Vikan


Vikan - 10.12.1981, Qupperneq 10

Vikan - 10.12.1981, Qupperneq 10
Álfheiður Steinþórsdóttir Þegar foreldrar skilja S kilnaöur er mikið skref fyrir flesta þá sem reynt hafa. Hvort sem ákvörðun um skilnað er tekin í bráðræði vegna reiði og örvæntingar eða hún er undir- búin með löngum aðdraganda er enginn vafi á að skilnaður veldur miklu sálrænu álagi. Sérstaklega á þetta við um hjónin og börn þeirra en oft einnig nánustu ættingja og vini fjölskyldunnar. Flestir hafa innra með sér mynd af fjölskyldu sem er hamingjusöm og heldur saman í blíðu og stríðu. Á sama hátt vilja allir foreldrar að börn þeirra alist upp í heilsteyptri fjölskyldu. Þetta á við um foreldra sem sjálfir koma frá slíkri fjölskyldu en einnig og ekki síður á það við um foreldra sem alist hafa upp í fjölskyldu sem var sundruð. Það getur því verið mjög sársaukafullt að gera sér grein fyrir aö einmitt eigin fjölskylda geti ekki haldið saman lengur. Margir finna til sektarkenndar, afbrýðisemi, biturleika og flestir finna til öryggisleysis gagnvart þvi timabili sem í hönd fer. Það er svo margt sem nauðsynlega þarf að leysa meðan tog- streitan er sem mest, svo sem húsnæðis- mál, skiptingu innbús og eigna og við- brögð ættingja. En þó fyrst og fremst: Hvað um börnin? Skilnuðum fjölgar Skilnuðum fer stöðugt fjölgandi hér á landi. Víða á Norðurlöndunum endar fjórða hvert hjónaband með skilnaði. Á íslandi eru þessar tölur ekki eins háar en skilnuðum fjölgar ört. Nýlegar tölur frá Hagstofu íslands sýndu 11 % aukningu áeinu ári. Það eru þvi æ fleiri foreldrar sem þurfa að taka ákvörðun um forræði og umgengni við börnin og æ fleiri börn eru undir sálrænu álagi af þessum sökum. Þetta álag er óhjákvæmilegt, ekki af því að skilnaðurinn sé skaðlegur, þegar litið er til framtíðarinnar, heldur vegna þess að aðdragandinn, skilnaðurinn sjálfur og tímabilið á eftir einkennist allt af mikilli togstreitu í langflestum tilvikum. Sérstaklega á þetta við þegar ekk er tekiö tillit til þarfa barnanna á t>.-ssu tímabili og þau búin undir þær breytingar sem verða á högum þeirra. Viðbrögð barna Óhamingjusamt fjölskyldulif er alltaf mjög erfitt fyrir börnin í fjölskyldunni, enda skilja þau oft ekki ástæður fyrir leiða, deilum eða þögn foreldra sinna. Skilnaður foreldra veldur þó álagi af öðrum toga. Mörg börn hafa reynt að leiða hjá sér ósætti foreldra í langan tíma. Þau hugsa ef til vill innra með sér að mamma og pabbi séu þrasgjöm en að þau séu ágæt þess á milli. Fæst börn hugsa um skilnað foreldra sinna sem raunhæfan mögu- leika. Ákvörðunin kemur því oft eins og XO Vikan SO. tbl. þruma úr heiðskíru lofti yfir bömin. Þau skilja hreint ekki hvers vegna foreldrar þeirra grípa til þessa ráðs. Margir for- eldrar eru undrandi yfir því hve skilnaður virðist koma börnunum á óvart, en þá er mikilvægt að hafa í huga að böm hafa ekki þá yfirsýn sem fullorðnir hafa og geta þar af leiðandi ekki skilið mörg af þeim rökum sem fullorðnir nota, auk þess sem þau hafa verið tilfinningalega háð þessari fjöl- skyldu frá fæðingu í flestum tilvikum. í nýlegri rannsókn, sem vakið hefur mikla athygli, sýna barnasálfræðing- arnir Kelly og IVallerstein fram á að viðbrögð og afstaða barna er mjög misjöfn eftir aldursskeiðum. Yngstu börnin sýna oft mikinn ótta. Þau verða „litil” aftur og vilja láta hugsa um sig eins og ungbörn. 3-5 ára börn hafa mjög auðugt ímyndunarafl og geta á þessu tímabili haft hræðilegar hugmyndir um það sem gæti gerst. Þessar hugmyndir eru litaðar af óþroskuðum hæfileika þeirra til að skilja hvað hefur gerst og þeirra eigin skynjun á togstreitu foreldranna. Þau geta ekki gert sér grein fyrir að foreldrar þeirra eru að skilja hvort við annað og að reiði þeirra beinist ekki gegn börnunum. Óöryggi barna á þessu aldursskeiði beinist einnig að fóstrum á dagheimilum og leikskólum og yfirleitt öðrum fullorðnum í nánasta umhverfi þeirra. Börn á aldrinum 6-8 ára bregðast oftar við með sterkum kvíða og sorg. Kvíðinn getur verið svo mikill að börnin fái alvarleg sálræn einkenni: svefntrufl- anir, líkamleg einkenni og hegðunar- erfiðleika heima og heiman. Ef barn á þessu aldursskeiði er hjá móður og faðir er sá sem hefur flutt að heiman getur reiðin verið mikil í garð móður og barnið kennt henni um að hafa rekið föðurinn að heiman. Á þessu aldurs- skeiði er barnið mjög upptekið af að líkjast og taka til fyrirmyndar það for- eldri sem er af sama kyni og það sjálft. Drengir bregðast því oft mjög kröftuglega við ef faðir fer að heiman og lýsa þörfum sinum fyrir hann á ýmsan hátt. Þeir vilja vera líkir honum í útliti, vinna sömu störf þegar þeir verða stórir og reyna að ganga eins og hann. Á aldrinum 9-12 ára eru viðbrögðin sjaldnast eins einhlít. Börn á þessu aldursskeiði geta betur varið sig fyrir álagi og eru oft mjög upptekin af ýmsum verkefnum og félagsstarfi í og utan skóla. Algengt er að þau verði mjög virk á ýmsum sviðum og geti beint reiði og krafti í þann farveg og fengið þannig út- rás. En þessi aldurshópur kvartar oft undan líkamlegum einkennum, svo sem höfuðverk og magaverk. Þetta er sá aldur þegar börn eiga oft einn eða tvo góða vini og þau geta verið mjög traust í vináttu sinni. Þau geta á sama hátt tengst mjög náið þvi foreldri sem hefur umsjá þeirra eftir skilnað og staðið með því í blíðu og striðu. Fyrir unglinga er skilnaður foreldra oft mikið aukaálag á tímabili þegar álag er hvort sem er á þeim á mörgum sviðum og þeim ýtt út í sjálfstæði sem þeir eru oft ekki tilbúnir til að ráða við. Sumir unglingar fara að velta fyrir sér hvort þeirra eigin framtíð verði svona, að þeir skilji líka. Þeir geta oft tekið þá ákvörðun að eiga ekki sjálfir börn og gifta sig aldrei. Sorg og söknuður er oft mjög sár og kemur fram í ýmsum myndum. Þá getur brugðið til beggja vona hvort unglingurinn „festist” í reiði og biturleika eða hvort hann kemst yfir þessi viðbrögð og nái þroska og sjálf- stæði vegna þessarar lifsreynslu. Margir unglingar, sem komast vel frá þessu álagi, virðast frá byrjun hafa getað haldið sér utan vandamáls foreldra og foreldrar þeirra á sama hátt leyft þeim að halda sig í hæfilegri fjarlægð, jafn- hliða því sem ekki var gerð krafa til þess að unglingarnir væru með í deilum þeirra eða tækju afstöðu með öðru móti hinu. Að segja börnunum Það er erfitt fyrir foreldra að setjast með barni sínu eða börnum og segja þeim frá ákvörðun um skilnað. Sumir fresta því vikum saman til að þurfa ekki að gera börnin leið, en einnig vegna þess að þeir treysta sér ekki sjálfir til þess og vilja ekki láta börnin sjá hvað þeim, for- eldrunum, líður illa. Það er þó oftast misráðið að fresta sliku samtali vegna þess að börnin skynja þegar ákvörðunin liggur i loftinu, bæði af andrúmsloftinu á heimilinu og af samtölum við ættingja, og geta orðið mjög kvíðafull. Oft verða foreldrar undrandi yfir því að börnin virðast gera sér mjög ljósa grein fyrir að foreldrarnir eiga í erfið- leikum, þó svo að þau hafi ekki gert sér . grein fyrir að skilnaðurinn stæði fyrir dyrum. Það er mikilvægt að útskýra fyrir börnunum af hverju foreldrar sjá ekki aðra leið út úr erfiðleikunum og að þeir fullorðnu hafi tekið þessa ákvörðun sjálfir. Börn þurfa nauðsynlega að finna að foreldrar þeirra geti tekið ábyrgð á þessu skrefi sjálfir vegna þess að þau geta auðveldlega ímyndað sér að það sé
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.