Vikan


Vikan - 16.07.1981, Blaðsíða 30

Vikan - 16.07.1981, Blaðsíða 30
Erlent Þekkið þið eitthvað svona? Ef svo er, látið okkur vita og sendið okkur ljósmynd af furðulegum fyrir- bærum í umhverfi okkar. Þessar myndir eru úr átta ára gömlu frönsku blaði og eru allar frá Rússlandi. Yfirskrift þeirra er „Töfrar áætlunarbúskaparins” og er þar greinilega vegið að fimm ára áætlunum Sovétmanna. En við skulum bara glugga í franska blaðið. Þar stendur: „Svalir, sem ekki er hægt að komast á, stigar upp úr múrvegg, símastaurar á járnbrautaleiðum og tröppur, sem ekki er hægt að komast upp að með góðu móti. Er þetta úr konungdæmi Bubba kóngs? Nei, svo er reyndar ekki, þetta eru myndir úr paradís skipulagshyggj- unnar. Þetta eru undarleg fyrirbæri. Viðurkennt bókmenntatímarit í Moskvu réð þeim sem tók myndirnar frá því að láta þær koma fyrir almenningssjónir i Sovétríkjunum. Hins vegar var ritstjóra tímaritsins leyft að taka þær með sér til birtingar til Vinarborgar. Hann er ekkert að láta að því liggja að Rússar séu vitlausir. Rökrétt skýring er á hverju einasta atriði. Annaðhvort er hér um ofurkapp án forsjár að ræða eða skort á skipulagningu. 1. Hér fer enginn um lengur. Lögð hefur verið önnur braut. Hins vegar hefur raforkuráðuneytið verið ansi iðið við að velja staurum sínum stað hjá yfir- gefnum járnbrautarteinum. 2. Á teikningunni voru svalir. Hins vegar var gert ráð fyrir gluggum á veggnum í þeim gögnum sem unnið var eftir í einingahúsaverksmiðjunni sem steypti einingarnar. Niðurstaðan varð sú að múrað var upp í gluggana. 3. Neðsta þrepið er í eins metra og tuttugu sentimetra fjarlægð frá jörðu og það er enginn hægðarleikur að komast inn í þessa stórverslun í Moskvu. Ástæðan mun vera sú að verslunarráðu- neytið lét hefja framkvæmdir við þrepin en skipulagsráðuneytið Ijúka þeim. 4. Á teikningunni var gert ráð fyrir anddyri þarna. í húsnæðiseklunni var hins vegar brugðið á það ráð að breyta nokkrum anddyrum i íbúðarherbergi og múrað var upp í nokkrar dyr.” Svo mörg voru þau orð og hér reynt eftir bestu getu að snara textanum á íslensku og vonandi hefur ekkert brenglast alvarlega á leiðinni. Okkur grunar reyndar að verið sé að leita langt yfir skammt að taka þessar myndir úr frönsku blaði af rússneskum skringileg- heitum. Þess vegna biðjum við ykkur — lesendur góðir — að senda okkur skemmtilegar myndir og helst skýringaf, ef einhverjar eru, og við ætlum líka á stúfana í sömu erindagjörðum. Góða skemmtun!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.