Vikan


Vikan - 10.12.1981, Blaðsíða 78

Vikan - 10.12.1981, Blaðsíða 78
umbyltingu er nú lokið, samkvæmt frétt í einu dagblaðanna í dag. — Ágætt! En næsta stig verður ekki betra. Þeir ætla að byggja stór og ljót hús á landareign minni. — Mér skilst nú, að hún sé ekki þín lengur, tautaði Hultén lögregluforingi. — Og ekki eru öll stór hús ljót nú til dags. Arkitektunum okkar fer stöðugt fram. — Það leyfi ég mér að draga í efa, sagði Svantesson fyrirlitlega. — Jæja, svo að við snúum okkur að lyklinum, sem þú lést Callenberg fá, sagði Hultén skyndilega. — Að hverju gengur hann? Fari þessi Callenberg til fjandans! Aldrei var hægt að treysta neinum. En Svantesson dó ekki ráðalaus. — Hann gengur að bankahólfi mínu í Sviss, sagði hann drembilega. — Og þar sem ég vildi ekki taka hann með mér til Brasilíu, bað ég Callenberg fyrir hann og lagði á það áherslu, að hann léti hann ekki í hendurnar á nokkrum manni öðrum en mér. Hann hefur greinilega svikið það loforð. — Hvaða banka skiptirðu við í Sviss? — Mér ber engin skylda til að upplýsa það. — Nei, en jrnð kæmi þér ef til vill til góða í þessu máli, ef þú værir samvinnuþýður. — Þessu máli? Ég veit ekki til þess, að um neitt mál sé að ræða, sagði Svantes- son æstur. — Þið hafið gjörsamlega að ástæðulausu, að þvi er virðist, kallað mig heim á afskaplega lítilsvirðandi hátt, og þar á ofan sakið þið mig um að vera í slagtogi með einhverjum þrjótum, sem ég þekki hvorki haus né hala á. Hug- myndin er fráleit, að ekki sé meira sagt. Ég held þið ættuð frekar að rannsaka feril þessa flugmanns, Jonasar Callenberg, sem ég hef þvi miður átt talsverð viðskipti við. Ég gæti best trúað, að þið rækjust þar á sitthvað misjafnt, ef grannt væri skoðað. Þó hefði mér aldrei dottið í hug, að hann dirfðist að draga mig inn i sín vandræðamál, hvernig sem þau eru vaxin. Og ég fæ ekki skilið, hvernig lykillinn minn kemur hér við sögu. Hann skal fá að borga fyrir þetta óþokkabragð, pilturinn sá. Og þú líka, lögreglufulltrúi. Þú skalt ekki halda, að ég sé bara hver sem er! Hultén lögregluf ulltrúi var áhyggjufullur, þótt það yrði ekki ráðið af svip hans þessa stundina. Forstjórinn var háll sem áll og virtist ekki á þeim buxunum að láta neitt uppi. Ekkert hefði tengt nafn Svantessons þessu máli, ef Katja Francke hefði ekki heyrt samtalsbrotið I skjalasafninu daginn sem forstjórinn flaug á brott. Hugsa sér, ef það hefði nú bara verið uppspuni! Nú, jæja, ef til vill kæmi eitthvað upp á yfir- borðið, þegar þeir Svantesson og Stickan yrðu leiddir saman. — Þá erum við komnir, sagði Hultén, þegar bíllinn stansaði fyrir framan lögreglustöðina. — Gakktu í bæinn! En lögregluforinginn varð fyrir mikl- um vonbrigðum með fund þeirra Stickans og Svantessons. Sá síðarnefndi horfði fyrirlitlega á unga afbrota- manninn og yppti því næst öxlum. — Hvers lags fólk heldur þú eiginlega, að ég umgangist, lögreglufulltrúi? Þetta er hrein og bein móðgun. Og Stickan bætti ekki úr skák. — Aldrei séð þessa spíru fyrr á ævinni, sagði hann kæruleysislega. — Svona snobbhanar ættu ekki að hafa út- gönguleyfi. 1 sama bili kom næturvörðurinn þjótandi inn. — Hultén, Callenberg er I símanum. Hann hefur hringt áður í kvöld. Það er eitthvað mjög mikilvægt. Lífsspursmál, réttara sagt. Hultén tók þegar símann. Að símtalinu loknu sneri hann sér aftur að Svantesson og var nú í senn áhyggjufullur og sigri hrósandi á svipinn. — Jæja, Svantesson forstjóri. Nú virðist ýmislegt vera að gerast. Ég ætla að bjóða þér með í útkall. — Hvað er um að vera? Hvað kemur mér það við? — Fyrst förum við á Stórtorgið. Siðan liggur leiðin til þinnar dýrmætu landar- eignar hér í útjaðri borgarinnar. — Heim til mín? Svantesson var orðinn ráðvilltur, reiður og óttasleginn. En Hultén var I essinu sínu. S TUNDU síðar hafði lög- reglufulltrúinn lagt bíl sínum í hliðar- götu við Stórtorgið, þar sem lítið bar á, en auðvelt að fylgjast með manna- ferðum á torginu. 1 bílnum auk hans voru einn lögregluþjónn og Svantesson, sem var nú algjörlega á suðupunkti. Því miður hafði annríkið á lögreglustöðinni verið slíkt, að Hultén hafði aðeins getað tekið einn lögregluþjón með sér. Fleiri voru væntanlegii, þegar þeir gætu losað sig úr öðrum verkefnum, en hann ótt- aðist, að það yrði ekki nægilega fljótt. Jonas kom á Stórtorgið á slaginu klukkan hálfeitt og lagði umslagið í ruslakörfuna. — Þetta er Jonas Callenberg, sagði Svantesson forstjóri æstur. — Ég vissi, að hann hefði eitthvað óhreint í pokahorninu. Þið ættuð að handtaka hann, lögregluforingi! — Vertu rólegur, svaraði lög- regluforinginn og sussaði á Svantesson. — Við vitum fullkomlega, hvað við erum að gera. Jonas gekk hröðum skrefum að bíl sínum, settist inn í hann og ók af stað. Hann eftirlét lögreglunni að fylgjast með Berra, þegar hann hefði sótt lykilinn. Sjálfur tók hann stefnuna á bústað Svantessons. Hann reiknaði ekki með, að Berra kæmi þangað, fyrr en hann hefði gengið úr skugga um, að hann hefði fengið rétta lykilinn. Jonas var óttasleginn. Mjög ótta- sleginn. Hann vissi ekki, hvort einhver gætti Kötju þessa stundina, en það skipti raunar minnstu máli. Skelfilegri var sá möguleiki, að hún væri ekki lengur á lífi. Honum virtist leiðin ótrúlega löng og seinfarin. Jonas hafði krafist þess að fá að fara beinustu leið þangað sem hann taldi Kötju geymda. Hann hafði enga eirð í sér til að bíða eftir Hultén og aðstoðarmanni hans, og þar sem Hultén hafði ekki fleiri mönnum á að skipa þá stundina, neyddist hann tilað fallast á kröfur Jonasar, þótt honum væri það þvert um geð. Að vísu var afar ólíklegt, að Berra hefði kært sig um að flækja fleiri í málið og þvi sennilegast, að hann hefði orðið að skilja Kötju eftir eftirlitslausa. En það var aldrei að vita, og Jonas hafði skýr fyrirmæli um það aö fara að öllu með gát og rasa hvergi um ráð fram, heldur bíða með allar aðgerðir, uns liðsauki bærist. Jonas lagði bílnum nokkru áður en hann kom á leiðarenda og gekk það sem eftir var leiðarinnar. Hann kom að bak- hlið hesthússins eftír langa göngu yfir ógreiðfært, uppbrotið land. Allt var dimmt og hljótt. Sitja þau í myrkri? hugsaði hann órólegur. Eða er ef til vill enginn hér? Var þorparinn búinn að þagga niður í Kötju fyrir fullt og allt? Nei, svona mátti hann ekki hugsa. Hann læddist i kringum húsið. Glugg- ar voru svo hátt uppi, að ekki var unnt að gægjast inn um þá. Hann fann aðeins einn inngang, tvöfaldar dyr. Átti hann að voga sér... ? Fyrirmælin voru að bíða eftir lög- reglunni! Nei! Hann gat ekki beðið. Enda var ekki öruggt, að heill flokkur lög- reglumanna næði betri árangri en einn maður. Þeir kynnu að hræða þrjótinn, sem hugsanlega stæði yfir Kötju með byssuna á lofti og ... Nei, hann mátti ekki hugsa þá hugsun til enda. Það var um Kötju að ræða. Katarinu hans, sem hafði orðið að þola svo margt um ævina og sem hafði sýnt svo mikið hugrekki í baráttunni fyrir þolanlegu lífi. Hér utandyra gerði hann ekkert gagn. Hultén lögregluforingja hefði ekki líkað þetta. Én hann var nú víðs fjarri. Jonasi til mikillar undrunar voru dyrnar ólæstar. Þær opnuðust hljóðlega um leið og hann þrýsti hand- fanginu niður. Hann þreifaði á hurðinni innanverðri og fann, að þar var slá. Greinilegt var, að á hurðinni var enginn lás og þar af Ieiðandi ekki hægt að læsa að utanverðu. Ekkert benti til annars en húsið væri autt. Gat hann hafa misskiiið ábendingu Kötju um hestinn og hagann og húsið? Nei, hún hlaut að hafa átt við þennan stað. Hún vissi, hvað þau hugsuðu líkt, og hún hafði treyst því, að hann skildi. Þetta hlaut að vera rétti staðurinn. Þetta varð að vera sá rétti. Inni var álíka dimmt og úti, og Jonas vonaði, að það kæmi í veg fyrir, að dyragáttin sæist. Hann lagði hurðina varlega að stöfum á eftir sér. Ekkert hljóð heyrðist. Hann fremur skynjaði en sá, að hann var staddur I stórum, auðum geimi. Það var hrollkalt. Katja, Katja, hef ég komið of seint? bergmálaði í huga hans. Þú, sem áttir að verða mín. Við tvö vorum sköpuð fyrir hvort annað. Þetta mega ekki vera enda- lokin á því, sem var ekki einu sinni byrjað! Hann læddist varlega meðfram veggnum. Hvað bjó í þessu myrkri? Hversu margir voru eiginlega í kringum þennan Berra? Hann vissi ekki um aðra en Stickan, sem var nú í öruggum höndum lögreglunnar, og Birgit Karls- son. Hana óttaðist hann ekki. Konur gátu að vísu verið grimmar, jafnvel grimmari en karlmenn. En ekki Birgit Karlsson. Hann hafði horft I augu hennar, þegar þau hittust við bílinn hans. 1 þeim var engin grimmd. Aðeins örvænting eiturlyfjaneytandans. Og hún hafði heldur aldrei tekið þátt I árásunum. Hins vegar var ekki útilokað, að Berra hefði kallað til einhverja, sem ekki var enn vitað um. Einhverja ræfla, sem gerðu hvað sem var fyrir nokkur grömm. En hvar voru þeir þá? Biðu þeir einhvers staðar i þessu kolsvarta myrkri? Jonasi fannst sem einhver sæti i myrkrinu og héldi niðri í sér andanum. Rugl! Hann var orðinn ímyndunar- veikur. Hann þreifaði sig varlega áfram, þorði ekki að kveikja á vasaljósinu. Honum var ljóst, að hann fór ekki viturlega að, en hann hafði engin önnur ráð. Hann varð að vona, að forsjónin væri honum hliðholl. LYKILLINN 78 Vikan 50. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.