Vikan - 16.07.1981, Blaðsíða 63
I
bær að svara fyrra bréfinu
mínu. En nú vantar mig svör
við nokkrum spurningum:
1. Þeir sem skrifa smásögur
og fá þær birtar í Vikunni, fá
þeir einhvern pening eða
svoleiðis?
2. Er mikið um að menn
giftist konum sem eru eldri en
þeir?
3. Hvernig passa saman
hrútsdrengur og hrútsstelpa?
4. En hrútsdrengur og nauts-
stelpa?
5. En hrútsdrengur og vatns-
berastelpa?
6. En hrútsdrengur og
tvíburastelpa?
Vertu nú svo vænn aftur að
svara þessu bréfi. Bæ, bæ,
H.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni og
hvað heldurðu að ég sé gamall?
1. Já, að minnsta kosti svoleiðis.
En fyrir alla muni lærðu fyrst
betri stafsetningu og réttara mál
áður en þú ferð að senda
Vikunni smásögur. Hefðum við
birt bréfið þitt eins og þú skrif-
aðir það hefði öllum þeim, sem
unna islensku máli, orðið
flökurt.
2. Já, meira en þig grunar. Og
sé aldursbilið ekki allt of mikið
tekur ekki nokkur sála eftir því.
3. Annaðhvort logandi
ástriður eða heiftarlegur fjand-
skapur.
4. Ástin getur verið heit
framan af en hætt við að hún
endist illa.
5. Getur blessast. En þó er
hætt við að þau reynist full-
miklar andstæður.
6. Lífið verður fullt af róman-
tík og ævintýrum.
Úr skriftinni les ég að þú sért
enn ansi óþroskaður, þó senni-
lega kominn um fermingu. Úr
bréfinu les ég að þú sért skotinn
í fjórum stelpum en þó mest í
hrútsstelpu sem er á að giska
tveimur árum eldri en þú.
18 ára gömul
jómfrú
Kæri Póstur!
Þetta er í fyrsta skiptið sem
ég skrifa þér. Þannig er mál
með vexti að ég er svo feimin
við alla. Þegar einhver yrðir á
mig fer ég alveg í rusl. Þetta
kom fyrir einu sinni þegar
piltur labbaði að mér og spurði
hvort ég væri ein. Þegar ég
kinkaði kolli settist hann hjá
mér og sagðist heita X (við
skulum kalla hann það). Ég reis
upp og ætlaði að fara en hann
tók í handlegginn á mér og
brosti til mín. Ég fór að roðna
ennþá meira. Hann reyndi að
kyssa mig en ég vildi ekki leyfa
honum að kyssa mig. X
spurði hvort ég vildi koma með
honum heim en ég sagði nei.
Ég labbaði burtu. Ég var alltaf
að sjá hann eftir ballið. Hvað á
ég að gera? Er óeðlilegt að vera
jómfrú 18 ára gömul? Ég hef
aldrei kysst strák og ekki
heldur hleypt upp á mig. En ég
er hrifin af strák og langar til
þess að byrja með honum.
Viltu gefa mér ráð, elsku
Póstur minn? Ég er hreint og
beint í vandrœðum með sjálfa
mig. Ég veit ekki hvað ég á að
gera til þess að losna við þessa
feimni. Ef þú getur viltu þá
hjálpa mér?
Ein sem er í vandræðum
og þráir þennan pilt.
Pósturinn telur að fleiri stúlkur
en þær sem þjást af feimni
hefðu ekki látið einhvern strák
setjast hjá sér, upphefja kossa
og fara síðan heim með
honum. Til eru ýmis sérstök
heiti um þannig stúlkur og
ekkert þeirra felur minnsta vott
af feimni í sér.
Þú þarft ekki að óttast að
neitt sé óeðlilegt við þig þótt
þú sért enn óspjölluð, komin á
19. ár. Stúlkur gera einmitt rétt
í því (og raunar strákar líka) að
hefja ekki kynlíf fyrr en þær
eru sjálfar tilbúnar til þess —
Pósturinn
og raunverulega vilja gefast
pilti á þann hátt. Orðalagið „að
hleypa upp á sig” er móðgun
við kynhlutverk konunnar og
felur í sér að hún sé bara ein-
hvers konar mjaltavél til afnota
fyrir karlpening. Það verður
aldrei nógsamlega brýnt fyrir
ungu fólki að kynlíf er
tjáningarform fyrir dýpstu
tilfinningar og það er sóun á
verðmætum lífsins að eyða því
á hvern sem er, hvar sem er.
Nú ert þú hrifin af strák og
langar að byrja með honum.
Ráð mitt er: Byrjaðu ekki með
neinum fyrr en þú hefur
kynnst honum og lært að
treysta honum þannig að lífs-
reynslan verði til þess að auðga
líf þitt fremur en gera það
auðvirðilegra. Sé hann líka
hrifinn af þér þarf venjulega
ekki að gera sérstakar ráðstaf-
anir til að þið náið saman —
það kemur af sjálfu sér.
29. tbl. Vikan 63