Vikan


Vikan - 10.12.1981, Síða 79

Vikan - 10.12.1981, Síða 79
Framhaldssaga Hann gat að minnsta kosti vonað, að hans hefði ekki enn orðið vart, svo var- lega sem hann hafði farið. Hann veitti því athygli, að uppi við loft voru ferhyrningar, sem skáru sig lítillega frá myrkrinu, voru vitundar ögn ljósleitari. Það hlutu að vera gluggar. Þeir voru með jöfnu millibili á veggjun- um á þrjá vegu. Á einum veggnum voru engir slíkir ferhyrningar. Gat verið, að innan við þann vegg væru aðrar vistar- verur? Var Katja ef til vill geymd þar? Hann þóttist hafa gengið úr skugga um, að inni i þessum stóra geimi væri enginn. Hann þreifaði sig þvi eftir gafl- veggnum. Jú, mikið rétt, þar rakst hann á dyr. Og innan tíðar rakst hann á aðrar. Tvöminni herbergi.. . Átti hann að þora? Og hvorar dyrnar átti hann að velja fyrst? Átti hann að storma inn? Nei, ef til vill veldi hann rangar dyr og auðveldaði óvininum að koma aftan að sér. Hann opnaði aðrar dyrnar með ýtrustu varfærni. Ekkert gerðist. Ekkert hljóð heyrðist. Hann steig inn fyrir. Hann stóð kyrr stundarkorn og reyndi að átta sig. Svo ætlaði hann að fara aftur út og reyna hinar dyrnar, en allt í einu stirðnaði hann upp. Hann fann daufan ilm. Hann þekkti þennan ilm. Katja var — eða hafði nýlega verið — í þessu herbergi! Hann tók tvö skref innar i herbergið, og ilmurinn varð greinilegri. Það var ekki um að villast. — Katja? sagði hann lágt. Hann heyrði vesældarlegt, hálfkæft uml rétt hjá sér. Hefði hann stigið eitt skref i viðbót, hefði hann rekist á hana. Hann kveikti á vasaljósinu. Þarna sat hún, kefluð og rígbundin við stólinn. — Katja, hvíslaði hann með ósegjan- legum létti. Nú máttu allir heimsins þrjótar koma. Hann skyldi verja hana. Því hann hafði fundið hana — á lifi! Ekkert annað skipti máli þessa stundina. Hann féll á kné við hlið hennar og byrjaði aö leysa klútinn frá vitum hennar. — Ertu ein? Hún kinkaði ákaft kolli. Loks gat Jonas leyst klútinn og náð út úr henni keflinu. Andardráttur hennar kom í gusum. — Ó, Jonas, elsku, elsku Jonas, kveinaði hún, og höfuð hennar féll að öxl hans. — Þakka þér fyrir að koma! — Ég lofaði að sjá til þess, að þú kæmir I prófið annað kvöld, svaraði hann loðmæltur. — Flýttu þér! Leystu mig, áður en hann kemur, sagði Katja óróleg. — Hversu margir eru þeir? spurði hann, meðan hann fékkst við hnútana. Þeir voru þrælslega hnýttir, og hann bölvaði yfir því að hafa ekki hníf til að skera á þá. — Berra er einn. Hann fór á bílnum mínum til að sækja lykilinn. Jonas, ég held hann ætli að drepa mig. í alvöru! — Við skulum nú koma í veg fyrir það, sagði Jonas sigurviss. — Hultén fylgist með honum og lætur handtaka hann, þegar hann er búinn að taka lykil- inn. En þar skjátlaðist honum. N OKKRUM mínútum eftir að Jonas hafði sett umslagið í ruslakörfuna kom maður slangrandi eins og af hendingu og stansaði viö ruslakörfuna. Svantesson greip andann á lofti. Hann þekkti mann- inn. — Þetta hlýtur að vera Berra sjálfur, sagði Hultén lágum rómi við aðstoðar- mann sinn. — Bíddu stundarkorn og eltu hann síðan, án þess að hann verði þess var. Stærð á hornsófa að eigin vali ^erð: , . .. , Horn kr. 2.825.- Otal möguleikar i upproðun Stóll kr. 1.552.- Margar gerðir áklæða Borð 40x70 kr. 1.051- Húsgagnasýning laugardag og sunnudag Borð 70x70 kr. 1.223. — , _ , , skammel kr. 870.— Goo greioslukjor H úsgag na versl u n i n Sídumú/a 4 — Sími 31900 5«. tbl. Vlkan 79
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.