Vikan


Vikan - 02.09.1982, Page 63

Vikan - 02.09.1982, Page 63
Pósturinn vinnslu en var ekki komin út. Hún verður með svipuö- um lögum frá sjötta og sjöunda áratugnum. Getnaðarvarnir fyrir unglinga, bólur og strákar Kæri Póstur. Fyrst vil ég þakka fyrir allt gamalt og gott í Vik- unni. Vikan og efni hennar er mjög gott en Pósturinn er samt bestur. Jœja, þá kemur fyrri hluti bréfsins: A: Hvada getnaðarvörn myndir þú telja besta fyrir unglinga? B: Ég er með dálítið mikið afbólum enþœr hafa minnk- að svolítið eftir að ég hœtti að borða sœlgæti og ég þvœ mér alltaf. Getur þú ráðlagt mér eitthvert sérstakt krem eða eitthvað annað til þess að minnka bólur? Seinni hluti: Þannig var að ég og vin- kona mín kynntumst strák- um frá .... eina helgina í júní. Þetta voru œgilega skemmtilegir strákar. Þeir komu heim til mín bœði kvöldin, fyrra kvöldið voru þeir fjórir en seinna kvöldið komu bara tveir, X og Z, og við urðum hrifnar sín af hvorum stráknum. Þá kom- umst við að því hjá X að Z vœri með stelpu þar sem hann á heima og vinkona mín varð að vonum svolítið spæld yfir því. En þegar þeir voru að fara þá segir Z svona: Við vonum að þið gleymið okkur ekki. Við sögðum nei, að við myndum ekki gleymaþeim. Heldur þú uð Z hafi meint eitthvað með þessu? Við höfum ekkert heyrt frá þeim síðan en við höfum tvisvar hringt til þeirra og þeir ekki verið heima. En Það hefur verið hringt til okkar og við ekki verið heima og fólkið heima sagði að það hefði verið strákur er hringdi. Við þekkjum enga stráka svo vel að þeir fœru að hringja til okkar (við höldum það). Heldur þú að það hafi getað verið þeir? Þeir virtust ekki þannig strákar sem gefa bara skít í stelpur. Nú œtla ég ekki að taka meira afþínu dýrmæta plássi. Með fyrirfram þökk, Varúlfurinn. Best aö svara spurning- um þínum í réttri röð. Fyrri hluti: A: Það er ekki gott að segja hvaða getnaðarvörn hentar unglingum best. Sérfróðir menn telja pilluna ekki heppilega fyrir ungar stúlkur vegna ýmissa aukaverkana og óvissu um afleiðingar langvarandi notkunar. Lykkjan er sjaldan sett í konur nema þær hafi einhvern tíma orð- ið ófrískar. Notkun hettu og smokks er hins vegar með öllu hættulaus. Smokkur veitir að auki góða vörn gegn kynsjúkdómum og kvillum. Smokkarnir eru auðveldir í notkun en dálít- ið meira vesen fylgir hettu- notkuninni. Með sæðisdrep- andi kremi eru hettan og smokkurinn öruggar getn- aðarvarnir. Strákar ættu að telja það sjálfsagt mál að nota smokka og vera því viðbúnir ef þeir eru á þeim buxunum. Stelpur ættu sömuleiðis að eiga smokka í pokahorninu og fara fram á það við strákana að þeir noti þá ef þeir hafa ekki frumkvæðið að því sjálfir. B: Sælgætisát og léleg hreinsun er ekki eina ástæðan fyrir andlitsból- unum. Því er ekki þar með sagt að allar bólur hverfi þótt menn hætti að borða sælgæti og hreinsi húðina vel og vandlega. Undralyf eru því miður engin til. Haltu bara þínu strik og þá fækkar bólunum jafnt og þétt. Einnig gæti verið rétt að leita til snyrtistofa en þær bjóða margar hverjar upp á góða kúra fyrir bólótta húð. Seinni hluti: Póstinum finnst ekkert ólíklegt að strákarnir hafi meint ýmislegt með þessu. Einnig gæti verið að þeir hefðu ef til vill meint eitt- hvað með þessu þá en síðan hefur tíminn og fjarlægðin smám saman breytt til- finningum þeirra. En þið ættuð bara að halda áfram að hringja til þeirra og heyra í þeim hljóðið. Þið gætuð líka prófað að skrifa þeim fyrst þeir búa ekki á sama stað og þið. PENNAVINIR Aðalheiður Þóra Bragadóttir, Laugabraut 14, 300 Akranesi, óskar eftir pennavini frá 10—12 ára, stelpu eða strák, er sjálf 11 ára. Guðrún Ellertsdóttir, Stóra-Múla, Saurbæjarhreppi, 371 Dalasýslu, óskar eftir karlkyns pennavinum, giftum jafnt sem ógiftum, á aldrinum 19—35 ára. Svarar öllum bréfum og mynd má fylgja ef hún er til. Helga Gísladóttir, Bókhlöðustíg 3, 340 Stykkishólmi, óskar eftir pennavinum á aldrinum 14—16 ára, bæði strákum og stelpum, sjálf er hún 14 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Áhugamál ýmis. Fótboltaklúbbar Eins og vænta mátti brugðust lesendur vel við beiðni Póstsins um heimilisföng aðdáenda- klúbba fótboltafélaga. RJR úr Reykjavík sendi eftir- farandi utanáskriftir og fleiri til sem Pósturinn birt- ir síðar. Kann Pósturinn honum bestu þakkir fyrir viðvikið. Aðdáendaklúbbar breskra liða: Bolton Wanderes Supporters Club Burnden Park Manchester Road Bolton England Everton Supporters Club 38 City Road Liverpool 4 England Ipswich Supporters Club Portman Road Ipswich Suffolk IPI2DA England Liverpool Supporters Club 212 Lower Breck Road Liverpool England Manchester United Supporters Club Football Ground Old Trafford Manchester M16 ORA England Nottingham Forest Supporters Club S. Dewar c/o City Ground Nottingham England Sheffield Wednesday Supporters Club Hillsborough Sheffield S61SW England Swansea City Supporters Club Vetch Field Swansea Wales Tottenham Hotspur Supporters Club 744 High Road London N17 England 35. tbl. Vikan 63

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.