Vikan - 02.09.1982, Blaðsíða 18
Texti: Guöfinna Eydal sálfræðingur
Að vera einbirni
n4 á dögum eignast fólk færri
börn en fyrir nokkrum áratugum.
Það er ekki einungis möguleik-
inn á auknum getnaðarvörnum
sem hefur áhrif á barneignir, þar
kemur ýmislegt annað til. Margir
vilja nú fá að njóta hæfileika
sinna í starfi, ferðast og njóta lífs-
ins án þess að vera bundnir yfir
börnum. Það er einnig mjög dýrt
að eiga börn og fólk verður að hafa
dágóðar tekjur til aö halda uppi
stórri fjölskyldu. Allt er dýrt er
börn varðar, föt, leikföng og
barnapössun, svo aö eitthvað sé
nefnt. Jafnréttisbaráttan svokall-
aða hefur haft mikil áhrif á barn-
eignir. Konur vilja ekki eiga eins
mörg börn og áöur, þær vilja fá að
lifa sjálfstæöu lífi fyrir utan
heimilið í síauknum mæli. Barna-
uppeldi og umönnun barna tekur
tíma, er bindandi og hefur þetta
aðallega verið verksviö kvenna.
Víða erlendis er algengt að fólk í
sambúð ákveði að eiga ekkert
barn eða bara eitt barn. í löndum
eins og Frakklandi og Svíþjóð
hafa menn áhyggjur af því að fólk-
inu fækki. Víða er reynt aö gera
mikið fyrir barnafjölskyldur til að
reyna að fá fólk til þess að eiga
fleiri börn. Barnsfæðingum hefur
líka fækkað á íslandi, þó alls ekki
eins og í Svíþjóð og Frakklandi.
Það er hægt að velta mörgu fyr-
ir sér þegar barneignir eru annars
vegar, en hvað varðar börnin sjálf
er áhugavert að fjalla um ýmsar
spurningar um hvernig er að alast
upp sem einbirni.
Einbirni
Börn sem alast upp sem einbirni
verða það gjarnan af tveim orsök-
um. Annaöhvort vilja foreldrarnir
ekki eignast annað barn eða þeir
hafa reynt lengi að eiga fleiri
börn en það hefur ekki tekist. Ef
fólk hefur valið að eiga bara eitt
barn hefur þaö oft rætt málin
vandlega og reynt að gera sér í
hugarlund hvaða kosti og ókosti
það getur haft í för með sér að al-
ast upp sem einbirni. Slíkir for-
eldrar reyna gjarnan að láta börn-
in fá eins eðlilegt uppeldi og mögu-
legt er. Málið er allt annað ef fólk
hefur lengi reynt að eignast fleiri
börn en ekki getað það. Þá vilja
foreldrarnir gjarnan gera allt til
þess að barninu líði sem best og
það ríður á miklu aö gæta vel að
því að ekkert geti komið fyrir
barnið. Hér er oft hætta á að barn-
ið verði ofverndað og fái allt
annað uppeldi en gengur og gerist.
Slík börn geta verið illa séð af öðr-
um, oröið útundan og einmana.
Þau verða oft litlir „sérvitring-
ar”.
Erfiðar
spurningar
Flestum finnst að fólk í sambúð
eigi að eignast börn og að eðlilegt
sé að gera slíkt. Ef það líða nokkur
ár og engin börn koma fer fólk
gjarnan aö velta því fyrir sér
hvort viðkomandi geti ekki átt
börn. Það er sjaldan spurt beinna
spurninga þegar þessi mál eru
annars vegar, það hvílir nokkurs
konar leyn iómur yfir þessum
hlutum. Fá. m dettur t.d. í hug að
spyrja spurninga eins og þessar-
ar: Af hverju eignist þið ekki
börn? Er það af því að þið viljið
það ekki eða getið það kannski
ekki. . .? Slíkar spurningar eru
taldar móðgandi og óviðeigandi.
Það sama á við þegar aðeins eitt
barn er í fjölskyldu. Þá er alveg
eins óviðeigandi og of persónulegt
að spyrja af hverju barnið sé bara
eitt. Flestum finnst að fólk eigi aö
eiga meira en eitt barn og oft er
reynt að setja fólk í pressu í þess-
um efnum.
Eru einbirni
betur gefin
en önnur börn?
Nýlega hafa birst niðurstöður úr
bandarískri rannsókn um ein-
birni. í Bandaríkjunum er orðið
mun algengara en áður að bara
sé eitt barn í fjölskyldu. Þar sem
áður fyrr var álitið að börn þyrftu
helst að eignast systkini til að al-
ast eðlilega upp fengu menn
áhuga á því að rannsaka hvernig
einbirnum myndi vegna í lífinu.
Niðurstöðurnar urðu aörar en
margir höfðu búist við. Það kom í
ljós að einbirnum leið í rauninni
alveg ljómandi vel og þau voru
ekki meira einmana eða sjálf-
miðaðri en önnur börn. Þau voru
heldur ekki höfð útundan. Það
kom ennfremur í ljós að sem full-
orðið fólk voru einbirni betur gef-
in, þroskaðri og gekk betur í námi
en börnum yfirleitt. Ein af skýr-
ingunum á þessu var að einbirni
hafa allt sitt líf lifað eins og frum-
burður gerir áður en hann eignast
systkini. Einbirni fá óskipta at-
18 Vikan 35. tbl.