Vikan - 17.07.1980, Blaðsíða 43
Skop
MEYJAR-
FÓRNIN
Andlitsdrættimir eru kvenlegir, en hann
getur ekki verið alveg viss vegna víðra
skikkjanna...
Þrir einhentir menn.
Tvær konur (?).
Tólf frá útlöndum. . . En það voru
þrettán í hópnum, sem kóm að utan.
Leopold Marsini prins er ekki lengur í
fylgd meðþeim.
Fólkið stendur kyrrt, eins og það sé að
bíða eftir einhverju. En eftir hverju?
Clive Ritzell? Léopold Marsini? Það
virðast lítil samskipti milli manna
innbyrðis.
Á altarinu er naumast hægt að greina
ímynd Ian Wall í glerkistunni fyrir skor-
dýragerinu, sem skriður óstöðvandi yfir
hann.
Hassall lítur á úrið sitt. Næstum sjö
minútur síðan þeir fóru frá hinum.
Hann er að því kominn að gefa merki
um að snúa við, þegar hann finnur kippt
þéttingsfast I líflínuna. Hann snýr sér
við og sér, hvar Chris Wavell losar
línuna sin megin og færir sig úr stað með
snöggri fótasveiflu. 1 sömu andrá miðar
hann skutulbyssu sinni til hægri við
Hassall, fyrir ofan hann og aftan. Líf-
linan hangir laus. og Hassall snýr sér
leiftursnöggt um leið og Wavell skýtur.
Skutullinn skýst gegnum vatnið og næl-
onþráðurinn sem er festur við hann fylg-
ir á eftir. Hassall fylgir skutlinum eftir
með augunum og eitt andartak trúir
hann ekki eigin skilningarvitum.
í myrku vatninu handan Ijóskeilunn-
ar er risavaxinn fiskur. enn stærri en
þeir er þeir liafa áður séö. og
hangir I vatninu fyrir ofan þá og i norð-
austri. Skepnan er svo stór, að þó glöggt
megi sjá haus og skolt í mildri birtunni
frá hvelfingunni, er meginhluti
skrokksins ógreinanlegur I dimmunni að
baki.
Um leið og Hassall litur upp á fiskinn
sér hann skutulinn skjótast framhjá
markinu og hverfa i mjúkum boga niður
á við i átt til botns. Það finnst skyndileg
bylgja þrýstings. þegar skepnan bærir á
sér. Hann lyftir sinni skutulbyssu og los
ar öryggislæsinguna. En á þeim fáu
sekúndum. sem þessar ósjálfráðu
hreyfingar taka. kastar óargadýrið sér á
fram og skellir hvasstenntum. mikluni
skoltunum um háls og axlir Wavells.
Wavell á sér enga von. Beittar tennurn-
ar smella i gegnum grimu og hettu.
Öökkt blóð streytnir i mildu gullnu Ijós-
inu frá hvelfingunni.
Risaskepnan kafar og tekur
líkama Wavells með sér. Hassall skýtur
og sér skutulinn hitta skepnuna í
hnakkann. Vegna orða Vespucci um
fiskana voru skutlarnir búnir sterkum
deyfilyfjum. og svo framarlega sem
skammturinn er nægilega sterkur til að
verka á svona óvænta risastærð hægir
illfiskið brátt á sér og flýtur upp á yfir-
borðið. En efnafræðingarnir bjuggust
Eftirtalin eyðublöð bjóðast nú auglýsendum ókeypis hjá smáauglýsingaþjonustu Dagblaðsins
1. Vegna bifreiðaviðskipta: 2. Vegna lausafjárkaupa;
Sölutilkynningar, tryggingarbréf og víxileyðublöö auk
afsalseyðublaða og fjölritaðra leiðbeininga um frágang
bifreiðaviðskipta, sem við höfum lengi boðið.
Kaupsamningar og víxileyðublöð
3. Vegna leigu íbúðarhúsnæðis:
Húsaleigusamningar.
BÍABIB
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022
19. tbl. Vlkan 43