Vikan


Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 38

Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 38
Fimm mínútur með Willy Breinholst Þegar neyðin erstærst...! Það var um kvöld, uppþvott- inum var blessunarlega lokið, vindillinn útdauður, María var búin að taka prjónadótið fram og ég sat með Viggó litla í fanginu og var nýbúinn að ljúka við að segja honum asvintýri. — Þarna sérðu, litli vin, sagði ég eftir hálftíma lestur, nornin fékk .. verðskuldaða refsingu, prinsinn fékk prinsessuna sína og hálft konungsríkið að auki og nú er kominn háttatími fyrir stráka eins og þig. Farðu nú inn í herbergi, háttaðu þig og bjóddu svo góða nött... Tillaga þessi féll ekki í allt of góðan jarðveg. Viggó litli sat sem fastast og fór hvergi. — Heyrðu frændi, röddin var áköf, hvar hittust þið María frænka eiginlega? — Segi þér það seinna! Farðu nú inn að sofa, vinur. — Bjargaðir þú henni kannski úr klóm eldspúandi dreka? — Auðvitað ekki. Að vísu var mamma hennar... ha, ha, ha,.. . nei, nei, drekar eru bara til í ævintýrum. — Hvar hittust þið þá? — Tja... Ég leit snöggt yfir til Maríu. Ég var ekki viss um að hún hefði neinn sérstakan áhuga á þvi að ég færi að segja hverjum sem var frá fyrstu kynnum okkar. — Vertu ekkert að segja stráknum frá þessu, sagði hún. Vissi ég ekki? Hún var þessu mótfallin. — Ég get ekki séð að það sé eitthvað slæmt að segja stráknum frá fyrsta fundi okkar. Eða hvað? Á maður ekki að svara börnum þegar þau spyrja? — Já, en þú færir svo mikið í stílinn. — Færi ég í stílinn? Ég held mig einvörðungu við staðreyndir í öllum frásögnum, það ættir þú að vita manna best! Ég sé enga ástæðu til að þegja yfir þessu. Jæja, vinur, þú spyrð hvar ég hafi hitt frænku þína í fyrsta skipti. Ég skal segja þér frá því! Það var fyrir mörgum árum á fallegu sumarkveldi. Alllengi hafði ég verið yfir mig ástfanginn af stúlku sem hét Jóna. Líkast til hefur hún verið 5-6 árum yngri en frænka þín, há, grönn, ljóshærð stúlka með þau fallegustu au... Þarna greip María inn í. — Ég skil ekki í að þú þurfir endilega að fara svona náið út í öll smáatriði, drengurinn hefur ekki gott af slíku. Það væri nær sanni ef þú segðir honum að þetta hefði verið dvergvaxin gæs með freknur á bakinu. Ég lét sem ég heyrði ekki þessa köldu athugasemd og hélt ótrauður áfram: — Eins og ég sagði fyrr þá var ég yfir mig ástfanginn af þessari Jónu en foreldrar hennar voru á móti ráðahagnum þar sem pabbi hennar var skrifstofumaður en pabbi minn múrari. Vegna þessa fékk ég ekki að koma inn til þeirra og tók það ákaflega nærri mér, sérstaklega vegna þess að ég vissi að Jóna endurgalt ást mína. Já, svona getur margt verið skrýtið í lífinu, Viggó minn. Þó undarlegt megi virðast Stjörnusþá Viulii) líL .jiril 2l.niai T\íl)urarnir 22.mai 21. júní Kr.-.hhinn 22. júni 2T. júli l.jónið 24.JÚIÍ 24. áiíú'l Vertu varkár í peninga- málum því óvænt utgjöld eru á næsta leiti. Lífið verður rólegt næstu vikur svo þu færð góðan tíma til að sinna fjölskyldu þinni og hugðarefnum. Þú skalt endurnýja kunningsskap þinn við fólk sem þú hefur vanrækt lengi. Taktu þig einnig á við þréfa- skriftir því vinur þinn er í vandræðum og þarf á þinni hjálp að halda. Þú ert óánægður með þitt hlutskipti nú sem stendur en bíddu bara, þitt tækifæri kemur. Þér býðst tækifæri að láta ljós þitt skína, taktu því boði fegins hendi. Þú ert mjög rótlaus um þessar mundir og með miklar ráðagerðir á prjónunum. Rasaðu samt ekki um ráð fram því þá áttu á hættu að missa það sem þér er kærast. Láttu fjölskyldu þína ekki blanda sér um of í málefni þin. Miklar breytingar eru fram- undan og ef þú stendur ekki á eigin fótum nú áttu á hættu að missa með öllu sjálfstæði þitt Þér finnst þú ekki sjá fram úr verkefnum en ef þú tekur á þig rögg tekst þér að ljúka þeim öllum. Skemmtu þér um helgina, þú átt það vel skilið. Þú stendur frammi fyrir því að þurfa að taka mikilvæga ákvörðun. Hlustaðu á rödd skyn- seminnar og láttu ekki tilfinningarnar hlaupa með þig í gönur. Þú hefur haft það mjög gott undanfarið en framundan er mikið annríki. Þér býðst að fara í ferðalag, taktu því boði því óvist er að annað eins tækifæri bjóðist. Ho|fniaúurinn 24.nó\. 2l.dcs Þú ert nokkuð fljótfær og verður að gæta þess að dæma fólk ekki fyrir- fram. Þú tekur þátt í hættulegum leik og verður þess vegna að taka afleiðingum gerða þinna. Slcingcilin 22.dcs. 20. jan. Gott álit á þér út á við sakar aldrei. Gættu þess vegna að því hvað þú segir í fjölmenni og mundu að veggirnir hafa eyru! Helgin er góð til ferðalaga. \alnshcrinn 2!.jan. I'l.fchr. Nokkurt róterá tilfinningalífi þinu. Það er alltaf best að tala út- um hlutina strax, annars hlaða vandamálin utan á sig og verða miklu stærri en ella. Þú.ferð með s'gur af hólmi í ákveðnu deilu- máli. Láttu velgengnina ekki stíga þér til höfuðs, hugsaðu rökrétt og hlæðu jafnhátt að ósigrum þinum eins og sigrum. 38 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.