Vikan - 17.04.1980, Side 9
15. Halti haninn
mmm
Kaffi
Kaffið á Halta hananum reyndist
hlutlaust og sæmilegt. Verðið var 400
krónur.
Langur seðill
Matseðillinn á Halta hananum er
óvenju iangur. Fyrir utan pizzur,
hamborgara og ýmsa smárétti má telja á
honum tæplega 30 aðalrétti. Það er
greinilega of mikill fjöldi fyrir svona
lítinn stað, þótt margir réttirnir séu
tilbrigði við sama stef.
Einkunnir
nokkurra veitingahúsa
Marg- Loft- Halti
feldi Saga leiðir Holt Naust Hornið Laugaás Versalir Skrínan Múlakaffi haninn
Matur X5 8 6 9 4 6 7 7 4 6 5
Þjónusta X2 9 6 7 9 8 6 8 X X (1)
Vinlisti XI 6 6 6 4 X X 7 X X X
Umhverfi X2 7 7 7 9 8 7 8 7 5 8
Samtals X10 78 62 79 60 62 61 74 34 40 43
Vegin mpðaleinkunn _ Meðalverð aðal- rétta í krónum: 8 8.500 6 8.300 8 8.100 6 8.000 6 3.600 6 3.600 7 6.900 3 4.200 4 3.800 4 4.400
sterkt, sérkennilegt, ljósrautt og' vont.
Frönskum kartöflum hefur áður verið
lýst, svo og hrásalatinu. Ofan á réttinum
hvíldi skelfilegur hlaði af dósasveppum.
Verðið var 4.320 krónur.
Turnbauti
Turnbauti með béarnaise-sósu og
ristuðum sveppum var þrælsteiktur og
safalaus, en ekki seigur og hélt nokkru af
upprunalegu bragði. Sósan var ein af
þessum, sem tæpast hniga, mikið
krydduð, en ekki beinlínis vond.
Frönskum og hrásalati hefur áður
verið lýst, svo og hlaðanum af dósa-
sveppum.
Verðið var 6.500 krónur.
ís
lsinn kom beint úr pakkanum og var
sæmilegur, en ég kunni hvorki við hina
sterku bragðsósu né niðursoðnu
ávextina, sem velja mátti um. Verðið á
fyrri gerðinni var 600 krónur og 650
krónurá hinni síðari.
Á matseðli dagsins eru tvær súpur og
tveir aðalréttir. Sé valið af honum ætti
tveggja rétta máltíð að kosta að
meðaltali 4.300 krónur og 4.700 krónur,
ef kaffi er meðtalið. Það er nokkuð hátt
verð.
Á fastamatseðlinum var verð sex
smárétta að súpum dagsins
meðtöldum 2.200 krónur, 28 aðalrétta
4.400 krónur og ýmissa ísa í eftirrétt 600
krónur. Þriggja rétta máltíð af fastaseðli
ætti þvi að kosta að meðaltali 7.200
krónur og 7.600 krónur að kaffi
meðtöldu.
í grófum dráttum má því segja, að
Halti haninn sé í sama verðflokki og
Skrínan, Askur og Esjuberg, dýrari en
Matstofa Austurbæjar, Múlakaffi,
Laugaás, Hornið og Brauðbær.
Matreiðslan á Halta hananum fær
fimm i einkunn og umhverfi og andrúms-
loft átta i einkunn. Þjónusta er ekki
veitt, en fyrir þægilega afgreiðslu fær
staðurinn aukaprik. Vegin meðal-
einkunn staðarins er fjórir.
Jónas Kristjánsson
í næstu Viku:
Skútan
16. tbl. Vikan 9