Vikan - 17.04.1980, Qupperneq 29
L AUT>W|ÐU.S- ( 5TofV.i
y RE/rufK i= 2. L^></CJ.U(S.. pG-;2 UM
UAUTJiyiÐUR I USTÓXUM
. ;i AEiTUfi. = a.X'VwjuíL o»;2 umt
T-!;
T4 3X rs o n e> . : ; i; i; ] r:
I. a.EITUH - 2 IVKKJUK. OG Z'UMT
:I:h! Ifi ll-n írrif ! í| ; -íf H.Hm.H:
4.1 H-l-H r H i j±L
Vfff m riM-i-H-f-h
Úrtökurnar eru aðallega í byrjun
1. og 3. prjóns og við endi 2.
prjóns og 4., 2 I. eru fyrir utan
úrtökurnar á hverjum prjóni.
Á þumlinum eru 40 I. (20 I. á
hlið). Þegar komnar eru 14 umf.
mórauðar eru prjónaðir stuðlar,
svartir og mórauðir, 2 umf.,
siðan 1 umf. svört, þá bláir og
rauðir stuðlar 2 umf., síðan 1
umf. svört og síðast aftur
mórauðir og svartir stuðlar. Eftir
þaðeru prjónaðar 14 mórauðar
umf. undir úrtökur. Teknar eru
úr 4 I. í umferð: 1 I. á hvorum
jaðri og 2 neðan á fingur-
gómnum, þar eru 4 I. á milli
úrtaka. Prjónaðar eru yfir einu
sinni 3 umf., einu sinni 2 umf. og
einu sinni 1 umf. Totan er svört,
4 síðustu umferðirnar á
þumlinum.
Þessir vettlingar voru
prjónaðir á fína prjóna, líklega
nr. 1 1/2. í þá var notað fínt,
tvinnað band úr góðu þeli, fallega
mórauðu.
Uppskriftin er frá Jóhönnu
Kristjánsdóttur, Kirkjubóli.
úr henni svört lauf í mórauðu, 6
umf. í byrjun þeirra og endi er
aukið í 1 I. á prjón (27 I.).
Nú er stofninn búinn og er þá
prjónað í fyrir þumlum. 20 I. eru
prjónadar með mislitu bandi á 1.
og 3. prjóni en 7 fyrstu
lykkjurnar á þeim eru færðar
óprjónaðar. Þetta er hægri
handar vettlingur. Á vinstri hendi
er prjónað í á 2. og 4. prjóni og
þá eru þaðsiðustu lykkjurnar 7
sem ekki eru prjónaðar. Hér
tekur gripinn við, einlitur
mórauður, 62 umferðir. Þá
byrjar aftur útprjón með
svörtum laufum eins og stofninn
endaði á. Búiðer aðfækka um
1 I. á prjóni 6 umf. áður, svo 26 I.
eru á prjóni eftir laufunum. Á
eftir laufunum er 1 umf. svört,
síðan koma 4 umf. taflborð, blátt
og rautt, og eru í því 25 I. á
prjóni. Á eftir því kemur 1 umf.
svört, síðan koma 2 umf. gular,
þá 1 rauð og síðan kemur 8
umferða laufaviður, blár é
svörtum grunni, með 22 I. á
prjóni. Þá er fækkað 2 I. á 1. og
3. prjóni, þegar komnar eru 6
umf. af laufaviðnum, þannig að
þaðverði 7 I. bláarsaman í
siðustu 2 umf. í staðinn fyrir 8 I.
Þá kemur 1 umf. rauð 1 gul cg 2
svartar. Næst eru stuðlar, rauðir
og bláir, með 18 I. á prjóni, síðan
1 umf. svört og siðan stuðlar,
svartir og mórauðir, með 15 I. á.
Þá eru prjónaðar 6 umf.
mórauðar, i lok þeirra eru 10 I. á
prjóni. Þá koma 2 umf. bláar og
siðast 5 umf. svartar. Að lokum
er dregið í gegnum siðustu
lykkjurnar 2 á hverjum prjóni.
Hlýir vettlingar með
fallegu mynstri eru
jafnnauðsynlegir i
öræfa-útilegum á
sumrin sem í frost-
hörkum á vetrum.
ViKan 29