Vikan - 17.07.1980, Blaðsíða 62
Pósturinn
v,.
Lítil með feitt
hár
Kæri, elskulegi Póstur!
Ég þakka fyrir allt gamalt og
gott í þessu indœla tímariti.
Þannig er mál með vexti að ég
var með sítt hár og þurfti ég þá
að þvo mér tvisvar í viku. Svo
lét ég klippa mig og þá byrjaði
hárið á mér að fitna og fitna.
Éger orðin óþolinmóð, ég er
alltaf að reyna eitthvert nýtt
sjampó en alltaf er hárið á mér
fitugt. Veistu um eitthvert
æðislega gott sjampó fyrir feitt
hár.
Ein lítil með feitt hár.
P.S. Hvað á ég að vera þung ef
ég er 150 cm á hæð? (Ég er
svo óskaplega lítil.)
Fyrsta skrefið til að ráða við
hárfituna væri líklega að setja í
hárið permanent. Það þurrkar
hárið og gerir það á flestan
máta viðráðanlegra. Þú getur
valið um hversu sterkt perman-
entið yrði og hvort það væri
um að ræða miklar krullur um
allt höfuð eða mjúka liði. Ef
hárið fitnar ennþá um of skaltu
kaupa sjampó sem einkum er
ætlað fyrir feitt hár. Skiptu oft
um tegund og notaðu helst
tvær til þrjár tegundir til skipt-
is.
Hæfileg þyngd fyrir þig gæti
verið frá 47 kílóum og upp í 53
eftir beinastærð.
Alveg að
brjálast
Kæri Póstur!
Þetta er í annað skipti sem
ég skrifa og ég vona að þú
gefir mér gott svar eins og
síðast. Þá kemur vandamálið:
Éger 15 ára og búin að vera
með strák í viku. Vandamálið
er að ég er ekkert hrifin af
honum en hann er alltaf að
reyna við mig. Ég er frekar
feimin og get ekki sagt honum
að láta mig í friði og er þá með
honum. Ég er alveg að brjálast.
Hann kemur oft heim að sækja
mig og vill oft bjóða mér á
ball. Elsku Póstur, hvernig get
ég loHnað við hann? Allir vinir
mínin-eru að spyrja hvort ég sé
á fösfli. Þá segi ég nei. En
þegar hann er spurður segir
hann já. ;Mig langar alls ekkert
að verU með honum því ég er
hrifin af strák sem er 17 ára.
Ég hef 'nokkrum sinnum verið
með hohum. Þá var hann
hrifinn af mér og ég held að
hann sé það enn. Eg verð að
krækja aftur I hann og losna
við hinn. Elsku Póstur, hjálp-
aðu mér. Mér liggur á svari og
grátbið þig að svara mér.
Bæ, bœ. Ein I vanda.
Það er ekki nema um eitt að
ræða — láttu þennan aðdá-
anda þinn vita að áhugann
vanti frá þinni hálfu. Forðastu
samt að láta of marga fylgjast
með því sem er að gerast því
það er ástæðulaust að særa til-
finningar annarra ef hægt er að
komast hjá þvi. Þú getur treyst
því að hann verður furðu fljót-
ur að jafna sig og gleyma því
að einu sinni hafi honum fund-
ist þú bera af öðrum jafnöldr-
um. Það væri mjög óheiðarlegt
frá þinni hálfu að nota hann
sem eins konar varaskeifu þar
til þér tekst að krækja í eitt-
hvað annað og betra og þvi
ykkur báðum fyrir bestu að
útkljá málin sem allra fyrst.
Ást við fyrstu
sýn
Hæ, hæ, elsku sæti Póstur!
Eerðu nokkuð hjá þér þegar
ég segi sæti? Jæja, best að
koma sér að efninu. Ég sá
strák á Þingvöllum sem var
æðislega sætur (það var ást við
fyrstu sýn). Ég bara starði á
hann í lengri tíma, síðan tók
hann eftir því og ég fór hjá
mér. En elsku Póstur, ég veit
ekkert hver hann er eða hvar
hann á heima. Get ég nokkurn
tímann komist að því? Hvað
myndir þú gera? Ekkert?
Ein mjög ástfangin.
Pósturinn fór ekkert hjá sér og
gat með naumindum stillt sig
um að hlaupa að næsta spegli.
Jahá, ást við fyrstu sýn!
Eiginlega er ástæða til að óska
62 Vikan 29. tbl.