Vikan


Vikan - 16.07.1981, Qupperneq 23

Vikan - 16.07.1981, Qupperneq 23
Popp Þvi veröur ekki á móti mælt að Mark Knopfler er höfuðpaurinn. Hann er gitarleikari, söngvari og lagasmiður. Auk þess leikur hann ætið á rauðan gitar sem hefur úrslitaþýðingu fyrir sándið. o Dire Straits eru án efa ein virtasta rokk-hljómsveit heims um þessar mundir. Withers en hann var sá eini sem hafði unnið eitthvað að ráði við spila mennsku. Og hljómsveitin varð til. Mark spilaði á sóló-gítar, David á rythma-gitar, John á bassa og Pick á trommur. Tónlist þeirra barst til eyrna fólki sem hafði sambönd og upptaka af Sultans of Swing var spiluð í Radio London og féll áheyrendum vel I geð. Aðdáendur Dire Straits eru aðallega úr hópi þeirra mörgu sem voru orðnir dauðleiðir á verksmiðjuframleiddri diskó- og danstónlist en kunnu ef til vill ekki að meta hrátt og óheflað pönk. Tónlist Dire Straits er einstaklega vönduð og hljómsveitin mjög samstillt. . Ekki er þó hægt að bera á móti þvi að Mark Knopfler er höfuðpaurinn í bandinu. Gítarleikur hans er mjög sér- stæður og örlitið hrjúf röddin minnir á Bob Dylan. Mark er einnig aðallaga- smiður hljómsveitarinnar og textar hans Bassaleikarinn John lllsley sér um öll fjármál hljómsveitarinnar og það er hreint ekki svo litil vinna. Illsley er viðskiptavitið i blóð borið. Áður en hann hóf að kroppa bassann með Dire Straits rak hann litla hljóm- plötuverslun i London. Pick Withers heitir sá sem ber bumbur. Hann var sá eini þeirra félaga sem hafði einhverja reynslu af atvinnumennsku í hljóðfæraleik áður en þeir hófu að leika saman. eru vel unnir og efnismiklir. Margir hverjir segja þeir sögu úr daglegu lífi þeirra félaga í London. Sultans of Swing er sjálfsagt eitt þekktasta lagið þeirra og textinn um lítt þekktan jass-klúbb í suðurhluta London. Wild West End Ijallar sömuleiðis um lífið í West End i London. Önnur plata hljómsveitarinnar, Communique, kom á markað sumarið '79 og tryggði hljómsveitinni enn stærri hlustendahóp. Hljómsveitin fór i langa hljómleikaferð um heiminn þveran og endilangan, frá Norðurlöndum til Japan. Félögunum fannst eiginlega nóg um vinsældirnar og allan hamaganginn sem þeim fylgdi. Það var sifellt þrýst á þá að koma með ný og ný lög og plötur en þeir fóru sér aðengu óðslega. Mark Knopfler gaf sér tima til að spila á plötu Bob Dylans, Slow Train Coming. Að því búnu fóru þeir að huga að nýrri plötu. Hinn Knopfler bróðirinn, David, hafði yfirgefið hljómsveitina í friði og spekt til þess að leita eigin leiða. Mark er ákaflega ráðandi innan hljómsveitar- innar og það bitnaði aðallega á bróður hans því stundum var eins og Mark væri ekki aðeins bróðir Davids heldur ntiklu frekar faðir hans. Eftir að David hafði yfirgefið þá var hljómsveitin tríó. Þeir fengu til liðs við sig hljómborðsleikarann Roy Bittan úr (Bruce) Springsteen’s E Street Batid til upptöku á nýju plötunni sem hlaut nafnið Making Movies. Hljómborðsleikur Bittan gefur tónlist Dire Straits nokkuð annað yfirbragð. Gitarleikur Marks verður ekki eins áber- andi en á móti kemur fyllra og betra samspil þeirra allra. Stjórnandi upptöku var Jimmy lovine sem hefur unnið með mörgum góðum mönnum svo sem Bruce Springsteen, Meatloaf, Patti Smith, Tom Petty og fleirum og þykir aldeilis frábær. Eftir að Making Movies kom út fóru félagarnir i aðra heimsreisu og fengu gitarleikarann Hal Lindes og hljóm- borðsleikarann Alan Clark til að leika meðá hljómleikum. Tuttugu og fimm mínútna löng kvikmynd hefur verið gerð eftir Making Movies. Myndin er byggð á hlið eitt og er myndræn lýsing á efni plötunnar, gerð af Bretanum Lester Bookbinder i fullu samráði við hljómsveitarmenn. Hljómsveitin Dire Straits hefur sérstöðu meðal annarra rokkhljómsveita nútímans. Þeir eru ekki mikið áberandi í popp-pressunni og gera fátt af sér sem valdið getur umtali og æsiskrifum. l^eir eru fyrst og fremst fágaðir og hressilegir lónlistarmenn. Tónlistin er fersk og ný en samt undir sterkum áhrifum frá tónlist síðasta áratugar. Væntanlega hafa þeir ekki sagt sitt síðasta orð og eiga enn eftir að láta til sín taka. \S 29. tbl. Vikan 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.