Vikan - 03.07.1986, Qupperneq 7
Andrea er 17 ára og hefur unnið
við bensínsölu í tvö og hálft ár,
fyrst var hún að afgreiða bensín
en nú er hún kassamaður og vakt-
stjóri hjá Olís við Gullinbrú.
Níunda bekkinn kláraði Andrea í
kvöldskóla og nú í haust var mein-
ingin að fara í Fjölbraut og síðan
í sálfræði en nú er útlit fyrir að þau
áform víki að sinni. Draumatil-
boðið, að reyna fyrir sér sem fyrir-
sæta úti í heimi, barst óvænt og
þá er ómögulegt annað en að taka
því og freista gæfunnar.
- Hvað fékk þig til að taka þátt
í Ford-keppninni?
„Eg hef verið í Módelsamtökun-
um hjá Unni Arngrímsdóttur og
hún benti Katrínu Pálsdóttur á mig
sem hugsanlegan þátttakanda.
Mér fannst mjög gaman að taka
þátt í þessu og það kom mér mjög
á óvart að fá þennan samning, bjóst
svo sem ekki við neinu. Eg hef ver-
ið í Módelsamtökunum í eitt ár,
aðallega í tískusýningum en und-
anfarið í fyrirsætustörfum hjá
Maríu Guðmundsdóttur og Gunn-
ari Larsen. Það var lengi draumur-
inn að komast í svona starf og það
er auðvitað hápunkturinn að fá ef
til vill að vinna erlendis, geta séð
sig um í heiminum og kynnst fólki
frá hinum ýmsu löndum. Ef vel
gengur gæti ég vel hugsað mér að
vera úti eitthvað áfram og geyma
sálfræðina. En til að byrja með
þarf ég að safna mér myndum í
möppu þarna úti í New York og
verð þar líklega í tvo til þrjá mán-
uði en svo fer ég kannski til
Evrópu, Ástralíu eða Japan til að
vinna svo framarlega sem ég fæ
einhverja vinnu. Um jólin kem ég
svo væntanlega heim og þá íhugar
maður stöðuna."
- Ertu ekkert kvíðin að leggja
út í þetta?
„Nei, ég er ekkert kvíðin enn,
hlakka bara til. Þetta er náttúrlega
erfitt starf og ég geri mér grein
fyrir að þetta á eftir að verða fer-
lega strembið en ég treysti mér í
baráttuna."
- Hvaða áhugamál áttu?
„Ég hef nú lítinn tíma haft til
annars en að vinna, í bensínsölunni
og módelstörfunum, en ég hef alltaf
gaman af að lesa góðar bækur, geri
dálítið að því og svo að synda. En
ég hef haft gaman af vinnunni, það
er þroskandi hvort sem það er bens-
ínstarf eða eitthvað annað.“
Það er alveg áreiðanlega rétt hjá
Andreu því þó hún sé aðeins 17 ára
virðist hún fyllilega undir það búin
að hefja harða baráttu úti í heimin-
um stóra.
ANDREA BRABIN UR BENSINSOLU
Á FYRIRSÆTUSAMNING