Vikan - 10.12.1981, Side 17
2. hluti
Framhaldssaga
Spennandi og vel skrifuð
sakamálasaga sem gerist
á íslandi.
— Ríkið hefur einkasölu á áfengi hér og
verðlag á áfengi er hátt. Smyglari, sem
getur útvegað áfengi á lágu verði, verður
aldrei vinafár.
áföst því. Stórt, upplýst skilti var á fram-
hlið viðbyggingarinnar. Þar stóð stórum
stöfum „Arkival Air”. Þeir óku upp að
húsinu og lögðu bílnum á stæði til
hliðar. Leifur drap á bílnum og bjóst til
aðstíga út.
— Segðu mér eitt, sagði Gaunt og
hélt aftur af honum. — Hvað kom eigin-
lega fyrir Jamie Douglas?
— Honum urðu á mistök, svaraði
Leifur og andvarpaði. — Sérðu loftnetið
þarna?
Það var á þaki viðbyggingarinnar,
hátt loftnet, sem teygði sig upp í svartan
himininn, með rautt ljós í toppinn.
Gaunt kinkaði kolli.
— ÞettavarleikfangiðhansJamies.
Leifur studdi olnbogunum á stýrið,
andlit hans var alvarlegt í skímunni. —
Það drap hann. Við vitum það eitt, að
hann kom aftur hingað þetta kvöld einn
síns liðs til að ljúka einhverju verkefni,
og næsta morgun fannst hann dauður á
þakinu við rætur loftnetsstangarinnar.
Það var smábilun í loftnetinu, hann
hafði með sér verkfæri til að gera við
það — en talstöðin var í gangi inni á
skrifstofunni.
Gaunt hryllti sig. — Hafði hann
fengið í sig straum?
Leifur kinkaði kolli. — Talstöðin er
mjög kraftmikil, sérfræðingarnir kalla
það extra háa tíðni. Og þar sem hún var
i gangi.. .
Hann yppti þreknum öxlunum. —
Það var leiðindaveður þennan dag, og
hann hafði flogið mikið.
— Þreytan gerir menn kærulausa,
sagði Gaunt hljóðlega. — Hver fann
hann?
— Ég, svaraði Leifur stuttur I spuna.
— Jæja, eigum við að koma inn?
Þeir stigu út úr bílnum, og Leifur
vísaði veginn að mjóum dyrum á hlið
flugskýlisins. Hann opnaði þær, bauð
Gaunt að ganga inn á undan sér, lokaði
því næst á eftir þeim.
Inni í flugskýlinu var hlýtt og bjart.
Rauði rútukálfurinn stóð þar til hliðar,
einnig sendiferðabíll og tveir aðrir smá-
bílar, en í miðju skýlinu stóð rennileg,
rauð, tveggja hreyfla Cessna, sex sæta.
Renglulegur maður í samfestingi, sköll-
óttur með hestsandlit, var að vinna við
vélina. Leifur benti Gaunt að hinkra og
gekk til mannsins. Þeir töluðu saman
stundarkorn, maðurinn með hestsand-
litið hristi höfuðið. En að lokum sló
Leifur á öxl hans og sneri aftur til
Gaunts.
— Þetta er flugvirkinn okkar, Peter
Close, svartsýnn Englendingur, sem
hafði þó vit á því að giftast islenskri
stelpu, sagði Leifur og vísaði Gaunt veg-
inn þvert yfir flugskýlið að öðrum
dyrum. — Einn af þeim, sem alltaf þarf
að kvarta. Það var smávægileg bilun i
öðrum hreyflinum. Hann er búinn að
komast fyrir hana, en hann mátti til með
að nudda svolítið.
— Þannig eru allir viðgerðarmenn,
samsinnti Gaunt skilningsríkur. —
Hvenær kemur hin vélin ykkar aftur?
— Bráðlega — eftir klukkustund eða
svo í mesta lagi, alit eftir því hvað þeir
verða fljótir að erinda i Álfaborg. Þessi
snjókoma var mest hér um slóðir, svo að
hún ætti ekki að hafa tafið.
Leifur opnaði dyrnar og benti Gaunt
að ganga inn fyrir. — Þekkirðu eitthvað
til flugmála?
— Ég kaupi mér miða og set allt mitt
traust á, að maðurinn í flugstjórnarklef-
anum kunni sitt fag, svaraði Gaunt,
meðan þeir gengu eftir mjóum gangin-
um.
— Sama hér, þegar jörðu sleppir,
viðurkenndi Leifur. — Já, og ég hef
beltið spennt, þangað til vélin er lent
aftur.
Hann yppti öxlum. — Jamie var ekki
sama sinnis. Hann flaug til skiptis við
flugmennina tvo, sem eru ráðnir hjá
okkur. Þeir hafa orðið að auka við sig.
Þeir komu nú inn í skrifstofuna, stórt
herbergi með nokkrum skrifborðum og
skjalaskápum. Eina manneskjan þar
inni, mikilfengleg, miðaldra kona, sat
við eitt borðið og hamraði á ritvél, sem
virtist einstaklega lítil i samanburði við
hana. Hún hætti að vélrita, þegar hún
varð þeirra vör, reis á fætur, brosti við
Gaunt og sendi Leifi snöggt, spyrjandi
augnaráð.
— Hér færðu að kynnast hinum
raunverulega forstjóra fyrirtækisins,
sagði Leifur með hreykni í röddinni. —
Þetta er konan mín, Anna Jörgensdóttir
— og Anna, þetta er Jonathan Gaunt,
sem við fengum skeytið um.
Anna Jörgensdóttir var klædd blárri
dragt við hvíta blússu. Hún var ivið
hærri en eiginmaður hennar og gaf
honum ekkert eftir á þverveginn. Hand-
tak hennar var jafnskelfilega þétt og
eiginmannsins.
— Kallaðu hana Önnu, lagði Leifur
til. — Við notum alltaf skírnarnöfn
okkar.
Gaunt kinkaði kolli. Það hlaut að
einfalda hlutina í landi, þar sem nöfnum
var raðað í símaskrá eftir skírnarnöfn-
um, þar sem konur héldu sínu eigin
nafni alla tíð, þótt þær giftust, og þar
sem börn fengu eftirnafn með því
einfaldlega að bæta son eða dóttir við
nafn föður síns. Ekki var þó ólíklegt, að
þessar siðvenjur gætu komið hjónum í
klandur á hótelum erlendis.
— Ágætt, sagði Anna Jörgensdóttir
og sneri sér að manni sínum. — Hafið
þið eitthvað getað spjallað saman?
— Já, nóg að sinni að minnsta kosti.
Hann klappaði henni ástúðlega á
vænan afturendann. Það hljómaði eins
og byssuskot. — Ég segi þér frá því
síðar. Gefðu okkur kaffi, kona — og
hvar eru allir?
— Einhvers staðar hér, svaraði hún,
svo hleypti hún brúnum. — Harald
Nordur er hér, hann kveðst nauðsynlega
þurfa að hitta þig.
— Núna?
Leifur bölvaði hljóðlega, sneri sér svo
afsakandi að Gaunt. — Ég sagði þér frá
honum. Hann rekur Álfaborg. Hvar er
hann, Anna?
— Ég vísaði honum inn á skrifstofu
Jamies.
Hún greip um handlegg hans, þegar
hann sneri sér við til að fara. — Leifur,
Erna frænka hringdi til að spyrja, hvort
þú myndir eftir kvöldinu í kvöld.
— 1 kvöld? Ég hélt... Leifur virtist
undrandi, en lauk ekki við setninguna.
Hann kipraði varirnar og kinkaði kolli.
— Takk. Hringdu í hana fyrir mig og
segðu, að við komum. Ég ætla að
athuga, hvað Harald vill.
Hann gekk þvert yfir herbergið,
opnaði dyrnar að litilli einkaskrifstofu
og gekk inn. Um leið og hann lokaði á
eftir sér, heyrði Gaunt karlmannsrödd
taka kveðju hans.
— Er þetta fyrsta heimsókn þin til
Islands, herra Gaunt? spurði Anna
Jörgensdóttir kurteislega.
— Önnur — en i fyrsta skipti, sem ég
fæ tækifæri til að líta í kringum mig,
sagði Gaunt og neri hökuna. — Ég tók
eftir, að þú talaðir um skrifstofu Jamies.
Leifur hlýtur að sakna hans.
— Þeir voru ekki síður vinir en með-
eigendur, sagði hún stillilega. Svo benti
hún á stól. — Fáðu þér sæti, ég ætla að
sækja kaffi handa þér.
Gaunt settist, en hún gekk út úr her-
berginu, furðu léttstig af svo stórvaxinni
konu að vera. Á veggnum andspænis
þar sem Gaunt sat var stórt Islandskort,
50. tbl. Vlkan 17