Vikan - 16.07.1981, Blaðsíða 11
Rétt að baki þeirra koma veitingasalir
hótelanna Loftleiða, Sögu, Holts og
KEA. Það er eðlileg niðurstaða, því að
hótelsalir ná sjaldan flugi til
gastrónómiskra hæða, en eru yfirleitt
álíka traustir og hótelin sjálf.
Eitt milliverðshús skýtur sér inn á
milli hinna virðulegu og dýru hótelsala.
Það er Torfan, sem ásamt Arnarhóli og
Laugaási er einn merkasti spútnik
íslenskrar veitingamennsku og virðist
engan bilbug láta á sér finna.
Siðan koma í bland dýr hús og milli-
verðshús og eitt einasta úr ódýra
kantinum. Það er Laugaás, sem fyrstur
íslenskra sala býður viðskiptavinum
veislumat fyrir hversdagsfé.
Gæði/verðlag
Ekki dugir að einblina á gæðin, því að
við val á veitingahúsi skiptir líka máli.
hversu mikið viðskiptavinurinn fær fyrir
peningana. Þess vegna hef ég deilt
verðlagi staðanna upp í gæðastigin til að
fá út hagkvæmnina.
í Ijós kemur, að mikill meirihluti hús-
anna eða II af 15 bjóða tiltölulega
svipað gæða/verðhlutfall, frá 3,5 upp i
4,3. Aðeins tvö þeirra eru neðan við
þetta og ættu því að teljast of dýr. Og
svo eru þrjú raunar of ódýr.
Það eru uppáhaldsstaðir mínir, einn i
hverjum verðflokki, Laugaás i lægsta
verðflokki, Torfan i miðlungsflokki og
Arnarhóll i dýra verðflokknum. Öll þessi
hús bjóða meira fyrir peningana en
venja er hér á landi.
Svo mætti einnig setja markið við ein-
hverja fasta tölu, til dæmis 3,9. Þá
væru Loftleiðir, Rán, Naustið og
Stillholt líka með í flokki þeirra húsa.
sem bjóða tiltölulega mikil gæði fyrir
peningana.
Verðlag
Loks felur síðasti dálkur töflunnar i
sér hreinan verðsamanburð húsanna.
Að baki liggur nokkuð flókinn út-
reikningur upp úr matseðlum. Voru for
réttir teknir sér, súpur, sjávarréttir. kjöt
réttir. ostaréttir og sæturéttir.
í hverjum lið var reiknað úl
miðjuverð (mediani, en ekki meðalverð.
til að draga úr áhrifum þeirra rétta, sem
mest sveifluðust frá miðjunni. Siðan
voru tölurnar lagfærðar, einkum með
tilliti til verðbólgu milli fyrstu og síðustu
prófunar.
Upphaflega voru þetta krónutölur. en
eru auðvitað orðnar úreltar sem slikar.
svo að skynsamlegra er að lita nú á þær
sem eins konar visitölur, er sýni Itlut-
fallslegan verðmismun staðanna, miðað
við einhvern ímyndaðan grunn.
Eftir tölunum má skipta sextán bestu
veitingahúsum landsins í fimm
verðflokka, dýrasta flokkinn, dýra
flokkinn, Itærri ntiðlungsflokkinn,
venjulega miðlungsflokkinn og ódýra
flokkinn.
í dýrasta flokknum voru Versalir.
Saga, Naust og Holt. 1 dýra flokknum
Hliðarendi, Arnarhóll, KEA og Lolt-
-leiðir. i hærri miðlungsflokknum
Smiðjan og Hornið. í venjulega
miðlungsflokknum Vesturslóð. Stillholt.
Rán, Torfan og Kaffivagninn. Og loks
Laugaás einn sér i ódýrasta flokknum.
í þessum verðsamanburði er þvi
miður ekki tekið tillit til. að sumir
staðirnir bjóða upp á mun ódýrari
matseðla dagsins, einkum Slillholt.
Laugaás, Rán, Torfan og Holt.
Um önnur atriði visast til -.'instakru
greina- ,. ..... '[ W
Jonas Knsljansson | j
16 bestu veitingahús landsins
MATUR(x5) VÍNLISTI (x 1) ÞJÓNUSTA (x 2) UMHVERFI (x 2) HEILDARSTIG (x 10) GÆÐI/VERÐ VERÐLAG
9 Arnarhóll 9 Arnarhóll 9,5 Naust 9 Arnarhóll 9 Arnarhóll 5,6 Laugaás 112 Laugaás
8,5 IMaust Loftleiðir 9 Arnarhóll Naust 8,55 Naust 5 Torfan 149 Kaffivagninn
8 Loftleiðir Saga Loftleiðir Torfan 8,3 Loftleiðir 4,6 Arnarhóll 150 Torfan
7,5 Holt 8 Holt Saga 8 Hlíðarendi 8,05 Saga 4,3 Loftieiðir 155 Rán
KEA Hlíðarendi 8 Hlíðarendi Holt 7,75 Holt 4,1 Rán 158 Stillholt
Saga 6 Hornið Holt Hornið 7,5 Torfan Naust 159 Vesturslóð
7 Torfan Naust KEA Kaffivagninn 6,95 KEA 4 Stillholt 170 Hornið
6,5 Laugaás Rán Torfan Laugaás 6,5 Hlíðarendi 3,9 Kaffivagninn 178 Smiðjan
Stillholt Torfan Vesturslóð Loftleiðir 6,4 Versalir 3,8 Saga 193 Loftleiðir
6 Smiðjan 4 KEA 7 Hornið Rán 6,35 Hornið 3,7 Homið 195 KEA
Versalir Smiðjan Kaffivagninn Saga Rán Hott 196 Arnarhóll
5,5 Hornið Versalir Laugaás Stillholt Stillhoit 3,6 Vesturslóð 198 Hlíðarendi
Kaffivagninn 1 Stillholt Rán Versalir 6,25 Laugaás KEA 208 Holt
Rán Vesturslóð Smiðjan Vesturslóð 6,2 Smiðjan 3,5 Smiðjan 210 Naust
5 Hlíðarendi Stillholt 7 Smiðjan 5,8 Vesturslóð 3,3 Hlíðarendi 211 Saga
Vesturslóð Versalir 6 KEA 5,75 Kaffivagninn 3 Versalir 213 Versalir
(Þar sem stig eru jöfn ræður stafrófsröð uppsetningu, nema í næstsíðasta dálki, þar ráða brottfallnir aukstafir)
\
Z9. tbl. Vikan II