Vikan - 02.09.1982, Side 39
Framhaldssaga
kvæmdastjórinn sneri sér aftur að
henni. „Hér hjá Superad, frú
Manley, erum við vanir að segja
að við séum í heiðarlegum
viðskiptum. Við hagræðum ekki
sannleikanum. Ég er trúaður
maður. Spámaðurinn segir í
Kóraninum að sérhver maður
skuli líta í eigin barm — ”
Aftur opnaðist gatið í veggnum.
Hann ýtti símanum í burtu.
„Það er lán að leiðir okkar skuli
hafa legið saman, þökk sé Sultan-
sahib. Björt framtíð bíður okkar,
um þaö er ég sannfærður. Þú ert
nýkomin hingað til landsins, frú
Manley, er þaö ekki? Þetta er
okkar aðferð — hann beinir
viðskiptum til mín og ég til hans.
Þú hefur ef til vill tekið eftir því aö
merki okkar er handa-
band.” Hann benti á skjöld á
annars auðu borðinu.
„Það er stórkostlegt.”
„Nú skulum við ræða smá-
atriðin. Ljósmyndarinn minn,
sem var í símanum, lét í ljós ósk
um aö fá að taka myndir af þér til
reynslu.”
„Ljósmyndari.”
„Sá allra besti í Karachi, því
máttu trúa. Hann hefur starfað í
Madison Avenue í New York.”
Hann starði á hana yfir spenntar
greiparnar „Má ég tala af hrein-
skilni? Ég er fimmtíu og sex ára
gamall og hef lært sitt af hverju.
Þar á meðal skiptir klæðnaðurinn
miklu.”
Húnsat grafkyrr.
„Hér er þaö ímyndin sem við
setjum sem skiptir máli. ímyndin
segir ævinlega satt. Hún veröur
til, hvernig á ég að orða það?”
hann hreyfði hendurnar, „meira
eða minna í samræmi viö þarf-
irnar.”
„Áttu við í hverju ég er? ”
„Velmegunin vex hratt hér í
landinu en viö horfum þó í vestur-
átt í leit að öllu sem er fágað og
fínt og færir okkur sömuleiðis vel-
gengni í lífinu. Til þess að gera
þetta allt einfaldara þá táknar
evrópskt andlit ákveðna stöðu í líf-
inu — það töfrar fram allt hið góða
— veraldleg gæði sem fólkið okkar
er farið að óska sér og vonast
eftir.”
„Ogég?”
„Má ég láta aðdáun mína í
ljós. Þú hefur þennan faílega litar-
hátt og töfrandi ensku krullur.”
Donald hafði gert grín að hár-
greiðslunni og krullunum þegar
hún kom frá hárgreiöslukonunni.
„Það þarf svolítið að huga að
snyrtingunni og fötunum.” Hann
hallaði sér fram á við. Hann leit á
mússulínsblússuna sem var oröin
krumpuð og þvæld eftir gönguna á
bazaarnum. Hann horföi á
svartar, víðar buxurnar sem
teknar voru saman með bandi í
mittiö. Hann horfði á gúmmísand-
alana og tærnar sem voru jafn-
óhreinar og tærnar á malínum
eftir morgunstörfin í blóma-
beöinu.
„Svo þú vilt ekki fá mig til þess
aðskrifa?”
„Það er ekki nauðsynlegt. Þaö
eru næg meðmæli að virða sjálfa
þig fyrir sér. Andlitiö, því þarf
ekki að fylgja nein lífslýsing.”
„Ég átti við að skrifa fyrir þig
auglýsingatexta.”
Hann lyfti augabrúnunum. „Frú
Manley, þaö sem þú býrð yfir er
dýrmætt en hvaða persóna sem er
getur drepið penna á blað.”
Sultan Rahim kom inn.
Christine reis á fætur. Mennirnir
sýndust ánægöir með sjálfa sig.
Naut Sultan einhvers góðs af
þessum viðskiptum? Christine
sagði hægt við sjálfa sig: Ég er
ljósmyndafyrirsæta með umboðs-
mann. Hún hélt á korti ljós-
myndarans í hendinni og gekk yfir
að speglinum og brá þegar hún sá
rauðar \ arir sínar. Augnabliki
síðar varö henni ljóst að það var
pan-ið sem bar ábyrgðina á
þessumlit.
Bazaarfnn þar sem gömlu fötin
voru seld var troðfullur af karl-
mönnum. Fáeinar konur voru
klæddar bourquas. Shamime hafði
sagt henni frá þessum stað í fyrsta
skipti sem þær hittust og þá var
Christine í einum af Rags-kjól-
unum sínum. Bazaarinn teygði sig
eftir stíg í nánd viö Flösku-bazaar-
inn. Yfir höfðum fólksins héngu
brjóstahaldarar. Það mátti greini-
lega sjá á þeim að þeir höfðu verið
þvegnir þó nokkrum sinnum. Voru
konurnar, sem höfðu þvegið þá,
dánar? Þeir héngu eins og innyfli
yfir höfðum karlmannanna. Eftir
því sem Shamime sagði var þetta
dót flutt hingaö í heilum skips-
förmum frá Japan, Bandaríkjun-
um og áreiðanlega líka frá Bret-
landi. Fatnaðurinn var úrkast frá
framleiðendum, föt af flóamörk-
uðum og frá alþjóðiegumhjálpar-
stofnunum. Allt var yfirfullt hér af
rusli frá Vesturlöndum, hvílíkt
OSBORNE-1 einstök smátölva
Sambyggð, lítil og auðflytjanleg
Öflug smátölva með Z80A, 64K RAM minni
CP/M stýrikerfi (staðall í smátölvum)
Innbyggður tölvuskjár og 2 diskettustöðvar
WORDSTAR ritvinnslu- og SUPERCALC áætlanagerðarforrit fylgja OSBORNE-1
Annar hugbúnaður sem fylgir:
Mailmerge póstlistaforrit, Míkrósoft MBASIC-80, og CBASiC-ll
OSBORNE-1 er óskatölva námsmanna, sérfræðinga og einstaklinga sem vilja nýta sér
nútímatækm til aukins árangurs og afkasta.
Við OSBORNE-1 fæst ódýr en nákvæmur teiknari (plotter) og einnig punkta
prentari á góðuverði. OSBORNE-1 er fáanleg fyrir íslenska staf-
rófið gegn greiðslu 1500 kr.
Hireyfilshúsinu viö Grensásveg. Simar: 82055
35. tbl. Vikan 39