Vikan


Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 50

Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 50
Undarleg atvik — Ævar R. Kvaran Arið 1606 varð maður sá hirðstjóri hér á landi sem alþýða íslendinga hefur lengi kallað „Herlegdáð” í háðungar skyni. Hann hét raunar Herluf Daa og var af gömlum dönskum ættum. Danskir rithöfundar hafa gefið honum þann vitnisburð að hann hafi verið hið mesta hrakmenni. Daa lenti brátt i brösum við ýmsa íslenska höfðingja og ekki síst Odd biskup Einarsson í Skál- holti. Herlegdáð ófrægði biskup mjög erlendis og afflutti máf hans fyrir konungi, taldi það einkum, að biskup vígði suma ólærða til presta sem hvorki kynnu latínu né hefðu lært í latínuskóla og gerði biskup þetta, að hans sögn, fyrir venslasakir, vináttu eða fjár. En Oddi biskupi tókst að hnekkja þessum áburði. Ekki var biskup þó með öllu saklaus af ýmsu því sem Daa bar á hann. Þannig veitti Oddur biskup treglega fátækra manna sonum viðtöku í Skálholtsskóla nema með þeim væri lögð jörð eða jarðarpartur, og varð hirðstjóri stundum að sjá um að slíkir menn fengju viðtöku án slíkra afarkosta. Aftur á móti átti biskup einnig gildar sakir á móti hirðstjóra. Fyrst það, að hirðstjóri hafði leyft hjónaband þremenningum ári A ELLEFTU STUND konungs vitundar en móti biskups ráði. Og það annað, að hirðstjóri virðist hafa byrlað biskupi ólyfjan svo hann lá eftir í tvo eða þrjá sólarhringa. En það gerðist með þessum hætti. Eitt sinn um Jónsmessuleytið kom Oddur biskup til Bessastaða. Þá sló Herluf Daa hirðstjóri upp veislu mikilli, þvi þótt fjandskapur mikill væri milli þeirra undir niðri mátti slíkt ekki viður- kennast opinberlega enda urðu þessir æðstu menn landsins oft að eiga samfundi hvort sem þeim var Ijúft eða leitt, bæði á alþingi og ella, og ræðast við um vandamál ýmiss konar. Hlýddi þá ekki annaðen byrgja niðri alla þykkju. 1 veislu þessari var drukkið full konungs og drakk hirðstjóri fyrstur en síðan var hellt á bikar handa biskupi og þó af annarri könnu en þeirri sem hirðstjóri drakk af. Er þá mælt að biskupi hafi verið veitt vísbending af ein- hverjum manna hirðstjóra um að hann skyldi drekka varlega. Þá er sagt að Oddur biskup hafi tekið Skop © ijL’tl-S upp úr vasa sínum silfurbikar einn lítinn, sem hann var vanur að drekka af, mælt nokkur orð og síðan drukkið I botn. En þá hafi svifið að honum og hann fallið í ómegin en sveinar hans borið hann til tjalds síns. Hann hafi legið þar tvær eða þrjár nætur uns hann varð svo hress að verða ferðafær. Þetta endaði með því að biskup tók af miklum ákafa að safna saman skýrslunt um ávirðingar hirðstjóra og voru þær auðfengnar enda mun biskupi hafa áður verið kunnugt um flest það sem aflaga þótti hafa farið. Svo haustið 1617 sendi biskup son sinn, Árna, utan á konungsfund með sakargiftir á hendur Herluf Daa hirðstjóra. Árni var þá ungur að aldri (f. 1592) en hafði áður verið utanlands við nám og gerðist síðan rektor í Skálholti, aðeins tvítugur að aldri. Árni var á þessum árum um margt líkur föður sínum: kappsamur, ákaflyndur og óbilgjarn. Snemma sumarið eftir (1618) komu út hingað erindrekar konungs til að líla á mál hirðstjóra og biskups og svo annarra manna. En Árni kom ekki, hvorki til að færa fram varnir fyrir föður sinn né sjálfan sig móti hirðstjóra. Svo var riðið til alþingis að engar spumir komu af Árna, en hitt þótti sannspurt, að öll Islandsför væru út komin sem hingað áttu að fara það sumar. Svo hófst þingið og var Oddur biskup með böggum hildar, bæði sökunt fjar- vistar sonar síns og af því að hann sá að öll mál myndu falla á þá feðga þar eð öll gögn skorti sem Árni hafði með sér. Nú leið að því að mál þeirra biskups og hirðstjóra áttu að koma til dóms. Þá var kallað tvívegis í lögréttu með stuttu millibili á Árna. En Herlegdáð þóttist nú mjög hafa mál þeirra feðga i hendi sér og meðan leið milli fyrsta og annars kallsins hreytti hann kersknisorðum að biskupi, livað Árni sonur hans væri nú að sýsla. Biskup lét það sem vind um eyru þjóta. En þegar lokið var köllum bað biskup hina konunglegu erindreka að gefa sér litla hvíld meðan hann brygði sér frá og var honum leyft það. Siðan gekk Oddur upp á Almannagjárbrún og litaðist um ef hann mæt.ti sjá eitthvað sér til hugar- hægðar. En víkjum nú sögunni að Árna. Hann dvaldi í Kaupmannahöfn veturinn 1617- 1618 sem fyrr segir. Hann hugsaði þann tíma eingöngu um mál föður síns og sín, að undirbúa þau til alþingis sumarið eftir, en ekkert um hitt að tryggja sér far heim. Herlegdáð hugsaði minna um mála- tilbúnað en um útkomu sína og Árna. Hann réð sér sjálfum far á herskipi þvi sem hinir konunglegu erindrekar komu út á en á hinn bóginn lagði hann blátt bann fyrir ýmsa skipstjóra að þeir flyttu Árna um tslandshaf, en bar fé á aðra til þessaðgera þaðekki. Um vorið, þegar íslensk kaupför létu frá Kaupmannahöfn, gekk Árni milli allra skipstjórnarmanna, fyrst þeirra sem áttu að fara i Sunnlendingafjórðung og siðar hinna sem annars staðar áttu verslunarviðskipti við ísland, en fékk hvergi far því enginn þorði að taka við honum fyrir ráðriki Herlegdáðs. Árni sat þvi eftir af öllum íslandsförum með sárt ennið sem nærri má geta. En þegar ekki var nema vika eftir til alþingis um sumarið var Árna reikað með ströndinni fyrir utan Kaupmanna- höfn. Þá sá hann mann á báti skammt frá landi. Hann kallaði til mannsins og bað hann flytja sig um Islandshaf því lif sitt og virðing föður síns væru í veði ef hann verði ekki til Islands kominn fyrir ákveðinn tima. Og hér tekur við hin kindarlegasta saga. Maðurinn hét honum farinu og sté Árni þegar á ferjuna. Dregur farmaður þá upp segl og siglir um hríð hraðbyri. Þegar stund var liðin spyr formaður Árna hvort nóg gangi. Árni kvað því fjarri fara. Þá herðir farmaður skriðinn á skútunni til muna og fór því fram um stund. Þá spyr farmaður Árna í annað sinn hvort honum þyki skriðurinn nógur. Árni sagði: „Betur má ef duga skal!” Herti farmaður þá enn skriðinn svo Árna þótti skútan nálega flytja kerlingar. Þá spyr farmaður hann hið þriðja sinn hvort Árna þætti skútan ganga nóg. Þá sagði Árni: „Ef guð vill.” Síðan segir ekki af ferðum þeirra fyrr en þeir taka land i Vopnafirði tveim dögum fyrir alþingi. Ekki er (ress getið hvað Árni hafi gefið flutningsmanni sinum fyrir farið né hvernig þeir skildu. En undireins og Árni varð landfastur keypti hann sér tvo úrvalshesta margalda og reið þeim þann dag allan, hann hafði sprengt annan þeirra en gerl hinn uppgefinn þegar hann kom að bæ í Jökuldal. Hann falaði þegar hesta sem dygðu sér til þess að riða á þrem dægrum skemmstu leið hvíldarlaust til alþingis. Honum var vísað á hest á einum bænum þar i dalnum, sem honum myndi duga einhesta ef hann aðeins fengi að drekka. Árni sér þennan hest og er þess ekki getið hvað hann hafi gefið fyrir hann. Hestur þessi var brúnn á lit, mjór sem þvengur og sívalur. Árni tekur hestinn og ríður honum 50 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.