Vikan


Vikan - 10.12.1981, Blaðsíða 77

Vikan - 10.12.1981, Blaðsíða 77
emo, myndskreytt af Verner Munch 10. hluti Framhaldssaga KILLINN En hvar voru þeir þá? Biðu þeir einhvers staðar í þessu kolsvarta myrkri? Jonasi fannst sem ein- hver sceti í myrkrinu og héldi niðri í sér and- anum. Rugl! Hann var orðinn ímyndunarveikur. að kenna á því, ef þú reynir einhverjar kúnstir. Hún kinkaði kolli. — Manstu, að ég sagðist ekki hafa tíma fyrir þessa vit- leysu. Það var satt. Ég var á leiðinni til að setja hestinn minn inn, þegar þú breyttir áætlun minni. Ég hef áhyggjur af skepnunni. Get ég ekki beðið Jonas....? — Ég gef skít í hestinn þinn! — En það geri ég ekki. Og þú ættir að minnsta kosti að skilja, að ef ekki verður sinnt um hestinn, verður farið að leita að mér miklu fyrr en þú hefur áreiðan- lega reiknað með. Þama tefldi Katja djarft, en hún treysti á fremur takmarkað gáfnafar Berras. Hann var auk þess afar tauga- óstyrkur og augljóslega dauðhræddur um, að allt væri að fara út um þúfur. Annars hefði hann ef til vill áttað sig á því, hversu ótrúlegar staðhæfingar Kötju voru. Hann tvinnaði saman blóts- yrðum. — Drullaðu þessu þá út úr þér við hann? Hann rétti Kötju tólið. — Ó Jonas, þetta er Katja. Berra hallaði sér að henni og hlustaði ákaft. — Elsku vina, hvar ertu? — Það get ég ekki sagt þér. Þú verður að gera eins og hann segir, Jonas. Þetta með byssuna er rammasta alvara. Berra kinkaði kolli sigri hrósandi. — En það er eitt, hélt hún áfram. — Hesturinn minn er úti í haganum. Geturðu sett hann inn í hesthúsið fyrir mig? — Hesturinn....? — Þú hefur komið þangað áður, svo að þú hlýtur að geta gert þetta fyrir mig, flýtti hún sér að halda áfram. — Ég skil, sagði Jonas. — Ég skal sjá um hann fyrir þig. Líður þér sæmilega? — Hafðu engar áhyggjur. Nú færðu að tala aftur við þennan orðfagra vin okkar hérna. Og það er eins gott að gera eins og hann vill, því höndin á honum skelfur jafnmikið og hjartað. — Haltu kjafti, druslan þín, hvæsti Berra og reif af henni símtólið. — Jæja, trúirðu því þá núna, að þetta sé alvara? Það er eins gott fyrir þig að Sera, eins og ég segi. Þú átt að setja lykilinn i umslag og setja það í ruslakörf- una á Stóratorgi klukkan.... ehe, nákvæmlega hálfeitt í nótt. Þegar við höfum sannfært okkur um, að þú hafir látið okkur fá rétta lykilinn, geturðu fengið stelpuna. Og engar kúnstir, þvi þá sérðu hana ekki aftur lifandi. — Égskil. — Ef þú reynir að gabba okkur og sendir á okkur lögregluna, þegar við sækjum lykilinn, þá hefur sá, sem passar hana, fengið fyrirmæli um að skjóta hana og fela líkið. Hann lýgur, Jonas, hann er einn, hrópaði Katja í hjarta sínu. Samtalinu var lokið. Kötju og Jonasi var báðum jafnljóst, að þótt Berra fengi rétta lykilinn í hend- urnar, yrði henni ekki hlíft. Hann yrði að þagga niður í henni, og til þess var aðeins ein leið. Hún var, ásamt Jonasi, komin efst á lista þessa óþokka yfir óæskilegar persónur. Ekki þýddi heldur að segja Berra frá heimkomu Svantessons. Hann hafði engan áhuga á Svantesson forstjóra. Hann vildi aðeins fá lykilinn — og inni- hald hólfsins. — Jæja, sagði Berra og lýsti á úrið sitt. — Það er eins gott að fara að koma sér. En þú skalt ekki ímynda þér, að þú fáir að sitja hér og hafa það gott, með síma og allar græjur við höndina. Ég ætla að tjóðra þig annars staðar, það veitir ekki af að kæla þig til að lækka í þér rostann. Hann flissaði, auðheyrilega ánægður með gerðir sinar þessa stundina. Katja andvarpaði. Henni var þegar nógu kalt. En hún mátti þakka fyrir, meðan Berra skildi ekki samhengið í orðum hennar við Jonas. Sennilega hafði hann ekki hugmynd um, að þessi bygging hafði eitt sinn átt að verða hesthús og að fyrir utan hafði verið hestahagi. 8. kafli. F JARVERA Hulténs lögreglufor- ingja, þegar Jonas reyndi að ná tali af honum fyrr um kvöldið, átti sína eðli- legu skýringu. Hann var nefnilega í mót- tökunefndinni, þegar Svantesson for- stjóri lenti á flugvellinum ásamt fríðu föruneyti. Forstjórinn var þykkjuþungur og hljóður í bílnum á leiðinni. Hann lét hugann reika, meðan lögregluforinginn rabbaði við brasilískan starfsbróður sinn. Hvað átti þetta eiginlega allt saman að þýða? Það var óhugsandi, að nokkuð gæti hafa komist upp ennþá. Þetta hlaut að vera eitthvert smámál. Hann hlyti að geta snúið sig út úr því, hvað sem það var. En hvað voru þeir nú að segja? Að ráðist hefði verið á Callenberg? Og árásin misheppnast? Aldrei hefði honum dottið í hug, að þeim forhertu skúrkum, Berra og Stickan, gæti mistekist jafn- einfalt mál eins og að koma einum náunga, sem ætti sér einskis ills von, fyrir kattarnef! Þetta var óskiljanlegt! Ha, lykillinn? Hvernig gat Callenberg hafa grunað, að árásin á hann stæði í einhverju sambandi við lykilinn, sem hann hafði fengið honum til varðveislu? Og nú hafði þessi Iögregluforingi hvað eftir annað nefnt Kötju Francke! Hún vann reyndar á skrifstofunni, en hvernig gat hún komið þessu máli við? Nú sneri lögreglufulltrúinn sér beint að Svantesson forstjóra og lagði fyrir hann spurningu. — För mín til Brasilíu á sér fullkom- lega eðlilega skýringu, svaraði hann. — Ég vildi hins vegar ekki láta alltof marga vita af henni. Ég hef lengi verið með áætlanir á prjónunum um að stofna dótturfyrirtæki í Brasilíu, og för mín þangað núna var liður í undirbúningn- um. Við verðum að leggja okkar skerf af mörkum til þróunarlandanna, ekki satt? Hultén virtist vantrúaður á göfugan tilgang Svantessons. — Þú varst farinn að svipast um eftir einbýlishúsi í Brasilíu. Snuðrarar! hugsaði Svantesson illur. — Hvað er athugavert við það? Sá, sem kemur til með að veita fyrirtækinu forstöðu, verður að hafa bústað við hæfi. Svantesson var hinn ánægðasti með svör sín. Hann óttaðist það ekki, að lögregluforinginn stæðist honum snúning. Reyndar hafði hann aldrei látið mæla greindarvísitölu sína, en hann efaðist ekki um, að hún lægi í hærri kantinum. Hann ákvað að herða á góðmennskuímyndinni. — Ég skal segja þér, Hultén lögreglu foringi, að ég hef alltaf verið mikill fagurkeri. Ég dái hið fagra i lífinu. Allt ljótt særir mig. Þess vegna flýtti ég för minni til Brasilíu. Ég þoldi ekki að horfa upp á þau spjöll, sem nú eru framin á landareign minni. Viðurstyggilegar vélar rótast þar um og rífa upp falleg birkitré og breyta gróðurvin í moldar- flög. Ég hef alltaf verið mikill náttúru- unnandi, og þetta var einum of mikið fyrir mig. — Það efa ég ekki, sagði Hultén. — En ég get huggað þig með því, að þessari 50. tbl. Vikan 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.