Vikan


Vikan - 02.09.1982, Blaðsíða 44

Vikan - 02.09.1982, Blaðsíða 44
Myrkraverk í músíkinni Hljómsveitin Siouxie & the Banshees á sér nú orðið langa sögu miðað við margar popp- hljómsveitir. Sumar þeirra loga skært í stuttan tíma en brenna svo út, aðrar loga með hægum en stöö- ugum loga í langan tíma. Siouxie & the Banshees hefur nærri alltaf logað skært á popphimninum allan þann tíma sem hún hefur veriö til,5ár. í 100 klúbbnum í London gerðist áriö 1976 sá atburður að fjórir tón- listarmenn fóru upp á svið og spiluðu 20 mínútna langt lag, The Lords Prayer, eöa Faöirvorið. Þetta þótti merkur viöburður því að hljómsveitin hafði aldrei æft og aldrei komið fram, en konsertinn var frábær. I hljómsveitinni voru Siouxie Sioux, Steve Havoc, síðar Severin, Sid Vicious og Marco Pirroni sem síðar var í Adam & the Ants. Hljómsveitin ákvaö að halda áfram starfsemi, þrátt fyrir að þeim fyndist sjálfum að það yröi erfitt að ná öörum eins kon- sert. Sid Vicious og Marco Pirroni hættu. Sid fór í Sex Pistols og dó skömmu síðar. I stað þeirra komu þeir Kenny Morris á trommur og John McKay á gítar. Steve Severin spilaði á bassa og gerir enn og Siouxie (frb. Súsí) syngur. Hljómsveitin taldist þegar til framvarðarins í pönkinu með Sex Pistols, Clash og Jam. Plötusamningur Löngu eftir að fyrrnefndar hljómsveitir höfðu undirritaö samninga við plötufyrirtæki var Siouxie & the Banshees á fleygiferð um London, spilaði og spilaði, en hafnaði öllum samn- ingum sem henni voru boönir. Ástæðan var sú aö hún vildi fá langtímasamning en slíkir buðust ekki. Allt fram á árið 1978 jók hljómsveitin stöðugt við vinsældir sínar. Tónlist þeirra var kraft- mikil, hrá pönktónlist sem skartaði bestu söngkonu pönksins. Ymsir líktu hljómleikum þeirra viö djöflamessu og Siouxie sjálfri viðnorn. Loks, árið 1978, bauðst þeim samningur sem þau sættu sig við. Polydor hét fyrirtækið, talið eitt það allra íhaldssamasta í brans- anum. Ekki þurfti lengi að bíða eftir plötunni. Hún hét Hong Kong Garden, lítil plata sem skaust þegar upp í topp tíu í Bretlandi. Textinn fjallar á hálfgerðu dul- máli um Hiroshima og sölu á kvenfólki. Lagið er austrænt. The Scream Stóra platan kom skömmu síöar. Hún hét Öskrið, ,,The Scream. Nafnið var við hæfi. Allt þaö afl sem hljómsveitin hafði hlaðiö upp á nærri tveggja ára ferli slapp loks út á plötu. Þetta var enginn venjulegur, leiðinlegur neyslugripur heldur stór partur af nýjum kúltúr. Lög Jigsaw Puzzle, Switch og útsetning á Helter Skelter eru bestu lög plötunnar, en annars eru öll lögin góð. Eftir útkomu fyrstu plötunnar virtist sem hljómsveitin hefði brunnið út. Hljómleikarnir voru ekki eins góðir og áður og næsta LP platan, Join Hands, var ekki góð. Á henni voru að vísu ýmis góð lög eins og Playground Twist og Faðirvorið í langri útsetningu en heildin var slöpp. Það kom líka á daginn aö hljómsveitin var að leysast upp. Fyrir hljómleika í Aberdeen gerðist það að gítarleik- arinn og trommuleikarinn hurfu án þess að láta vita. Siouxie og Steve stóöu eftir með gríðarlegar f járfestingar í nýbyrjuðu tónleika- ferðalagi að veði. Klofningurinn í hljómsveitinni var algjör. Hljóm- sveitirnar hafa ekki talast við síðan. Fuglinn Fönix 5 dögum síðar héldu þau Siouxie og Steve áfram hljómleikaferö- inni, þótt ótrúlegt sé. Trommu- leikarinn Budgie hafði gengið til liðs við þau og gítarleikarinn Robert Smith úr Cure, sem hitaöi upp fyrir þau í ferðinni, tók við gítarleiknum. Þau luku ferðinni og tóku síðan aö hugsa sitt ráð. Á tímabilinu janúar—maí 1980 hljóðrituðu þau plötu, Kaleidos- cope. Þá var hljómsveitin skipuð Severin, Sioux og Budgie. Um mestallan gítarleik sá Skotinn John McGeogh úr Magazine. Hann gekk síöar aö fullu í hljóm- sveitina. Á undan stóru plötunni komu tvær litlar plötur, Happy House og Christine. Hvort tveggja voru frábær lög sem sýndu að hljóm- sveitin var alls ekki dauö úr öllum æöum. Því miður var stóra platan ekki eins góö, bestu lögin voru tvö fyrrnefnd lög af litlu plötunum. Hljómsveitin virtist ekki hafa hrist saman í þá pottþéttu heild sem seinna varð. 1981 1981 er besta ár í sögu hljóm- sveitarinnar hingað til. John McGeogh sameinaði sérkenni- legan gítarstíl sinn heildarhljómi hljómsveitarinnar og útkoman varð hljómplatan Ju-Ju. Á undan þeirri hljómplötu komu nokkrar litlar plötur, eins og vana- lega. Það er fyrst að nefna lagið ísrael, hægt og sígandi lag með biturri melódíu, sem telja verður eitt af bestu lögum S & the B frá upphafi. Síöar kom Spellbound og síðast Arabian Knigts. Allar þessar þrjár plötur staðfestu stöðu Siouxie & the Banshees sem þeirrar einu af gömlu pönkhljóm- sveitunum sem enn er verulega skapandi. Sjálf LP-platan, Ju-Ju, er einnig mjög góð. Öll lögin eru á einhvern hátt sérstök en hvert þeirra fellur þó vel inn í heildina. Hin tónlistarlegu myrkraverk sem Siouxie & the Banshees hefur stundað frá upphafi halda hér áfram og ná fullkomnun. Kraft- urinn er að vísu orðinn minni en á Öskrinu en í staö þeirrar óbældu reiöi sem þar er eru nú flóknari til- finningaleg stef tekin upp og pæld út af meiri tónlistarkunnáttu. Ju- Ju er vissulega ein af bestu plötum síðasta árs þegar litið er til baka. 44 ViKan 35. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.