Vikan - 16.07.1981, Síða 2
Vísindin eru leikur einn
Einföld veðurathugunartæki
Flöskuloftvog. Spennið blöðrugúmmí
yfir flöskustút og festið með teygju eða
vír. Límið annan endann á sogstrái fasl
an við blöðrugúmmíið með límbandi.
Brjótið smábrot í sogstráið á þeini hluta
sem liggur yfir gúmmíinu og setjið eld-
spýtu þar undir, það er að segja milli
sogstrásins og gúmmisins.
Sogstráið hreyfist upp og niður eftir
loftþrýstingi. Þegar veðrið er gott eykst
loftþrýstingur, gúmmíið á flösku-
stútnum þrýstisl niður og sogstráið
lyftist.
Lækki loftþrýstingur þenst loftið i
flöskunni út og þrýstir á gúmmíið
þannig að sogstráið sígur niður i lausa
endann.
Komið loftvoginni fyrir á stað þar sem
hitastig er nokkuð jafnt og festið kvarða
á vegginn.
Besti C-vítamíngjafinn eru appelsinur,
milliliðalaust. Þetta kemur fram í grein
í sænska neytendablaðinu Rád och
Rön. Ef menn kæra sig um C-vitamin-
rikan appelsinusafa er best að kreista
appelsínuna ekki fyrr en drekka á
safann. C-vitantínið er nefnilega
viðkvæmasta vítaminið og þvi er
hættast við að rýrna umtalsvert. Smá-
sólskin á safann eyðir C-vítamininu —
og á 90 minútum minnkar það um
helming.
Finnst þér gott að blanda safann af
því hann er ivið of sterkur? Hugsaðu
þig vel um áður. — C-vítaminið verður
viðkvæmara el' safinn er blandaður.
Ágætis „morðvopn” er til dæmis
koparinnihald vatnsins. (Þetta er miðað
við sænskar aðslæður. Hjá Gunnlaugi
Elíssyni efnafræðitigi hjá Iðntækni
stofnun fengust þær upplýsingar að
koparinnihald íslensks vatns væri mjög
litið frá náttúrunnar hendi en liins
vegar gæti það aukist þegar valnið fer
um leiðslur, kopar væri m.a. nolaður i
„fittings" og krana viða. Þelta ætti
einkum við á morgnana þegar vatnið
hefði legið í leiðslunum yfir nólt.l
C-vitamínið cr fljótt að eyðast.
Rannsóknir sýna að í koparmenguðu
vatni getur C-vítamin rýrnað um 30%
á 20 mínútum.
Þar að auki borgar sig að drekka
safann á undan öðru. Ef hann er
drukkinn um leið og kaffi og te glatast
eitthvað af C-vítamíninu jafnharðan.
Þarf maður svo eitthvað sérstaklega
á þessu vitamíni að halda? Já.
auðvitað. Til dæmis er auðveldara fyrir
likamann að vinna það járn sem
nauðsynlegt er úr fæðunni ef C
vitamínið er nóg og þar með að halda
blóðinu í lagi. En ennþá er margl sem
ekki er vitað um C-vítaminið.
Ferðadiskó-
tekið
Rocky
„Það er alltaf markaður ef maður er
nógu sniðugur," segir Grétar Laufdal,
eigandi Ferðadiskóteksins Rocky, sem
er búinn að koma sér upp viðamesta
útbúnaði ferðadiskóteka hér á landi, að
því er hann best veit. Hann er ráðinn i
sumar í Glæsibæ og leggur þar til
tónlistina, en ekki tækin, og i haust fer
hann af stað með diskótekið og ætlar
að spila í skólum og á árshátíðum og
auk þess sér hann fram á að hægt sé
að nota tækjabúnaðinn á ýmsa vegu,
við leiksýningar, á útisamkomum, við
hljómleikahald og yfirleitt eftir því sem
hugmyndaflugið endist. Þá er hægt að
nota annaðhvort Ijósabúnaðinn eða
tækjabúnaðinn l’yrir tónlistina (sem öll
er á snælduml eða hvort tveggja.
Hann ætlar að ráða einn eða tvo
með sér, þegar hann er kominn i gang,
því það er heilmikið fyrirlæki að konia
svona miklum búnaði upp.
„Það tekur einn mann hálfan dag að
koma öllu fyrir," segir Grétar.
Það er ekkert undarlegt þegar haft
er í huga að 600 metrar af snúrum eru
meðal þess sem þarf i svona diskótek.
Grétar leitaði til 50-60 manna út af
hönnun og uppbyggingu diskóteksins
og það fólk veitti honum mikla aðstoð.
Hann er nteð sérhannað Ijósaborð, það
stærsta sem Sameind hefur smíðað.
Það er tólf rása og tólf vatta, svona
fyrir þá sem skilja þau hugtök. Og i
þvi eru 36 kastarar, 10 vatta, 2
sírenuljós og ein Ijósaslanga sem hægt
'er að tengja öll diskóljós við (miðað við
240 volta spennu). „Möguleikar á
Ijósaprógrömmum eru ótakmarkaðir,"
bætir Grétar við.
Hann er með alls kyns tónlist, rokk,
diskó, soul, country, islensk lög, bæði
gömul og ný, og fleira. Hann notaði
diskótekið fyrst i april í Templara-
höllinni og siðan hefur hann leikið í
einkasamkvæmum og verið stórvel
tekið. Undirbúningurinn hófst i
desember I vetur og í haust fer hann á
fullu af stað.
„Ég er ekki i Félagi ferðadiskóteka
og þess vegna er taxtinn hjá ntér ekki
eins hár," segir Grétar. Honuni finnst
það mikilvægt til að komast vel af
stað. Seinna langar hann að bæta enn
við búnaðinn, la tvö 150 vatta borð i
viðbót. flassljós, þokuvél (reykmaskínu)
og sápukúluvél. Það verður spennandi
að fylgjast með.
Sendið vísur!
„Einu sinni
átti
Einu sinni álti liesl
allan settan röndum.
Þad rar sem mér þótti verst
þegar hann stód á höndttm.
Hafa lesendur fleiri útgáfur af þessari
vísu í handraðanum? Skrifið okkur og
við birtum þær bestu. Munið að gott
framlag á aðra og þriðju siðu í
Vikunni verður til þess að sá heppni
fær send fjögur næstu tölublöð af
Vikunni ókeypis.
Einkamál
Vil kynnast ungrí konu
sem á í vandræðum og vift róttækar
breytingar á þeim. Svar leggist inn á
afgr. DB fyrir 5. júlí merkt „2 + 2".
Skyldu vandræðin verða skárri
vandræði — eftir róttækar
breytingar á þeim?
C-vítamín er
best úr
appelsínum
i
ZVikan 29. tbl,