Vikan


Vikan - 02.09.1982, Qupperneq 42

Vikan - 02.09.1982, Qupperneq 42
Framhaldssaga Þennan sama morgun, klukku- stundu síðar, stóö hún við hliöið. Hún hafði allt í einu ákveðið að fara í gula kjólnum, eiginiega bæöi til þess að gleöja Sultan og sömuleiöis til þess að halda honum í hæfilegri fjarlægð. I dag var hann í ljósum, hreinum fötum. Hann hafði greinilega úðaö á sig ilmvatni. Dúkkan hoppaöi til og frá um leið og þau óku niður holóttar göturnar. Viö hliðina á dúkkunni hékk klútur meö ísaum- uöum orðum, trúlega einhverju spakmæli úr Kóraninum. Hann var í góðu skapi. Hann kveikti á útvarpinu. Dillandi konu- rödd barst til þeirra. Hann ýtti á lögregluflautuna. „Erum við að fara í helgidóm- inn eða til þess að líta á húsið við ströndina?” Hann lyfti báðum höndum upp af stýrinu. „Eins og þú vilt.” „Hefuröu fundið handa okkur hús?” „Ö, já, það er ekkert vanda- mál.” Hún hélt áfram: „Ertu meö lykil?” „Engan lykil. Ef þú vilt þá getum við farið í helgidóminn.” Hann hélt áfram að aka í sömu áttina. Þetta hlaut aö vera leiðin að helgidómnum. Hún reyndi aö slaka á og taka því sem aö höndum bæri. Hann haföi ekki gert neina ferðaáætlun. Þetta var hans ferðalag en ekki hennar. I þau skipti sem þau höföu farið eitthvað saman haföi það alltaf veriö hann sem réð ferðinni. Hún velti enn fyrir sér sömu spurning- unum og áður. Vildi hann eiga samskipti við hana vegna viðskiptanna eöa var það vegna þess að hún var kona og vegna útlits hennar? Öskaði hann kannski eftir því að hún sæti hér við hlið hans vegna þeirrar virö- ingar sem hann naut af því að haía hana sem förunaut, eða var þetta vegna hennar sjálfrar? Kannski var það ekki vegna viröingarinnar heldur eingöngu vegna fýsnanna. Svo gat líka verið að hann væri bara aö reyna að vera vingjarn- legur; gestgjafi sem lagði sig allan fram um að sýna henni landiö sitt, meira að segja þótt hann hefði nokkur óþægindi af því. Hún skammaðist sín þegar henni hugkvæmdist þetta þar sem þessi ástæða hafði ekki áður skotið upp kollinum í huga hennar. Hún velti því fyrir sér nú eins og alltaf áður hvernig liann liti út innan klæða. Hún haföi ekki komið viö Pakist- ana, aö öðru leyl I en því þegar hún hafði heilsað þeim með handa- bandi. Kona söng á háum nótum. Fram undan voru hæðirnar. Hún ímynd- aði sér að helgidómurinn væri í helli rétt eins og verið hafði í bók- inni A Passage to India — hún var alltaf að hugsa um hana. Þaö var eins og hún hefði verið skrifuð sér- staklega fyrir hana. Hellir þar Þaðan sem hún stóð sá hún hæöina með gamalli byggingu, eða helgidómi, eða hvað þaö nú annars var. „Er þetta þessi helgi staður?” Hún benti. Hann kinkaði kolli — eða hreyfði að minnsta kosti höfuðið á þann austurlenska hátt sem menn gera þegar þeir eru að samþykkja eitt- Heitavatnsmaðurinn sem lítiö gerðist en þar sem breytingin ætti sér stað. Hún kæmi þaðan út gjörbreytt bæði líkam- lega og andlega. Hún var Sultan þakklát fyrir að vita hvert hún ætti að fara og að hann skyldi fara með hana þangað án þess að spyrja nokkurra spurninga, þess vegna ætti hún að hætta að vera með þennan leikaraskap út af kofanum við ströndina. Setningar flugu um huga hennar. Koman hingað er upphafið, ekki endirinn. Eða: það er ferðin, ekki áfanga- staðurinn, sem skiptir máli. Var þetta rétt? Þessar ferðir hennar með Sultan um borgina, sem hvorki hafði miðpunkt né enda- mörk, voru það sem hún hafði komist næst innri breytingum. í hvert einasta skipti hafði hún ekki haft hugmynd um hvert feröinni var heitið. Ekkert hafði komið út úr fundi hennar með hr. Khan og ljósmyndaranum. En þaö hafði búið eitthvað meira í þessum ferðum og sífelldri bið en árangur- inn sem af þeim haföi átt að verða. Ferð án áfangastaðar. Þetta var rétt eins og að ganga inn í mosku og mæta ekki öðru en galtómu veggskotinu á innsta vegg hennar. Þau óku nú yfir eyðimörkina. Þarna fyrir handan hlaut helgi- dómurinn að leynast. Hæðirnar fram undan gátu jafnt verið skammt undan sem langt í burtu. Þær risu skyndilega upp fyrir framan mann rétt eins og leiktjöld á sýningu. A sumrin var venja að senda konurnar upp í hæöirnar. Nokkru lengra, í skugga fáeinna runna, stöðvaði Sultan bílinn. Hún fór út. Móöan var horfin og sólin skein í heiði, jafnbrennandi heit og áður. „Er það hér sem heitavatns- maðurinn er ?” spurði hún. Sultan stóð hinum megin við bíl- inn. Hann lyfti höndunum og yppti öxlum: ef þú vilt hafa það svo, sögðu handahreyfingar hans. Hann er þar sem þú óskar eftir því aðfinna hann. hvað en í rauninni var það öllu lík- ara því að verið væri að hrista höfuðið. Acha, segir fólkið. Acha, tikka, okay. Ef þú óskar eftir því að taka það sem já þá er það já. Annaðhvort var helgidómurinn þarna, eöa hann vissi alls ekki hvort svo var eða ekki, eða hann hélt að hún ætti ekki aö fara á þennan stað. Ef til vill ætti hún ekki að koma hingað vegna þess að þetta væri heilagur staöur í augum múhameðstrúarmanna, og þá kannski heilagur honum sjálfum. Hún gat því verið hér í óþökk fólksins. Nú, þegar þau voru komin hingað á ákvörðunar- staðinn, var hann einhvern veginn svo áhugalaus. Hún hikaði. „Kemur þú meö?” „Ef þú óskarþess.” „Ég skal fara. Ég verð ekki lengi. Ertu voöalega þyrstur?” „Gee-han. Þú ert þyrst? Ég næ okkur í drykk?” Aftur hálfkinkaði hann kolli. Hún gekk af staö fram hjá sölu- borðunum og heitt loftið vaföist um hana eins og flannel. Það kom hreyfing á umhverfið um leið og betlararnir risu á fætur og hag- ræddu betiidósunum sínum. Konur sátu á hækjum sér á jörð- inni og störðu á hana. Hvernig var hægt að gleyma sjálfum sér í þessu landi þar sem allra augu beindust sífellt að manni og fylgd- ust með hverju fótmáli? Um leið og hún gekk áfram heyrði hún fótatak á eftir sér. Fyrir framan hana var stór bygg- ing. Þetta hlaut að vera helgi- dómurinn. Hér uppi var aðeins ein önnur bygging, hvít og nýtískuleg en leit ekki út fyrir að vera mikil- væg. Hún mátti ekki hika lengur. Hópur fólks stóð álengdar og flissaði. Hún gekk upp að byggingunni, smeygði sér úr sandölunum og gekk inn um bogadyrnar. Hún heyrði ekki að neinn kæmi inn á eftir sér. Hún hafði eiginlega búist viö því að hér væri einhvers konar gröf; minnismerki um heitavatnsmann- inn þar sem fólk gæti lagt blóm eða fórnir sem það ætlaöi sér aö færa honum en nóg var af þeim til sölu niðri á bazaarnum. Hér var ekkert. Engin gröf skreytt blóm- sveigum. Hér var aðeins hvelf- ingin hátt yfir manni, autt stein- gólfið og svo krumpað bréf utan af tyggigúmmíi. Á hliðum byggingarinnar voru boga- myndaöar dyr sem lágu út að runnunum umhverfis en fólkið hafði safnast saman fyrir utan dyrnar sem hún hafði komið inn um. Veggirnir báru þess merki að hér höfðu ræningjar farið um höndum og mósaikið var brotiö og kvarnað af. Hún stóð grafkyrr og vildi endilega finna eitthvað gerast. Hún hafði komið um svo langan veg til þess að sjá þennan stað. Á þessari stundu varö henni ljóst hve hún hafði treyst á þessa heimsókn sína. Enn kom enginn inn á eftir henni. Hún stóð kyrr í nokkrar mínútur og blómin hennar dingl- uðu við hliðina á henni. Hún hafði búist við heilagri kyrrð en þess í stað fann hún endalaust tóm. Hún hikaði og starði á sprungurnar í veggjunum um leið og ruslið á gólfinu barst út í eitt hornið fyrir vindi. Þegar hún kom út aftur fór hún í sandalana og hélt af stað niður hæðina, fram hjá söluborðunum. Það var kjánalegt, en tárin brutust fram í augu hennar. Beltið og ermarnar særðu hana. Bíll Sultans stóö þarna en Sultan sást hvergi. Hún fór að leita og varð fyrir bjánalega miklum von- brigðum. í því kom hönd viö handlegg hennar. Þegar hún leit við sá hún ungan dreng. Hann stóð hálfbog- inn undir staur en á báðum endum hans héngu fötur. Hann sagði eitthvað á urdu. „Nahin,” sagði hún og hristi höfuðiö neitandi um leið og hún benti á hneturnar í fötunum. Hún reyndi að hrista hönd hans af sér en nú benti hann niður eftir götunni og gaf henni merki um aö fylgja sér. Hún hélt af staö á eftir honum, fylgdi rykugum fótum hans. Þau gengu í átt að hæðunum. Þau gengu fram hjá bænahúsinu og kofunum sem voru öðrum megin við það. Eftir fáeina metra nam hann staðar og benti. Framhald i na sta bladi. 42 Vikan 35. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.