvogina hjá þeim
Sigríöi Rósu Magnúsdóttur og Rebekku Pálsdóttur: Örtölvuvogir eru mun
nákvæmari og einfaldari i notkun.
og unnið er úr afla frá þremur línu-
bátum og einum togara, Guðbjarti, sem
er að verða þekktari á meðal bæjarbúa
undir nafninu Vigdís, en það var einmitt
áhöfn þessa togara sem sendi Vigdisi
Finnbogadóttur hið örlagaríka skeyti
sem varð til þess að hun ákvað að taka
þátt í forsetaframboði. Enda urðum við
vör við að hún á miklum vinsældum að
fagna yfirleitt á meðal ísfirskra sjó-
manna.
Norðurtangi framleiddi 3000 tonn af
frystum afurðum á síðastliðnu ári
Húsakynni eru björt og vistleg þar sem
tekist hefur að tengja saman á haglegan
hátt nýtt og gamalt. Þeir i Norðurtanga
hafa gert sér far um að fylgjast vel með
allri tækni og örtölvutæknin verður æ
snarari þáttur í vinnslurásinni. Fiskur-
inn er vigtaður á örtölvuvogum niðri i
'sfal,1 'lfllurnar stimplast inn á strimil á
skrifstofunni og siðan er tölvan mötuð á
þessum upplýsingum. Þannig víkja
hinar hefðbundnu vigtar siðustu áratuga
fyrir örtölvuvogunum. en þær eru
framleiddar hjá ísfirsku fyrirtæki,
Pólnum hf.
Við spurðum Jón Pál Halldórsson,
framkvæmdastjóra Norðurtanga, hvort
ekki væri lögð mikil áhersla í svo mikil-
vægum fiskiðnaðarbæ á að mennta fólk
I sambandi við þennan iðnað:
— Því miður verðég að svara því neit-
andi, sagði hann. — Og það sem verra
er, þar virðist heldur hafa verið stigið
skref afturábak en áfram Gagnfræða-
skólarnir voru komnir með töluvert
verknám, þeir voru í vaxandi mæli að
byggja það upp I tengslum við atvinnu-
vegina. En með nýju grunnskóla-
lögunum, sem ég vildi nú raunar heldur
kalla poppskólalög, riðlaðist þetta allt
saman. Skólinn er í eðli sínu ákaflega
íhaldsöm stofnun og erfitt að hafa áhrif
á þróun hans, en það sem nú er að gerast
er ekki einu sinni hægt að kalla þróun
heldur mjög vafasamar kollsteypur.
Grunnskólinn er að verða að ein-
hverjum skandinaviskum óskapnaði sem
að sáralitlu leyti hentar okkar
þjóðfélagsuppbyggingu. Ég get ekki
ímyhdað mér annað en að við eigum
eftiraðgreiða þessi mistök dýru verði.
JÞ
Halla Siguröardóttir skráir hjá sér upplýsingar um afköst dagsins.
16. tbi. Vikan 3