Vikan


Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 16

Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 16
Framhaldssaga Copyright 1979byAvery Corman. Avery Corman: Kramer GEGN Kramer NY FRAMHALDSSAGA: Ská/dsaga Avery Corman, Kramer gegn Kramer, var ekki lengi að þjóta í toppsæti iistans yfir best se/du bækur í Bandaríkj- unum. Enda fjallar hún á nærfærinn hátt um tiltölulega nýtt vandamál í mannlegu Hfi eða hvort móðir sem yfirgefur mann og barn á rétt á að koma tveimur árum seinna og krefjast umráðaréttar yfirþessu barni sem á meðan hefur verið í umsjá föður síns. Hún /ýsir einnig innri baráttu móðurinnar áður en hún tekur slíka ákvörðun og baráttu hins einstæða föður við að annast barn sitt á sem bestan hátt jafnframt vinnu sinni á tímum atvinnu- /eysis. Sagan hefur verið kvikmynduð með Dustin Hoffman í hlutverki hins einstæða föður og hefur hann verið tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn. Klúbbur er/endra blaðamanna í Hollywood kaus þessa mynd líka bestu mynd ársins 1979. Dustin Hoffman hlaut Golden Globe verðlaunin sem besti leikari ársins fyrir þetta hlutverk sitt. Meryl Streep, í hlutverki móðurinnar, hlaut sömu verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki. Billy, barnið sem öll baráttan snýst um, er leikinn af Justin Henry. FYRSTI KAFLI H ann hafði ekki búist við að sjá blóð. Flann var alls ekki undir það búinn, hvorki bækurnar eða kennari höfðu minnst á blóð eða brúna bletti á lakinu. Hann hafði gert sér grein fyrir kvölun- um og var tilbúinn til að hjálpa henni til að standast þær. — Ég er hérna, elskan. Svona, notaðu nú öndunaraðferðina, sagði hann eins og til var ætlast, hinn góði hermaður holdi klæddur. — Einn, tveir, þrír, andaðu . . . — Farðu í rassgat, sagði hún. Hann langaði til að vera sá þátttak- andi í eðlilegri fæðingu sem námskeiðið hafði kennt honum að vera. Hin ómiss- andi hjálparhella. En þegar þeir loks hleyptu honum inn til hennar var fæðingin byrjuð. Jóhanna tautaði eitt- hvað út í bláinn: Helvítið þitt. í næsta rúmi lá kona sem ákallaði bæði móður sína og Guð á spænsku, en hvorugt virt- ist tiltækt. — Við skulum anda saman, sagði hann fjörlega. Honum var ofaukið. Jóhanna lokaði augunum og gafst upp fyrir kvölunum. Hjúkrunarkonan ýtti honum til hliðar svo að hún gæti þurrkað upp blóðið og saurinn. Þegar Jóhanna hallaði höfði hans I fyrsta skipti að maga sinum til að hlusta á „Það” sagði hann að það væri krafta- verk. Hann sagði þetta hugsunarlaust. Þetta fyrsta lífsmark vakti I raun og veru engan áhuga hjá honum. Það var hún sem hafði stungið upp á að eignast barn og hann hafði samþykkt það sem eðli- lega þróun á hjónabandi þeirra. Hann varð undrandi er hún var orðin vanfær aðeins mánuði eftir að hún lét fjarlægja lykkjuna. Þetta virtist ekki koma honum mikið við — þetta var hennar hugmynd, hennar barn, kraftaverkið hennar. Hann vissi að hann átti að finna ein- hver tengsl milli sin og efnabreyting- anna sem nú fóru fram í henni. En það sem honum fannst athyglisverðast við þennan nýja líkama hennar var þó ekki lífið sem hún bar heldur hvernig magi hennar þrýstist að kynfærum hans við samfarir. Hann fór að ímynda sér hvern- ig það væri að eiga kynmök við sílspik- aðar konur. Hann starði á þær á götum úti og velti því fyrir sér hvort sá yndis- þokki sem svo margar feitar konur sýna stafaði af örvæntingarfullri sjálfsblekk- ingu eða leyndri vitneskju um ólýsan- lega nautnaþrungin hvílubrögð. Ted Kramer, sem leyfði sér aldrei að doka við sýningarglugga klámkvikmynda- hússins í nágrenni við skrifstofuna sína, skemmti sér við að íhuga hvort það væri fjárhagslegur grundvöllur fyrir klám- myndinni „Ted og akfeita konan”. Á sjötta mánuði steyptist Jóhanna öll út í flekkjum. Læknirinn hennar, dr. Anthony Fisk, er tískublaðið Vogue hafði lýst sem einhverjum besta og eftir- sóknarverðasta kvensjúkdómalækni hins vestræna heims, gaf henni eftirfar- andi ráð: Njóttu sem mestrar hvíldar í rúminu og settu korktappann á sinn stað. Ted og Jóhanna rökræddu um ná- kvæma, læknisfræðilega þýðingu þessar- ar ráðleggingar. Ted sýndi af sér það fljótræði að hringja til læknisins seint um kvöld. Dr. Fisk gramdist þessi ónauðsynlega truflun og hafði enga löngun til að ræða við kartmann, síst af öllu um merkingu orða. Hann sagði að læknisfræðilega hefði hann meint: — Látið hana hvílast sem mest og ekkert hosserí framar. Ted stakk upp á að Jó- hanna skipti um lækni en hún var óhagganleg. Svo að þau skiptu rúminu í tvo hluta og Jóhanna eyddi næstu þrem- ur mánuðum að mestu leyti sín megin eða þar til hún var fullgengin með. Allan þann tíma sýndi Jóhanna engan áhuga á annars konar kynmökum, jafn- vel þó Ted vitnaði í bækling um fæðing- ar sem lagði blessun sína yfir slík til- brigði í samförum: „Mök á milli læra gæti verið góð og heppileg lausn.” Kvöld eitt, eftir að hún var farin að sofa, reyndi Ted að fullnægja sjálfum sér á salerninu á meðan hann einbeitti hug- anum að feitri konu sem hann hafði séð í neðanjarðarlestinni fyrr um daginn. En áður en að fullnægingu kom breytti hann myndinni i Jóhönnu sjálfa til að hafa ekki á tilfinningunni að hann væri að halda fram hjá henni. Þrátt fyrir allt fylltist hann sektarkennd og eftir þetta lét hann sér nægja að fá útrás fyrir þrá sína sem virkur þátttakandi í öllum X6 Vikan X6. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.