Vikan


Vikan - 16.07.1981, Side 62

Vikan - 16.07.1981, Side 62
Tvíburar í klfpu Kæri Póstur. Við erum hér tvíburar t vandræðum. Við erum báðar hrifnar af strákum sem eru yngri en við (samt ekki báðar af sama strák) og hvorugur þeirra lætur hrifningu í Ijós. Annar er með stelpu en hinn hugsar ekkert um stelpur. Hvað eigum við að gera? Þú hlýtur að sjá að þetta er alveg eymdarástand. Og við erum allt of gamlar til að vera ekki með strákum. Þeir koma aldrei á diskótek og aldrei í partí. Við erum alltaf að reyna að passa heima hjá þeim en þá fara þeir bara út. Hvað eigum við að gera? Við höfum ekki farið á túr í tvo mánuði. Erum við kannski óléttar? Samt minnumst við þess ekki að hafa verið með strákum, nema kannski þegar við vorum fullar á balli um daginn. Einu sinni enn: Hvað eigum við að gera? Við erum eins að öllu leyti nema að önnur okkar er með miklu stærri brjóst en hin. Af hverju er það svoleiðis? Hvað er besta getnaðarvörnin? Hvað heldurðu að við séum gamlar? Við höfum oft skrifað þér áður en aldrei fengið svar svo við vonumst eftir svari. P.S. Hvað lestu úr skriftinni. Tvær í klípu. Ef þetta bréf er skrifað í fullri alvöru, og það hefur Pósturínn enga sérstaka ástæðu til að rengja, þá eruð þið sannarlega í klípu. Best að snúa sér að aðal- atriðinu fyrst. Ef þið eruð ekki enn byrjaðar á túr er ekki seinna vænna að láta athuga málið. Þið ættuð að leita til læknis hið snar- asta, það má ekki dragast. Og í leiðinni skuluð þið spyrja hann sömu spurningar og Póstinn, hvað er besta getnaðarvörnin. Það er að segja fyrir utan að sofa ekki hjá strákum og Póst- inum finnst það vera heldur ótryggt í ykkar tilfelli. Svo er nefnilega mál með vexti að ekki henta öllum sömu getnaðar- varnir og læknar eru allra manna bestir til að fræða ykkur um þessi mál, eða hjúkrunarfólk ef þið eruð ragar við lækna. Læknar verða hvort eð er að skrifa lyfseðil fyrir pillunni, lykkjunni, hettunni og hvað þetta allt heitir, því varla getið þið gengið með smokka handa strákunum á ykkur. Þeir eru eina getnaðarvörnin sem hægt er að fá án lyfseðils. í öðru lagi þurfið þið ekkert að undrast að Póstur- inn hafi ekki svarað ykkur því þið skrifið ekki nöfnin ykkar undir bréfið. Það er regla Pósts- ins að svara ekki nafnlausum bréfum — ykkur þætti víst ókurteisi ef ykkur væru skrifuð nafnlaus bréf. Helga (rusla- fata) elskar nafnlaus bréf hins vegar. Eins og þið hafið sannreynt gerir Pósturinn sjald- an undantekningu á þessari reglu og fyrri bréf hljóta að hafa lent hjá Helgu, ef þau hafa verið nafnlaus líka. Póstinum sýnist þið ekkert vera of ungar til að vera ekki með strákum, eftir skriftinni að dæma og þess vegna er ekkert hægt að lesa úr henni. Hún er óþroskuð og efni bréfsins bendir til að þið eigið eftir að þroskast töluvert. Munur á tvíburum, sem eru að mestu leyti alveg eins, getur einmitt oft verið eins og þið talið um og það er nokkuð sem þið ættuð ekki að gera ykkur rellu út af. Og þá eru það strákamálin, sem sjálfsagt eru efst á blaði hjá ykkur þrátt fyrir ýmislegt annað alvarlegt. Póstinum finnst þið þegar hafa verið mjög duglegar að reyna að komast í samband við þá og varla meira hægt að gera í bili. Hins vegar lýsir Pósturinn ánægju sinni með að þið virðist ekki af þeirri manngerð sem deyr ráðalaus. Reynið bara að halda áfram að komast í samband við þá og reynið að skilja hvað það gæti verið sem þeir eru óhressir út af. Er það almennt áhugaleysi? Eruð þið kannski of mikið fyrir að djamma fyrir þeirra smekk (þeir sækja ekki diskótek — þið gerið það og drekkið, það gæti skýrt eitthvað) og hafið þið áhuga á að koma til móts við þeirra smekk? En blessaðar látið þið þennan sem er á föstu vera þangað til hann losnar. Það kemur sjálfsagt að því ef hann er yngri en þið. Aldur skiptir engu sérstöku máli, heldur þroski fólks, og þið verðið að reyna að meta hvort ykkur finnst þið eiga samleið eða ekki. Gangi ykkur vel og drífið ykkur til læknis og notið kjarkinn, sem virðist vera til í ykkur, skynsamlega. Um pening eða svoleiðis Kæri Póstur! Þetta er annað bréfið sem ég sendi þér en þú varst svo frá- 62 Vikan 29. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.