Vikan - 10.12.1981, Page 24
Texti: Anna Ljósm.: Ragnar Th.______
„Jólin eru
skemmtilegasta
bernsku-
minníngin
Herra Pétur Sigurgeirsson
biskup svarar spurningum Vikunnar.
í biskupsstofu hanga myndir af tíu biskupum.
Þetta eru allir þeir sem verið hafa biskupar yfir
öiiu landinu frá því ísland varð eitt biskupsdæmi
um aldamótin 1800. Gestum í biskupsstofu verður
starsýnt á þessar mannamyndir og margir hafa
áreiðanlega velt fyrir sér spurningum eins og
hvern mann þeir hafi haft að geyma, hvað þeir
lásu í sinni biskupsstíð og hvað þeim fannst gott
að borða.
Inn gengur biskupinn yfir íslandi, sem kjörinn
var á þessu ári, herra Pétur Sigurgeirsson, Ijóslif-
andi. Ekki fer maður að spyrja hann sömu
spurninga og maður spyrði myndir fyrirrennara
hans áður. Eða hvað?
Við á Vikunni höfum að undanförnu skyggnst í
barm tveggja landskunnra íslendinga og fleiri
hafa svarað spurningum okkar Ijúflega, þau svör
bíða nú birtingar. Hvers vegna ekki að biðja
biskupinn að svara nokkrum spurningum um sína
hagi einmitt nú á jólaföstunni? Við kynnumst nú
spurningunum og svörum biskups.
1. Hver er eftirlætisrithöfundur þinn?
„Það er Gunnar Gunnarsson. Mér er
sérstaklega minnisstætt hvernig hann lauk
ævi sinni. Hann kom þá fram nokkrum
sinnum og mér er það ógleymanlegt. Af
þeim yngri vildi ég helst nefna Hannes
Pétursson og það sem hann hefur ritað,
ekki síst i óbundnu máli.”
2. Hvaða ljóðskáldi hefur þú mestar
mætur á?
„Þar kemur ekki nema einn til greina,
séra Matthías Jochumsson. Hann hefur
haft mikil áhrif á mig, sérstaklega í
sambandi við ræðugerð, og ég hef oft leitað
í ljóð hans þegar ég hef verið að velta fyrir
mér ræðum.”
3. Hvaða myndlistarmann metur þú
mest?
„Það er ekki nokkur vafi á að það er
Kjarval.”
4. Hvert er uppáhaldstónskáld þitt?
„Þá fer nú að vandast málið. Samt held
ég að Kaldalóns sé það tónskáld sem ég hef
mest uppáhald á. Mér finnst hann ná svo
vel þeim tón sem er í náttúrunnar ríki.”
5. Hvaða tónlistarmaður er í mestum
metum hjá þér?
„Ef ég á að taka það fyrir eins og það er í
dag þá held ég að það sé okkar ágæti söng-
málastjóri (Haukur Guðlaugsson). Hann
hefur unnið einstakt starf og ekki má
gleyma því sem hann hefur gert í sambandi
við kristniboðið.”
6. Hvaða kvikmynd, sem þú hefur séð,
finnst þér best?
„Ég man eftir einni góðri sem hét The
Ten Commandments. Annars er ég ekki oft
í bíóhúsum.”
7. Hvaða sjónvarpsþáttur er helst að
þínu skapi?
„Mér dettur í hug þáttur sem var í
sjónvarpinu 5. október 1980. Hann var um
Einstein og gekk út á að skýra kenningu
hans. Mér fannst þessi mynd hafa sterk
24 Vikan 50. tbl.