Vikan - 10.12.1981, Page 26
Svipmynd
ina. Ég hef heimili og fjölskyldu til að sjá
fyrir og ég hef hugsjón til að lifa fyrir og ég
myndi láta það njóta góðs af.”
13. Ef þú ættir að fara með eina. bók,
eitt dýr og eina plötu á eyðiey, í þrjú ár,
hvað yrði fyrir vaÚnu?
„Bókina ætti ég ekki í vandræðum með
að velja. Það er auðvitað biblían. Ég er
ekkert gefinn fyrir dýr en ég held ég myndi
velja hund. Plata, já. Þá dettur mér í hug
að ég átti einu sinni hlut að einni plötu.
Ekki það að ég syngi eða spilaði, en ég var
með í útgáfu hennar. Hún heitir Unga
kirkjan. Hún er uppgengin nú en það var
ungt listafólk á Akureyri sem kom fram á
henni. Hún hefur fylgt mér áfram og ætli
ég myndi ekki velja hana.”
14. Hvaða hæfileika vildir þú helst vera
gæddur?
„Ég myndi óska að ég hefði hæfileika til
að finna guðs vilja í vandamálum er að
kirkjunni steðja og mátt til að framkvæma
hann.”
15. Hvaða eiginleiki finnst þér mikilvæg-
astur í fari sjálfs þín og annarra?
„Bjartsýni. Og þolinmæði þegar á þarf
að halda.”
16. Hvaða eiginleikar eru þér síst að
skapi?
„Önuglyndi og undirferli, — úrtölur.”
17. Getur þú rifjað upp skemmtilega
bernskuminningu?
„Það eru þá helst jólin. Ég átti í bernsku
jól sem eru mér skemmtileg minning. Það
var á Sjónarhæð á ísafirði, þar sem pabbi
var prestur. Fjölskylda mín átti vin, það
var kona sem bjó í Fjarðarstræti við sjóinn.
Hún seldi kost og gerði hreint í kirkjunni.
Hún hét Gústa, var aldrei kölluð annað,
Ágústa Magnúsdóttir. Það má segja að
þessi kona hafi lifað fyrir fjölskyldu mína.
Á aðfangadagskvöld sendi þessi kona lítinn
mann, sem var kostgangari hjá henni, með
fangið fullt af bögglum og þá var lítill snáði
á Sjónarhæð sem ekki vildi missa af atburð-
inum. í stofunni var stórt jólatré, ölíu öðru
var rutt út í horn, og mamma bjó til ýmis-
legt gott sem varð enn betra þegar það var
komið í silkipoka upp á tré. Svo var
skemmtilegast að fá bögglana sína undan
trénu, það var pabbi sem úthlutaði þeim.
Svo var sungið í kringum jólatréð.
Síðan fór pabbi til að gefa öðrum gleðileg
jól, til Hnífsdals og á sjúkrahúsið. Það var
gaman að taka á móti honum þegar hann
kom til baka. Hann settist við borðið og
sneiddi sér bita af kjötinu með sjálf-
skeiðungnum sínum. Svo var það einn
skemmtilegasti hlutinn þegar mamma sendi
okkur Sigga bróður minn (Sigurður Sigur-
geirsson deildarstjóri í Útvegsbankanum)
með jólabaksturinn til fólksins sem var í
Hlíðinni. Við vorum hlaðnir pinklum og í
sparifötunumog það var dýrlegt að heyra
hvernig marraði undir fótunum í snjónum.
Þetta var árvisst, svo við vissum alltaf að
það myndi gleðja fólkið. Þetta varð mér
seinna efni í sögu sem kom út í bókinni
Jólasögur. ”
18. Hver er uppáhaldsbrandarinn þinn?
„Hann snertir mig sjálfan. Minnstu máli
skiptir hvort hann er sannur eða ekki.
Ég átti að vera í bil mínum á gatnamót-
um við umferðarljós. Þar stoppa ég og
ljósið verður grænt, gult, rautt og grænt,
gult og rautt þar til bankað er i gluggann
hjá mér og þar er lögregluþjónn og segir:
„Séra Pétur, það eru ekki til fleiri litir!” Og
það fylgir sögunni að þegar bíllinn fór af
stað hafi það verið á rauðu.”
19. Hvaða matur finnst þér bestur?
„Þessu á ég erfitt með að svara, ég er svo
mikill matmaður. Afskaplega sest ég þó
kátur þegar konan mín framreiðir sína ljúf-
fengu kjötsúpu.”
20. Hver er eftirlætisdrykkur þinn?
„Ef ég ætla að fá mér eitthvað gott að
drekka þá er það nú Thule.”
21. Hver er besta sjónvarpsauglýsing
sem þú manst?
„Mér kemur i hug auglýsing þar sem
Bessi Bjarnason og Árni Tryggvason sátu
og voru að rabba saman og Árni sagði
Bessa einhverja stórfurðulega hluti og Bessi
svaraði og horfði út í bláinn: „Það er bara
svona!” ”
22. Hvernig og hvert vildir þú helst
ferðast?
„Ég á dýrlegar endurminningar um'
ferðalög okkar hjóna um íslenska náttúru
að sumarlagi og einnig er við fórum til ísrael
1979. Sú ferð liður mér seint úr minni. Og
þegar maður hefur farið eitthvað skemmti-
legt vill maður helst fara aftur.”
23. Hvernig myndir þú kjósa þér
ævikvöldið?
„Með konunni minni og við sömu
hugðarefni og nú.”
24. Lífsmótto:
„Það er ein setning úr Fjallræðunni sem
hefur staðið mér, held ég, hvað næst:
„Leitið fyrst guðs ríkis og þess réttlætis.” ”
Zb Vikan 50. tbl.