Vikan


Vikan - 02.09.1982, Qupperneq 10

Vikan - 02.09.1982, Qupperneq 10
ALLAR LANDSHMS LEÍKSÝNSNGAR Umsjón: Hrafnhildur og Jón Ásgeir fyrri h/uta vetrar ÍSLENSKA ÓPERAN Litli sótarinn: Fyrsta verkefni óperunnar er ensk ópera eftir Benjamin Britten. Á ensku heitir hún Let’s make an opera og er jafnt fyrir börn sem fullorðna. Oper- an er í þremur hlutum. I þeim fyrsta er verið að segja sögu og dettur börnunum þá í hug aö búa til óperu. í öðrum hluta er óperan í smíðum og áhorf- endur fylgjast með æfingunni. í þriðja hluta er síöan óperan flutt og kallast hún Litli sótar- inn. Leikarar eru bæði gamal- reyndir og óþekktir söngvarar, á öllum aldri. I helstu hlutverk- um eru Anna Júlíana Sveins- dóttir, Elísabet Erlingsdóttir, Jón Speight, sem öll sungu í Sígaunabaróninum, Stefán Guðmundsson og Ásrún Davíðsdóttir. Hljómsveitar- stjóri er Jón Stefánsson, leik- stjóri Þórhildur Þorleifsdóttir en sviðsmynd og búningar eru í höndum Jóns Þórissonar og Dóru Einars. Áhorfendur taka mikinn þátt í óperunni og æfa jafnvel á meðan á sýningu stendur, undir stjórn hljóm- sveitarstjórans. Þýöandi verksins er Tómas Guðmunds- son. Ráðinn hefur verið nýr rekstrarstjóri hjá Operunni, María Sigurðardóttir. Töfraflautan: Operan Töfraflautan eftir Wolfgang Amadeus Mozart er óneitanlega ein þekktasta ópera Mozarts. Margir muna eflaust eftir útfærslu Berg- mans á óperunni en hún var sýnd í íslenska sjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Hljómsveitarstjórn annast Gilbert Levine, en hann er Islendingum að góðu kunnur, stjórnaði hljómsveitinni í La Traviata, Othello, Silkitromm- unni og ennfremur á tónleikum Boris Kristoff á síðustu lista- hátíð. Þórhildur Þorleifsdóttir er leikstjóri, Jón Þórisson og Dóra Einars sjá ;im leikmynd og búninga. Garöar Cortes og Olöf Kolbrún Harðardóttir leika þau Tamino og Paminu. Sieglinde Kahmann, Elín Sigurvinsdóttir og Anna Júlíana Sveinsdóttir leika döm- urnar þrjár. Guðmundur Jóns- son leikur Sarastro. Tveir verðir eru í höndum Sigurðar Björnssonar og Hjálmars Kjartanssonar. Katrín Sigurðardóttir leikur Papa- gena og Júlíus Vífill Ingvars- son Monostatos. Halldór Vil- helmsson og Sigurður Braga- son leika prestana tvo en aðal- hlutverkið, Papageno, skiptist á milli tveggja nýliða á óperu- sviðinu, Eiríks Hreins Helga- sonar og Steinþórs Þráins- sonar. Ennfremur tekur kórinn þátt í sýningunni og 37 manna hljómsveit. Þýðandi verksins er Þrándur Thoroddsen en áætlað er að frumsýna það 15. október. ALÞÝÐULEEKHÚSIÐ Þrátt fyrir aðsteðj^ndi húsnæðisvanda heldur Alþýðu- leikhúsið strikinu í vetur. Barna- og unglingaleikrit verða í havegum höfð í vetrar- byrjun, endursýnd tvö vinsæl leikrit, Súrmjólk meö sultu og Bananar. Súrmjólk með sultu og Bananar: Barnaleiksýningahópurinn við Borgarieikhúsið í Gauta- borg samdi leikritið Súrmjólk með sultu, en Bertil Ahrlmark átti mestan part í því. Sá snjalli Tómas Ahrens leik- stýrir, Grétár Reynisson hannaði leikmynd og búningar og tónlist er eftir töframanninn Megas. Sýningar hefjasl um miðjan september ojffverður sýnt í Norræna húsinu. Húsnæðisvandi Alþýðúíeik- hússins veldur óvissu um slað- setningu á sýningum leik- ritsins Bananar. Bríet Héðins- dóttir leikstýrir, Grétar Reynisson hannaði líka leik- mynd og búninga við þetta leik- rit, Birger Haymann samdi tónlistina og David Walters annast lýsingu. Leikritið Bananar segir frá ótilgreindu landi í Suður- Ameríku, en þar er helsta at- vinnugrein ræktun og sala á banönum. Ungur drengur fer með bananaklasa til að selja í stórri borg en kemst að raun um að stórfyrirtæki hefur einkarétt á allri bananaversl- un. Drengurinn lendir í fang- elsi og í öðrum ævintýrum. Bananar var fyrst sýnt hjá GRIPS-leikhúsinu í Vestur- Berlín, einu frægasta barna- leikhúsi í Vestur-Þýskalandi. Það er eftir Rainer Hackfeld og Rainer Liicker. „Pældiði"-hópurinn: „Pældíðí”-hópurinn hja Alþýðuleikhúsinu hefur á prjónunum nýtt islenskt unglingaleikrit sem tekið verður til sýninga eftir áramot. Rætist úr húsnæðisvandanum má auk þess búast við sýning- um á fleiri leikrítum Alþýðu- leikhússins fyrri hluta vetrar. LEIKFELAG REYKJAVÍKUR f Jói: Þetta geysivinsæia leikrit (90 sýningar síðastliöinn vetur) verður sýnt áfram i vetur og hefjast sýningar um mánaöa- mótin septexnber/október. Höfundurinn, Kjartan Ragn- arsson, leikstýrir en Steinþór Sigurðsson geröi leikmyndina. Hasaið hennar mömmu; Iæikritið, sem er eftir Dario Fo, var sýnt í rúmlega tvo mánuði síðastliðinn vetur og verður nú flutt yfir í Austur- bæjarbíó, þar sem miðnætur- sýningar hefjast um mánaða- rnótin september/október. Jón Sigurbjörnsson leikstýrir og Jón Þórisson hannaði leik- mynd. Salka Valka: Þrátt fyrir gífurlega aðsókn fram til loka leikársins (á 40 sýningar) og afbragðs viötök- ur í Búlgaríu hefjast fram- haldssýningar ekki fyrr en öðru hvorum megm við ára- mótin. Fyrirtaksleikstjórn Stefáns Baldurssonar, leik- mynd Þórunnar Sigríðar Þor- grímsdóttur og tónlist Áskels Mássonar koma ekki fyrir vit leikhúsgeta fyrr en á miðju leikári. Náttúruöflin slógu öllum sýningum á frest, aðal- leikkonan Guðrún Gísladóttir er nefnilega með barni. Skilnaður: Þetta leikrit var forsýnt á listahátíð en verður frumsýnt með pom|> og prakt um miðjan —*—góða Iðnó iptum í tilefni tekur Skilnaðar, sýningin fer fram í miðju húsi og áhorfendur á f jóra vegu. Hljóðiö verður fjór- vítt —• svonefnt quadrophon- kerfi. Enn er það hinn fjölhæfi leikhúsmaður Kjartan Ragn- arsson sem bæði samdi texta og leikstýrir. Steinþór Sigurðs- son skapaði leikmyndina en Áskell Másson tónlist. „Translations" (islenskt nafn ófundið): Leikfélagið sækir efnivið til Irlands, þetta er nýtt leikrit eftir Brian Friel sem heyrst hefur útvarpsleikrit eftir í gufuradíóinu. Leikritið var í fyrra kjörið besfa nýja leikritiö af enskum leikdómurum. Það gerist á Irlandi árið 1833, en segir frá átökum miili Breta og íra svo aö sterk skírskotun til nútímans mun að líkindum ekki fara framhjá neinum. Karl Guðmundsson leikari, sem getiö hefur sér gott orð fyrir þýðingar, sneri „Trans- lations”. Eyvindur Erlendsson leikstýrir og Steinþór Sigurðs- son gerðí leíkmyndiná. Sýning- úar hefjast um miðjan október. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Garðveisla: Þjóöleikhúsið hefur sýningar á stóra sviðinu með nýju leik- jriti eftir Guðmund Steinsson. Þetta er fimmta leikrit Guö- mundar sem sýnt er í Þjóðleik- húsinu, en það fyrsta sem þar var sett upp heitir Forsetaefnið. Nýja leikritið heitir Garð- veisia, spennandi verk sem ger- ist í nútímanum, en líka í göml- um aldingaröi þar sem epli og aðrir vandamálaávextir finnast. Fræknar konur stýra uppsetningunni, þær María Kristjánsdóttir leikstjóri (í fyrsta sinn hjá Þjóðleikhúsinu) og Þórunn Sigríður Þorgríms- dóttir leikmyndahönnuður. María leikstýrði til dæmis Er þetta ekki mitt líf og Þórunn gerði leikmynd við Stundar- frið. lð Vikan 35. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.