Vikan - 10.12.1981, Page 46
Texti: Þórey
ÞAÐER HOPP
ÞAÐER Hl
ÞAÐER HÆ
Hvað segir hringur á fingri?
Bolti og diskur á
lahbi
Notið tvo stóra matardiska (þó
ekki úr sparistellinu), tvo stóra
plastbolta (eða blöðrur) og snúru
sem markar byrjunarlínu og
endamark. Tveir keppendur úr
hvoru liði standa hvor á móti
öðrum og styðja höndum hvor á
annars öxl, tærnar eiga að snert-
ast. Setjið disk ofan á fætur
keppendanna og boltann eða
blöðruna þar ofan á. Leikurinn er
fólginn í því að keppendur úr
hvoru liði reyna að mjaka sér yfir
gólfið frá byrjunarlínu að enda-
marki. Ef annaðhvort diskurinn
eða boltinn dettur þá verða
keppendur að bíða á meðan því er
komið fyrir á nýjan leik. Þeir
keppendur sigra sem fyrstir
snerta endamark. Athugiö að
hendurnar eiga að vera á öxlun-
um allan tímann. Hægt er að
halda bæði tvímenningskeppni og
boðkeppni.
Appelsínuleikur
Tveir keppendur eða tvö lið og
einn stjórnandi. Þaðsem með þarf
eru tvö borð eða stólar, skál með
appelsínum, plastglas, matskeið
og klútur til að binda fyrir augun.
Setjið appelsínurnar á annað
borðið og plastglasið á hitt, hafið
langt bil á milli. Bindið fyrir
augun á keppendum og látið þá
taka appelsínu úr skál með skeið,
ganga yfir gólfið og láta í plast-
glasið á hinu borðinu. Það lið
vinnur sem fyrr kemur appelsín-
unum sínum í glasið. Ef appelsin-
an dettur verður keppandinn að
biða á meðan stjórnandi setur
hana aftur í skeiðina. Keppandi
má ekkert snerta.
Kúlu-klemmu-kapp
Tveir keppendur eða tvö lið. Notið
tvö borð, þvottaklemmur úr tré,
pappírsdiska og sælgætiskúlur.
Setjið annað borðið við byrjunar-
línuna en hitt við markið. Fyrsti
keppandi setur klemmuna á milli
tannanna og notar hana siðan til
að taka upp disk með sælgætis-
kúlum. Síðan skriður hann þvert
yfir gólfið, yfir að hinu borðinu og
gætir þess að missa kúlurnar ekki
niður. Það lið sem kemur
flestum kúlum i mark vinnur.
Persónuleikapróf
Látið gestina gangast undir
persónuleikapróf og afhjúpið þá
siðan í allra viðurvist. Þá kemur
margt skringilegt, svo ekki sé
meira sagt, upp á yf irborðið. Ágæt
hvíld eftir ærslafulla leiki þegar
allir eru um það bil aðfá nóg.
Athugið hvar á hendinni fólk ber
hring (giftingarhringur er ekki
meðtalinn). Þaðerengin tilviljun
og gefur mjög athyglisverða
vísbendingu um innræti viðkom-
andi.
Á vísifingri: Bendir til ráðríki og
foystutilhneigingar. Þessi mann-
eskja vill láta taka eftir sér.
Álöngutöng: Þessi manneskja er
forlagatrúar . . . það sem á að
gerast mun gerast.
Á baugfingri: Trú á ást, hjóna-
band og rólegt, öruggt lif i faðmi
f jölskyldunnar.
Á litla fingri (hægri handar):
Manneskjan er fremur fíkin í pen-
inga og það sem þeir geta veitt.
Á litla fingri (vinstri handar):
Viðkomandi er mjög veikur fyrir
hinu kyninu.
Á þumalfingri: Sá sem ber þennan
hring er mjög sérstæður persónu-
leiki sem gaman væri að kynnast
nánar.
Á hverjum fingri: Þessi er
glysgjarn í meira lagi og hefur
gaman af því að láta á sér bera.
Fleiri en einn hringur á fingri:
Áðurnefnd einkenni eru mun
sterkari. ,
Með engan hring: Sá er vinnu-
samur, hreinn og beinn og sjálfum
sér nógur.
Með stóran hring (stóra hringi):
Viðkomandi hefur mikið álit á
sjálfum sér.
Það er alkunna að menn tjá sig á
fleiri vegu en með tungunni einni
saman. Líkamsmálið er í rauninni
heilmikil fræðigrein og varhuga-
vert að fara djúpt út í þá sálma.
En það getur verið stórskemmti-
legt að fylgjast með öðrum og
hvernig þeir opinbera sinn innri
mann án þess að vita af því. Hér
eru nokkur atriði sem vert er að
taka eftir:
Sá sem er alltaf að klappa og strjúka
sjáifum sór: Þessi vildi heldur vera
að klappa og strjúka þeim sem
hann er aðtala við.
Sá sem fitlar í sffellu við eða strýkur
hór sitt: Taugaóstyrkur og líður
fremur illa. Farðu og segðu þess-
um að slappa af eða segðu honum
besta brandarann sem þú kannt.
Sá sem aldrei lætur hluti í kringum
sig ífriði: Vill fá meiri athygli, vildi
fremur vera að handfjatla fólk en
hluti.
Sá sem heldur um þumalinn: Þessi
er mjög hræddur um að segja ein-
hverja vitleysu enda hefur þaðoft
komið fyrir. Þar af leiðandi er
hann hræddur við að segja
meiningu sína.
Sá sem leikur sór að hringnum
sínum: Sá sem snýr hringnum i
sífellu býr yfir leyndum þrám. Sá
sem nuddar baugfingur eða
hringinn þar á þráir öryggi. Sá
sem í sífellu leikur sér að litla
fingri hefur mikinn áhuga á hinu
kyninu, peningum eða hvoru
tveggja.
Sá sem stappar niður eða sveiflar
fæti: Merki um árásargirni.
Þennan langar að sparka ein-
hverjum út.
Só sem deplar augum ótt og títt:
Mjög órólegur, langar helst að
loka augunum fyrir því sem sagt
er.
46 Vikan 50. tbl.