Vikan


Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 26

Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 26
Draumar Ungur maöur með litla telpu Kæra Vika. Viltu ráöa þennan draum fyrir mig. Ég og dóttir mín búum saman í íbúð. Svo var það einu sinni, þegar klukkan var farin að ganga sjö um morgun, að mig dreymdi þennan draum: Til mín kemur ungur maður og heldur á ósköp fallegri lítilli Ijóshœrðri telpu. Maðurinn segir ekki neitt en mér finnst hann vilji vera sem næst mér með hana. Ég vaknaði og dóttir mín fór í vinnuna er klukkan var farin að ganga átta. Þá sofnaði ég aftur og eftir smástund dreymdi mig aftur að þessi ungi maður kæmi til mín og bar hann sig Skop -ii/lthM. ©ButLS eins að og var með sömu telpuna. Þá vaknaði ég. Með von um svar. Nafnlaus. Því miður eru upplýsingarnar sem draumnum fylgja af svo skornum skammti að það gerir draumráðanda erfitt um vik við ráðningu. Til dæmis gæti þarna verið fyrirboði þess að þú eignist barnabarn og litla stúlkan i draumnum sé tákn þess barns. Barnið í draumnum mun tengjast þér nánum böndum og verða þér sönnun þess að lífið sé raunverulega einhvers virði. Lykill aö hamingjunni Kæri draumráðandi Viltu ráða þennan draum fyrir mig. Ég lá í rúmi mínu og var að lesa. Þá kom inn til mín maður sem ég þekkti fyrir nokkrum árum. Hann hélt á stórum og fallegum blómvendi, allt rósir. Ég varð reið og spurði: „Hvað ert þú að gera til mín?" „Færa þér blóm, Stína mín, ” svaraði hann. Ég tók við vendinum og fór að tína blómin af honum og fleygði þeim á gólfið við fætur hans. Þá sagði hann: „Gerðu þetta ekki, Stína mín, því hamingja þín er fólgin I þessum blómum. ” Ég hélt áfram að tína blómin af þar til þau voru öll búin. En þá var melóna innan í vendinum og ætlaði ég að rífa hana í sundur. Þá sagði maðurinn: „Þú mátt ekki gera þetta, Stína mín, því lykillinn að hamingjunni þinni erfólginn í melónunni. ” Þá henti ég henni á gólfið og tók hana upp og braut hana sundur. Þá sá ég að það var lykill innan í melónunni og þekkti ég hann strax. Maðurinn fékk mér lykilinn og sagði um leið: „Stína mín, þú átt þennan lykil. Það var hann sem lokaði dyrum hamingju þinnar hér um árið. ” Ég tók við lyklinum og um leið fór ég að gráta og þá vaknaði ég. Með von um birtingu. Stína. Þarna eru sterk tengsl við hugsanir í vökunni sem gætu haft mikil áhrif á ráðninguna. Þó má telja nokkuð víst að þú eigir von á einhverjum breyting- um á lífsforminu og öðlist að einhverju leyti breytt gildismat gagnvart tilverunni. Liðnir atburðir baga þig nokkuð og ekki að ástæðulausu og þar er þín eigin sök mikil- vægasta orsökin. Einhver mistök halda áfram að koma þér í koll og valda ýmsum vandræðum. Margt í draumnum bendir til þess að þetta falli í gleymsku eins og annað og að lokum munir þú fagna nýjum og jafnframt skemmtilegum atburðum. Ráöherra meö bleklínur í andtiti Góðan daginn, draumráðandi! (Ég veit ekki hvernig á að ávarpa svona huldufólk eins og þig!) Mig dreymdi í nótt draum sem var þannig: Mér fannst ég vera stödd á heimili foreldra minna sem búa í sveit, á bœ sem var tvíbýli þangað til fyrir nokkrum árum. Hjá þeim var þá staddur Tómas Árnason ráðherra og frændi hans, sem býr hér í nágrenninu, og fannst mér Tómas vera búinn að kaupa hinn helmingjarðarinnar og vera sestur þar að til að stunda búskap. Ekki kom fram hvort hann yrði þar einn eða með fjölskyldunni. Þeir sátu í eldhúsinu og voru að drekka kaffi og rabba við heimilis- fólkið. Ekki man ég um hvað var talað en mér varð starsýnt á andlit Tómasar því hann hafði dregið línur með tússpenna þvert yfir augabrún- irnar og frá nefinu og út fyrir munnvikin sitt hvorum megin, eins og til að gera andlits- drœttina skýrari. Bærinn heitir . . . og ég þekki Tómas ekki persónulega. Fyrir nokkrum árum dreymdi mig að ég vœri að dansa við Eystein Jónsson, fyrrverandi ráðherra. (Hvað á svona vitleysa að þýða?) Það einkennilega var að þar leit hann út eins og Halldór Péturs- son teiknari teiknaði hann í Spegilinn í gamla daga. Ég þekkti hann ekki þá en hef reyndar dansað við hann síðar. Mér finnst að ef draumar tákna eitthvað þá hljóti þessir að gera það, fmnst þér það ekki? Bestu þakkir fyrirfram. 21 Þessir draumar eru báðir nokkuð skýrir og eru því nokkuð .marktækir, en í raun þarf það þó ekki að tákna neitt sérstakt þótt þig dreymi atburði tengda þjóðkunnum mönnum. í fyrri draumnum er Tómas greinilega tákn einhverra erfiðleika sem þú munt eiga við að stríða í framtíðinni, líklega tengda fjárhagnum. Þarna gæti þig hafa dreymt fyrir fjárskaða á þessum slóðum eða öðrum erfiðleikum í búsýslunni. Nafn Tómasar, svörtu strikin í andliti hans og mörg fleiri tákn benda eindregið til að erfiðleikarnir tengist meira en litið peninga- málum og þér væri heilladrýgst - að fara varlega í að taka áhættu í þeim efnum á næstunni. Siðari draumurinn gæti verið það sem stundum er nefnt að dreyma fyrir daglátum og er þá aðeins fyrirboði þess dans sem þið stiguð saman síðar. Sá draumur tengist einnig ein- hverri gleði og skemmtan og líklega hefur það einnig verið undirstrikun þess að um stundargleði og skemmtun yrði að ræða. 26 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.