Vikan - 17.04.1980, Side 37
ingum þess. Auðvitað eru aðrar
verslanir líka með gott Orval og
þjónustu.
Ef við hugsum okkur að kaupa
poka, sem best hentar íslenskum
aðstæðum, mundum við velja
svokallaða heilsárspoka. Það
væri fiber- (kolofil) eða dúnpoki.
Það má fá ^oka með mismiklu
dúnmagni. En hæfilega hlýr og
notalegur mun sá poki vera sem
er 1 kg. Gallinn við dúnpokana er
þó sá að þeir eVu viðkvæmari
fyrir raka en p^kar úr gerviefni
og lengi að þorria ef þeir blotna.
Það er líka vafasamt að rétt sé
að þvo þá, en poka úr gerviefni
setjum við einfaldlega í þvotta-
vélina og þvoum við 40 gráðu
hita.
AAikill verðmunur er é dúnpoka
og poka úr gerviefni. Verð á
dúnpokum er allt frá 72 þúsund
upp í 130 þús. En verð á pokum
úr gerviefnum er allt frá u.þ.b.
16 þúsund og upp í 50 þúsund.
Þetta getur þvi orðið dálitið
álitamál, þegar komið er inn i
verslun þeirra erinda að fé góðan
poka.
Sjálfsagt vekur það undrun að
pokar úr gerviefnum skuli vera
hlýrri en ullarkembupokar. Við
islendingar höfum nú alltaf haft
svoddan trölIartrú á ullinni. En
tæknin er nú einu sinni svo
makalaus að öll þessi trefjaefni
skáka ullinni.
Auk þess að vera hlýrri eru
pokarnir úr gerviefnunum léttari
og það er afar mikilvægt að vera
með léttan poka fyrir þá sem
ætla að ganga um fjöll og firnindi
með bakpoka og viðleguútbúnað.
Ef við t.d. berum saman hvor
sé hlýrri dúnpoki eða fíberpoki
(jafnþungir) Þá fær dúnpokinn
hærri einkunn. En hann bælist
meira en fíberpokinn og það er
því þægilegra að liggja í fíber-
poka. En auðvitað þarf þaðekki
að skipta máli ef viðerum með
góða svefndýnu.
Þvottur er nauðsyn
Margoft munið þið hafa heyrt
að ekki megi þvo svefnpoka. En
þetta er firra. Langflesta svefn-
poka má þvo og bráðnauðsynlegt
að gera slíkt stöku sinnum.
Svefnpokar verða fyrir ýmsu —
fólk svitnar, pokarnir geta
blotnað, í þá lendir kannski
matarsull og margs konar
óhreinindi.
Auðvitað ber að reyna aðfara
vel með dýra gripi eins og
svefnpoka. T.d. má hlífa þeim
með því að sofa alltaf í náttfötum
og einnig má nota pokalak. En
það eru fæstir sem kæra sig um
að þyngja byrðarnar með lökum
þegar gengið er á fjöll. Því eiga
þau betur við þegar ferðast er á
milli í bíl.
Segjum nú að þið þurfið að þvo
pokann ykkar. Best er þé að
stilla þvottavélina á 40 gráðu
hita. Vindið pokann vel í vélinni
og ef mögulegt er þurrkið þið
hann í tauþurrkara. Ef um
dúnpoka er að ræða þarf að
hrista hann vel við og við meðan
hann er að þorna. Ef hann er
ekki hristur er hætta á aö
dúnninn þorni í klumpum og
pokinn verði verri á eftir.
Dúnpokar eru miklu lengur að
þorna en gerviefnispokar.
Gerviefnispokar eru 4 til 5 tíma
að þorna, hangandi við 35 stiga
hita. En dúnpoki er 12 til 14 tima
að þorna við sömu aðstæður.
Því miöur er ekki viö því að
búast að pokarnir séu jafngóöir
og nýir eftir þvott. Því skal brýnt
fyrir fólki að fara vel með þá svo
ekki þurfi að þvo þá miög oft.
Að setja pokann sinn í
hreinsun
Einhver kann að hafa spurt
undir þessari lesningu því í
ósköpunum sé ekki minnst á þá
hagkvæmu lausn að labba með
óhreina pokann undir hendinni i
næstu hreinsun. Ekki mikið þó
menn spyrji. En raunar er þetta
ekkert snjallt. Það er alls ekkert
gott að skriða niður i poka sem
farið hefur í hreinsun og angar af
kemískum efnum. Og pokinn
verður bara alls ekki nógu
hreinn, þrátt fyrir allt. Þvottur i
sépu og mörgum skolvötnum er
það eina sem skilar hreinum og
finum svefnpoka.
Lengd svefnpokans
Það er alls ekki nóg að huga að
efni pokans. Lag hans og önnur
gerð, s.s. saumaskapur, skiptir
auðvitað ekki svo litlu máli.
Athuga ber vandlega mél
pokans og jafnvel er gott að fá að
máta gripinn. Það gefur auga
leið að maður sem er næstum 2
metrar að lengd þarf aðra lengd
af poka en sá sem aðeins er 1.60
metrar að lengd. Þeir sem eru
dálitið þriflegir á vöxt ættu líka
að gæta að þvi hvort þeir geta
troöiö sér með góðu móti í
pokann sem þeir hafa augastað
á. Það getur gengiö svo langt að
semia verði við framleiðanda um
yfirstærð!
Þeir sem eru yfir 1.80 m á hæð
ættu ekki að hika við að máta
poka sem þeir ágirnast. Fólk
sem er undir þeirri hæð þarf
sjaldnast að vera hrætt við að
lenda á of litlum poka.
Yfirleitt er rétt að bæta 10 sm
viö eigin líkamshæð þegar hugað
er að 'hve langur pokinn þarf að
vera. Gott er að geta teygt vel úr
sér en samt má ekki vera neitt
óþarfa pláss. Best er að hetta sé
á pokunum, sem hægt er að
draga upp yfir kollinn þegar
verulega kalt er í veðri. Ef
manni er kalt é höfðinu er manni
lika kalt um allan likamann.
Athugið líka vel frégang við
rennilás og efni hans. Bestu
lásarnir eru úr plasti og
nauðsynlegt að þá sé hægt að
opna bæði innan og utan frá.
Athugið einnig að við lásinn sé
breiður renningur sem varnar
því að loft komist inn í pokann
meðfram lásnum.
Svefndýna og svefnpoki
Þvi má ekki gleyma aðsvefn-
dýna og svefnpoki bæta hvort
annað upp ef svo má segja. Ef
dýnan er léleg, er næstum sama
hve góðan poka þú hefur, þér
getur varla liðið nógu vel. Dýnan
verður aðeinangra vel. Hægt er
aðfá m jög góðar dýnur, þunnar
og léttar, sem einangra vel. Þær
eru úr plasti og draga ekki til sín
raka.
Þegar poki er keyptur ætti að
huga að dýnu um leið.
Eitt sem ekki er síður mikil-
vægt er pokinn utan um svefn-
pokann. Fyrir þaðfyrsta verður
slikur poki að vera vatnsþéttur
og einnig svo rúmur að dýnan
komist fyrir ásamt pokanum.
Reynið alltaf eftir fremsta
megni að verja útbúnað ykkar
fyrir raka og munið að eftir
hvert ferðalag er algjör nauðsyn
að viðra svefnpokann og dýnuna
og aldrei má ganga frá viðlegu-
útbúnaði í geymslu nema hann sé
þurr og hreinn.
Þeim sem ætla að festa kaup á
svefnpokum á næstunni er
ráölagt að leita til sérfróðra um
val poka og dýnu. Fólk sem vant
er feröalögum hefur oft mikla og
góða þekkingu á slíkum útbúnaði,
auk þeirra sem versla með þessa
vöru.
16. tbl. Vikan 37