Vikan


Vikan - 10.12.1981, Blaðsíða 95

Vikan - 10.12.1981, Blaðsíða 95
Pósturinn Það er ákaflega erfitt með hvers konar vinnu úti í hinum stóra heimi. Þeir sem eru svo heppnir að fá vinnu útvega sér hana yfir- leitt í gegnum kunningsskap, þið vitið, þetta með maður þekkir mann, en fyrir ykkur er reynandi að prófa sendiráð Norðurlandanna eða til dæmis Garðyrkjufélag íslands sem gæti haft utanáskrift samskonar félagsskapar í nágrannalöndunum og þið aftur skrifað þangað og leitað hófanna. Við 16 ára aldurinn öðlast menn sjálfræði og eftir þann aldur ætti ykkur að vera frjálst að fara hvert sem er og þar á meðal utan með ferðaskrifstofu. Varðandi málaskóla á Ítalíu þá hafa ferðaskrifstofurnar sumar hverjar verið með umboð fyrir málaskóla viðs vegar um veröldina en einnig má reyna ítalska aðalkonsúlatið (er í síma- skránni, svo og sendiráðin og Garðyrkjufélagið). Shakin'Stevens Ég þakka gott blað. Sem betur fer á ég ekki við nein ástar- vandamál að stríða. En þannig er mál með vexti að mig vantar heimilisfang aðdáendaklúbbs Shakin’Stevens. Oghvenær á hann afmæli? Með von um birtingu, XZYÖQA P.S. Hvernig væri að birta viðtal og plakat með Shakin ’ Stevens og Fræbbblunum? P.S.S. Hvernig væri að birta heimUisfang Póstsins? XZYÖQA Það er ósköp gott að heyra aö þú stríðir ekki við nein ástar- vandamál, nóg er af þeim samt. En varðandi Shaky þá mun hann fæddur 4. mars 1951. Aðdáendaklúbbur einn er starfandi í Bretlandi og heitir: Shakin’ Stevens Official Fan Club, P.O. Box 36, Coventry CV 6 5RF, England. P.S. Já, hvernig væri það. Fín hugmynd. P.S.S. Pósturinn, Vikan, pósthólf 533, Reykjavik. Hallæris vin- konur Kæri Póstur! Ég hef ekki skrifað þér áður en ég vona að þú getir hjálpað mér. Ég á nokkrar vinkonur en það versta er að þœr nota mig bara I hallœri, þegar þær hafa engar aðrar. Ég segi alltaf já þegar þær koma til mín. Hvað á ég að gera? Á ég að halda áfram að segja já eða á ég að segja nei næst? Ég vona að þú getir hjálpað mér. Með fyrirfram þakklæti, 5746-4568 Kjarni málsins er sá hvort þig langar til að halda sambandinu við vinkonurnar eða ekki. Ef þér þykir þær leiðinlegar og notar þær sjálf fremur í hallæri skaltu hætta því en reyna í staðinn að kynnast nýjum krökkum. Ef þú vilt hins vegar halda sambandinu áfram verður þú að gera eitthvað til þess að stelpurnar vilji vera með þér í raun og veru. Hvort sem þú reynir að eignast nýja vini eða bæta sambandið við þá gömlu máttu til með að vera fjörleg og hress í bragði og beita persónutöfrum sem þú býrð yfir í ríkum mæli. Vertu ófeimin við að láta álit þitt í ljós og segðu ekki alltaf bara já og amen við öllu sem aðrir leggja til. Þetta verður án efa erfitt til að byrja með en sjálfs- traustið eflist við hverja raun og sjálfstraust, vingjarnlegt viðmót og fjörlegt yfirbragð er lykillinn að aðlaðandi framkomu og vinsældum. 1«. tbl. Vtkan 95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.