Vikan - 10.12.1981, Blaðsíða 7
Vínglös
IMokkrar tegundir glasa eru
algengari en aðrar
• Þegar á að leggja á matarborð er
algengt að fyrir ofan diskinn á borðinu
standi tvö glös, eitt glas fyrir borðvin og
eitt vatnsglas sem siðan er hægt að nota
! undir „long drinks” eftir matinn. Það er
mjög nauðsynlegt að gleyma ekki vatns-
glasinu þvi sumir gestanna drekka alls
ekki vin og þá má nota þetta glas undir
áfengislausar veigar, án þess að gest-
urinn þurfi að biðja um það sérstaklega.
Einnig er æskilegt að matargestir fái
tækifæri til að slökkva þorsta sinn á ein-
hverju öðru en vininu. Vatnsglasið er
sett fast ofan við hnifsoddinn en glasið
fyrir borðvínið í beinni línu, hægra
megin við það. Glas fyrir lystauka,
„aperitive”, skal ekki leggja á borð
heldur nota áður en sest er að borðum.
Ef halda á einfalt matarboð nægir að
setja eitt glas af hverri tegund. Ef bera á
fram líkjör, eða brennda drykki eftir
matinn, nægir að koma með þau glös
um leið og kaffið er borið fram, hvort
sem það er drukkið við matarborðið eða
gestum boðið í betri sæti til að njóta
þess. Likjörglös eru sett hægra megin og
ofan til við bolla gestsins og þau er
þannig löguð að bragð og ilmur finnist
sem best.
Ef um margréttað matarboð er að
ræða er oft byrjað á kokkteil sem bland-
aður hefur verið áður en gestirnir komu.
Því standa þau glös ekki á matarborðinu
heldur á sér borði. Einnig er algengt að
bera fram tvær víntegundir, aðra
fyrir forréttinn og hina fyrir aðalréttinn,
og þá þarf að leggja bæði hvitvíns- og
rauðvínsglös á borðið. í slíku samkvæmi
eru líkjörglösin einnig á borðum þegar
gestirnir setjast en ef bera á fram „írskt
kaffi” eru þau glös að sjálfsögðu borin
fram eftir matinn. Ef svo margar vínteg-
undir eru framreiddar með máltiðinni er
glösum raðað þannig að þau séu ekki til
óþæginda fyrir gestinn eða hindri fram-
reiðsluna á nokkurn hátt. Aldrei skal
setja fleiri en fjögur glös í einu á borðið
fyrir hvern gest.
Snafs
Snafsaglös eru notuð þegarbornireru
fram smáréttir, til dæmis síldarréttir eða
hákarl. Með þorramat er viðeigandi að
bera fram íslenskt brennivin og þá eru
snafsaglösin notuð. Einnig kemur fyrir
að fólk vill sterkt vín með matnum, eða
með kaffinu á eftir, og þá er viðeigandi
að bera það fram í snafsaglösum.
Hanastél
t hanastélsboðum þarf nokkrar
tegundir glasa, til dæmis „asna"-glös
(jafnhá, löng glös), „klaka” -glös (kubb-
laga glös) og kokkteil-glös (V-laga glös á
fæti). Þumalfingursreglan segir að gott
sé að áætla tvö glös á mann í slíku
samkvæmi. Það þýðir að ef tiu manns er
boðið eru borin fram tuttugu glös og
tegundunum skipt jafnt í þau.
Nokkrar ábendingar um kaup
á glösum
Mikill óþarfi er að nota handblásin
kristalglös í óformlegum samkvæmum
eða til hversdagslegra nota. Það fást
mjög falleg og vönduð verksmiðjufram-
leidd glös i mörgum búðum. Stundum
henda slys og þá er ekkert tiltökumál að
kaupa ný glös í staðinn. Kaupið glös af
þeirri tegund sem þið notið mest, en
hverri glasategund er ætlað ákveðið
hlutverk.
Glasaþvottur
Það er mjög skemmtileg tilfinning
jtegar hægt er að bera fram skínandi
glös. Hér eru nokkur atriði sem gott er
að hafa í huga þegar glösin eru þvegin.
— Reynið að þvo glösin fljótlega eftir
notkun. Notið vel heitt vatn og mikið af
þvottaefni við uppþvottinn.
— Skolið glösin í hreinu, vel heitu
vatni. Ef glösin eru ekki skoluð á eftir
sápuþvottinn getur setið eftir i þeim
óæskilegur sápukeimur.
— Raðið glösunum á hreint stykki og
látið renna af þeim mestu bleytuna.
Pússið þau siðan með mjúku, hreinu
stykki. Athugið að kusk úr þurrkunni
sitji ekki eftir á glösunum.
Rauðvínsglas: Túlípanalagað glas, hátt og þunnt. Státt-
in er ekki stærri um sig en barmurinn en fóturinn 1-2
fingurlengdir. Barmurinn er beinn en rúmur, um 15-26 cl.
Þetta glas má einnig nota undir kampavín.
Rauðvín er framreitt við stofuhita (12-18 stig) og glasið
er aðeins fyllt að 2/3 svo ilmurinn fái að njóta sín. Mjög
gott með ostum og kjötréttum.
Hvítvínsglas. Það glas er nokkuð minna en rauðvíns-
glasið, um 12-20 cl en svipað í laginu. Það á að fylla að
3/4 og hvítvínið er borið fram kælt. (8-12 stig). Hæfir vel
ávöxtum og eftirréttum. Einnig Ijósu kjöti, eins og
kjúklingakjöti og kálfakjöti.
Rósavín er frískt, létt vín sem hægt er að bera fram
með mat. Það er kælt eins og hvítvínið.
Kokkteilglas: Lítið V-laga glas á fæti, 18-30 cl. Mikið
notað undir hrærða og hrista kokkteila sem bornir eru
fram ískaldir.
fSérríglas: Nokkru minna en kokkteilglasið (7-12cl) en
eins í laginu. Notað undir sérrí en einnig undir portvín
og líkjöra. Borið fram við stofuhita eða aðeins kælt.
Aðeins er hellt að 1/4, þannig nýtur ilmurinn sín best.
Oft borið fram sem lystauki.
Líkjörglas: Ýmist kúpt eða beint, lítið (5-20 cl) og á fæti.
Líkjörar eru oft bornir fram eftir mat, með ábætisrétt-
um, ávöxtum, kaffi eða ostum.
Long-drinksglas: Það eru hátt eða breitt (28-45 cl) og
hliðarnar jafnlangar. Þetta glas má nota sem vatnsglas
þegar borðað er en síðan undir sterkt áfengi svo sem
vodka, gin eða viskí, sem blandað er með vatni, ávaxta-
safa og fleiru.
Koníaksglas: Vítt, rúmgott (25-35 cl) glas, sérstaklega
gert til þess að ilmurinn fái að njóta sín. Litlu magni er
hellt í einu í glasið (að 1/5) og sagt er um fyrsta flokks
koníak að það drekki maður ekki heldur lykti af og
smjatti á. Notað undir brandí, viskí og jafnvel litríka
líkjöra. Borið fram eftir máltíð, oft með kaffi og ísvatni.
Kampavínsglas: Hið hefðbundna kampavínsglas er
mjög við skál á fæti, „coupe", (15-20 cl). Þó er það ekki
talið hentugasta glasið heldur hátt og mjótt glas á fæti,
oft með V-laga eða túlípanlaga skál, „flute", (stórt
kokkteilglas). í þeim glösum helst kampavínið lengur
freyðandi. Borið fram kælt (6-8 stig).
Q
Snafsglas: Lítið glas (3-6 cl) á fæti eða án. Snafs er alltaf
borinn fram ískaldur og er mjög algengur á Norður-
löndum og i Rússlandi. Þjóðverjar drekka einnig snafs
en þá alltaf með bjór. Er yfirleitt borinn fram með sild
eða þorramat.
SO. tbl. Vikan 7