Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 30
Viðtal Vikunnar
Björgvin Halldórsson — stjarna í
12 ár og enn á toppnum
Björgvin, Oddur Hrafn, Svala og
Ragnheiður.
— Ég er fæddur 16. aprí/ 1951 og
er því í hrútsmerkinu. Hrúturmn
er besta merkiö, hrútar eru
ráðríkir, yfirieitt ieiðtogar, gáfaðir
og skemmtiiegir. Ómar
Valdimarsson, Styrmir Mogga-
ritstjóri og Betty Davis eru öii
hrútar.
,,Börnin hafa mikið að
segja, ég er bæði
rólegri og rómantískari
en ég var. ”
Björgvin Halldórsson segir að síðustu
12 ár hafi verið góð ár. Þó hann hafi
ekki lokið nenia skyldunni i skólakerfinu
er hann sannfærður um að hann hafi
ekki lært neitt minna en margur annar:
— Auðvitað hef ég lært mest af þeini
mönnum sent ég hef unnið með og þeir
eru ekki svo fáir og svo verður að hafa
það i huga að sá poppsöngvari sent
ætlaði sér að fara að læra söng. hann
yrði hundónýtur i rokkinu eftir það.
Klárt mál.
Björgvin var i upphafi ferils sins það
sem kalla mætti uppreisnarunglingur.
Allar götur síðan hefur Itann haldið sig
við sama starfann, sungið og leikið fvrir
landann en nú bregður allt í einu svo við
að Björgvin er orðinn góðborgari og
hefur þó i fáu breytt hegðan sinni.
Sjálfur segist liann vona að kalla mætti
sig góðborgara, alla vega borgi hann
nógu mikla skatta. Þessu fylgir tvirætt
fe|ott. Já. hvað hafði hann í skatta á sl.
ári?
— 700 þúsund kall. Ég skulda svo
mikið, varaðkaupa ibúðogsvoleiðis.
30 Vikan XO.tbl.
Já, ibúðin. Björgvin býr i litilli. nýlegri
blokk i Hafnarfirði ásamt konu sinni,
Ragnheiði Reynisdóttur. og tveimur
börnum þeirra, Svölu sem er þriggja ára
og Oddi Hrafni sem er rétt hálfs árs.
Fyrir þá sem eru nógu forvitnir getum
við upplýst að Björgvin á einn son frá
fyrri tið, Sigurð Þór sem nú er 8 ára.
Ragnheiður. sern er þrentur árum yngri
en Björgvin, segist ekki ntuna þá tið
þegar maður hennar var kosinn
poppstjarna ársins við ntikil fagnaðar-
læti í Laugardalshöllinni sælla
minninga.
— Ég var svo miklu yngri en-hann.
segir Ragnheiður. ég lteld að það hafi
verið stelpur á hans reki sem voru
spenntar fyrir þessu. Eða er það ekki?
— Nei, nei, segir Björgvin, stelpurnar
sem voru skotnar i okkur voru alltaf
yngri en við, svona þremur árum eða
svo.
— Nú. segir frúin, þá hef ég bara
niisst af þessu öllu saman.
Rokksöngvarinn Björgvin hefur í æ
rikari mæli snúið sér að rólegri og
melódískari lögum upp á siðkastið eins
og alþjóð hefur kannski tekið eftir.
Ástæðan?
— Ég kann nú enga eina skýringu á
því. Að vísu hlusta ég mikið á country-
tónlist og aðra rólega músík, mér finnst
það best þegar ég kem þreyttur heim á
kvöldin. Hún er afslappandi, lögin róleg.
textarnir auðmeltir og einfaldir en oft á
tiðum þó nokkuð glúrnir. En ætli þessi
nýja stefna hjá mér komi ekki í beinu
framhaldi af rólegra lifi sem ég hef lifað
eftir að ég gifti mig og eignaðist börn. Þá
verður maður rómantískari, börnin hafa
rnikið að segja — en eins og ég sagði þá
geri ég mér ekki nákvæma grein fyrir
hvernig á þessu stendur. Ég geri mér
fulla grein fyrir þvi að ég er að eldast en
samt hef ég enn gaman af þvi að taka
eitt og eitt rokklag þegar þannig stendur
á.
1